Fréttablaðið - 09.11.2012, Side 26
KYNNING − AUGLÝSINGJólakort & ljósmyndun FÖSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 20122
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Sverrir Birgir Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512-5432
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Síðustu jól sáum við algera sprengingu í jólakortum, dagatölum, ljósmyndabók-
um og strigaprentun á netinu.
Þá voru flestir viðskiptavinir að
vinna þetta á kvöldin og næturn-
ar, enda er það oft eini tíminn sem
fólk hefur,“ segir Bergur Gísla-
son, eigandi verslunarinnar Ljós-
myndavörur.
Pantaðu á netinu – framkollun.
ljosmyndavorur.is
„Mjög einfalt og skemmtilegt er að
gera jólakort, dagatöl, bolla, boli
og púsluspil á vefnum okkar www.
framkollun.ljosmyndavorur.is.
Það er leikur einn að setja inn sinn
eigin texta á jólakortin og hægt
er að velja um fjölmargar gerðir
jólakorta. Þegar kortin eru unnin
á vefnum getur þú unnið með
myndina, fært hana til, dregið að
og svo framvegis. Svo sérðu próf-
örk áður en þú lýkur pöntuninni
þannig að þú veist strax hvernig
kortið þitt lítur út. Öll kort á jóla-
kortavefnum eru einföld. Einn-
ig er hægt að gera strigamyndir
á vefnum ásamt öllum venjuleg-
um ljósmyndum og stækkunum á
ódýran og einfaldan hátt. Fljótlega
verður líka hægt að gera iPhone-
og iPad-hulstur með þinni eigin
mynd þar.“
Fyrir þá sem vilja hefðbund-
in tvöföld jólakort, þar sem ljós-
mynd er smeygt inn í kortið, þá
eru á aðalsíðu Ljosmyndavorur.is
sýnishorn af þeim tvöföldu kort-
um sem boðið er upp á. Þau kort er
líka hægt að panta með tölvupósti.
Leiðbeiningar um það er að finna
í texta við kortin á heimasíðunni.
„Þá bjóðum við frábært verð á
ódýrum ljósmyndabókum kiljur/
softcover í frábærum myndgæð-
um – frá 1.300 krónur bókin. Þær
er mjög einfalt að gera, þú hleð-
ur niður forriti af heimasíðunni
okkar og forritið leiðir þig áfram
til að fylla bókina. Hægt er að velja
margs konar útlit og uppsetningu.
Þegar bókin er orðin eins og þú
vilt hafa hana kemur þú til okkar
með skjalið á USB-lykli, minn-
iskorti, geisladiski eða einhverju
slíku. Það er hægt að senda þetta
í tölvupósti, en skjölin eru oft of
stór fyrir fólk til að senda frá sér.
Þessum bókum hefur verið gríðar-
lega vel tekið, enda varla hægt að
finna jólagjöf sem er jafn ódýr og
skemmtileg.“
Sprenging í
netpöntun
Það er leikur einn að panta jólakort, dagatöl, bolla,
boli og púsluspil á Ljosmyndavorur.is.
Svanhildi Bogadóttur borg-arskjalaverði datt í hug að fá fólk til að afhenda gömul
jólakort til varðveislu í stað þess að
henda þeim. „Hugmyndin kvikn-
aði á milli jóla og nýárs árið 1998.
Ég var heima að hlusta á útvarpið
en þar fór fram umræða um hvað
ætti að gera við jólakort þegar jólin
væru búin. Hringt var í þáttinn frá
Sorpu og bent á endurvinnslu hjá
þeim. Mér fannst synd að fólk væri
að farga kortunum og hafði því
samband og benti fólki á að koma
með kortin í Borgarskjalasafn-
ið, jafnt nýrri og eldri. Við fengum
mjög jákvæð viðbrögð og hingað
komu heilu jólakortasöfnin,“ segir
Svanhildur.
„Í ljós kom að til voru safnarar
sem höfðu raðað kortunum fallega
í möppur. Einnig komu einstakling-
ar með kort úr búi foreldra sinna
sem náðu oft yfir heilu áratugina.
Þannig eignuðumst við kortasöfn
allt aftur til aldamótanna 1900.
Það virðist hafa verið afar algengt
að fólk hafi geymt jólakortin,“ segir
Svanhildur enn fremur og bendir á
að þessi kort séu ómetanleg.
Borgarskjalasafnið er ekkert að
fela þessi kort því í desember ár
hvert er haldin sýning á kortum
í eigu safnsins auk þess sem þau
eru í boði á netinu. „Við opnum
aðventusýningu 3. desember hér í
Tryggvagötu 15 á 3. hæð. Auk þess
erum við með jólakortavef sem
hefur verið notaður alveg ótrúlega
mikið. Fólk er þegar farið að skoða
kortin en við sjáum stöðuga aukn-
ingu allt fram að jólum. Send hafa
verið um og yfir 100 þúsund kort á
netinu undanfarin ár en slóðin er
Borgarskjalasafn.is/jolakort.“
Svanhildur segir að jólakortavef-
urinn hafi orðið til fyrir níu árum.
„Við erum bæði með jóla- og nýárs-
kort á netinu og setjum ný inn fyrir
hver jól, um 25-30 tegundir hverju
sinni og frekar þessi eldri og sjald-
gæfari. Gömlu jólakortin lýsa mikl-
um tilfinningum. Fyrstu kortin
voru prentuð erlendis og voru með
danskri jólakveðju en um 1910 er
farið að prenta þau hér á landi.“
Svanhildur er þess fullviss að
þróunin sé í þá veru að senda raf-
ræna jólakveðju. „Við bjóðum
upp á fastmótaðar kveðjur á yfir
tuttugu tungumálum en viljum
leggja áherslu á að fólk skrifi eitt-
hvað meira persónulegt. Það er
svo skemmtilegt að setjast niður á
aðfangadagskvöld og lesa fallega
kveðju frá fólki sem maður hefur
ekki hitt lengi,“ segir Svanhildur.
Gömul, íslensk jóla -
kort vinsæl á netinu
Um eitt hundrað þúsund jólakort fóru rafrænt um víða veröld frá
Borgarskjalasafni Reykjavíkur um síðustu jól. Mikil aukning hefur orðið á
sendingu slíkra korta.
Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður
fékk þá hugmynd að safna gömlum
jólakortum sem nú koma að góðum
notum.
Það er hægt að setja upp og panta allan sólarhringin og nota margir kvöld og nætur
þegar annríkið er mikið í desember.