Fréttablaðið - 09.11.2012, Blaðsíða 25
Kynningarblað Netpöntun, netkveðjur, kort frá
stíðsárunum, fjölskyldumyndatökur og jólakort Obama.
JÓLA ORT
FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2012
&LJÓSMYNDUN
Við bjóðum upp á margar gerðir jólakorta, dagatöl, ljósmyndabækur og fleira
sem viðskiptavinurinn velur sjálf-
ur og setur saman gegnum forritið
okkar Pixel designer. Þá tökum við
á móti ljósmyndabókum og jóla-
kortum sem fólk hefur sett saman
í forritinu iPhoto.
Einnig er hægt að koma til
okkar í Brautarholtið og við setj-
um upp jólakortin fyrir viðskipta-
vini,“ segir Ingi Hlynur Sævarsson
hjá Pixel prentþjónustu.
„Umslög fylgja öllum jólakort-
um og við bjóðum einnig upp
á umslög árituð með nafni. Þá
er hægt að senda okkur nafna-
listann í Excel-skjali í tölvupósti
og við prentum utan á umslög-
in nafn viðtakanda og heimilis-
fang. Þá þarf ekkert að gera nema
smella kortunum í umslag og
drífa í póst.“
Pixel designer-forritið er
þægilegt og einfalt í notkun
Forritið er hægt að sækja frítt á
heimsíðu okkar, www.pixel.is.
Það er einfalt í notkun, hægt er að
hlaða niður útgáfum hvort sem er
fyrir PC eða MAC og leiðbeining-
um um notkun þess í pdf-skjali.
„Pixel designer-forritið hefur
verið gífurlega vinsælt þau þrjú ár
sem við höfum verið með það. Nú
er komin ný uppfærsla sem býður
viðskiptavinum upp á skemmti-
lega tengingu við Flickr og Face-
book þar sem meðal annars er
hægt að nálgast myndir á þægi-
legan hátt. Þó forritið sé mjög
einfalt í notkun þá eru allir hér
boðnir og búnir að aðstoða fólk
og um að gera að hringja í okkur
ef fólk lendir í vandræðum,“ segir
Hlynur.
Styrkja gott málefni
Í ár styrkir Pixel Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna með
sölu sérstakra jólakorta.
„Sú hugmynd kom upp hér hjá
starfsmanni að fyrirtækið styrkti
eitthvert gott málefni fyrir jólin,“
segir Hlynur. Með kaupum á SKB
jólakorti styrkir kaupandi SKB
um 15 krónur, Pixel leggur einn-
ig til 15 krónur og þannig renna
30 krónur af hverju korti óskipt-
ar til SKB. Styrktarkortið er að
finna inni í forritinu Pixel design-
er undir heitinu SKB.
„Fólk þarf bara að hlaða niður
forritinu en þar er að finna allar
tegundir og stærðir jólakorta. Til
að styrkja félagið þarf svo að velja
kort sem heitir SKB.“
Tilbúin í jólaösina
„Hjá okkur vinna þrettán manns,
allt faglært fólk; prentsmiðir,
prentarar og bókbindarar. Við
erum komin í jólaskapið og tilbú-
in fyrir jólaösina,“ segir Hlynur.
„Afhendingartíminn hjá okkur er
3-5 dagar og það er alltaf mikið að
gera hjá okkur fyrir jólin. Þó finnst
mér fólk hafa verið fyrr á ferðinni
síðustu ár með jólakortin en oft
áður. Það verða þó alltaf einhverj-
ir sem koma á Þorláksmessu með
jólakortapöntunina og þá reynum
við auðvitað að bjarga því.
Í nóvember bjóðum við upp
á 15% afslátt af öllum vörum úr
Pixel designer. Þar á meðal er
boðið upp á jólakort með um-
slagi frá 98 krónum stykkið með
afslætti. Hið eina sem fólk þarf
að athuga er að slá inn afsláttar-
kóðann JOL2012 þegar pöntun er
framkvæmd í Pixel designer.“
Styrkja gott málefni
Starfsfólk Pixel komið í jólaskapið og tilbúið fyrir jólaösina. Undirbúningur jólanna hefst hjá Pixel
prentþjónustu í Brautarholti 10-14 sem býður upp á alhliða prentþjónustu.
Öflugur hópur starfsmanna Pixel prentþjónustu er kominn í jólaskapið og tilbúinn fyrir jólaösina. MYND/ANTON