Fréttablaðið - 09.11.2012, Page 32

Fréttablaðið - 09.11.2012, Page 32
6 • LÍFIÐ 9. NÓVEMBER 2012 Hollt að ögra vananum Nú hættir þú að vinna sem fast- ráðinn leikari hjá Þjóðleikhúsinu í fyrra eftir átján ára starfsferil. Hvað tók við í kjölfarið? Frelsi, samt hef ég sjaldan haft jafn mikið að gera. Hvernig fannst þér að takast á við breytingarnar sem fylgdu því að hætta hjá Þjóðleikhúsinu eftir svo langan tíma? Ég lít ekki svo á að ég sé hætt fyrir lífstíð hjá Þjóðleikhúsinu. Ég er bara ekki lengur fastráðin þar og á eflaust eftir að vinna þar fljótlega aftur, en þá sem verkefnaráðin. Átján ár er langur tími og ég hafði aldrei hugsað mér að vinna alla ævi á sama stað. En árin flugu og mér krossbrá þegar ég áttaði mig á því hversu lengi ég hafði starfað á sama stað. Ég er mjög þakklát fyrir þessi átján ár í Þjóðleikhúsinu þar sem ég fékk að þroska mig og þróa sem leikari. Ég var mjög lánsöm með hlutverk og hef verið í gegnum tíðina. Það er gott að vinna þar en leikhúsið þarf að hafa hreyfingu á listamönnum og það er hollt okkur öllum að breyta til, brjóta upp mynstur og þægindaramma, ögra vananum og leita á nýjar slóðir. Samt er ég einnig þeirrar skoðunar að leik- hús á að hafa sinn kjarna af fastráðn- um leikurum. Það hentar mér hins vegar mun betur núna að vera laus- ráðin. Mig hefur langað til þess í mörg ár svo það var ekki dramatískt fyrir mig að breyta til. Leyfir sér að njóta Þú ert stórglæsileg kona. Hvernig heldur þú þér í formi líkamlega og andlega? Ég hef lært það í gegnum tíðina að leyfa mér að borða það sem Það er svo satt sem sagt er að ef einn gluggi lokast þá opnast annar. Ég á við, að þora að hugsa og stíga út fyrir rammann. ELVA ÓSK ÓLAFSDÓTTIR ALDUR: Mér finnst ég alltaf vera á besta aldrinum. HJÚSKAPARSTAÐA: Er í sambandi. BÖRN: Agnes Björt Andradóttir og Benedikt Andrason. STARF: Leikari. ÁHUGAMÁL: Fólk, náttúra, skotveiði og fleira. FYRIRMYNDIR: Á enga fyrirmynd en samferðafólk og fjölskylda hefur í gegnum tíðina að sjálfsögðu haft áhrif á mig. HVAÐ SÉRÐU ÞIG EFTIR 5 ÁR: Get engan veginn séð það þegar ég veit varla um morgundaginn. Lítið hefur borið á þér að undan- förnu. Hvar hefur þú haldið þig? Ég hef verið aðallega hér heima. En ég hef ferðast mikið og þá aðallega með Vesturporti. Fór meðal annars til Norilsk í Síberíu sem var ótrúleg upplifun. Ég átti annasamt sumar og frumsýndi „Gestaboð Hallgerð- ar“ eftir Hlín Agnarsdóttur um miðj- an júlí og sýndi það á Hvolsvelli þar til fyrir stuttu. Við tökum smá pásu frá þeirri sýningu en höldum áfram á nýju ári. Ég var að æfa í septem- ber nýtt leikrit eftir Jón Atla Jónas- son sem heitir „Nóttin nærist á deg- inum“ sem fer aftur í æfingu um ára- mót og verður frumsýnt í lok janúar í Borgarleikhúsinu. Líður vel með vinnufélögunum Hvað tekst þú á við í dag þegar kemur að leiklistinni? Ég var að frumsýna „Bastarða“ í Borgarleik- húsinu fyrir stuttu og leik þar Na- talíu sem er mjög undirgefin kona. Hún fær sem betur fer smá upp- reisn æru í lokin. Leikhópurinn sam- anstendur af yndislegu fólki sem ég hef oft unnið með. Ég hef unnið svo- lítið með Vesturporti og það er alveg einstaklega gott. Gísli (Örn Garð- arsson) kemur með einhvern nýjan tón og starfsaðferðir inn í leikhúsið sem mér finnst mjög góðar. Það er langt síðan ég hef unnið í Borgó og finnst gaman að koma þangað aftur. Þessa dagana er ég einnig að leika draug í nýrri mynd eftir Ágúst Guð- mundsson sem heitir „Ófeigur geng- ur aftur“ og er rómantísk gaman- og draugamynd. Elvu Óskar 10.00 Nú er ég ekki að æfa í bili, þá get ég leyft mér að vakna ekki fyrr en klukkan 10. Ég var að vinna frameftir í gær. Fæ mér alveg svakalega hollt búst sem jaðrar við að vera ógeðisdrykkur því ég asnaðist til að sulla allskyns meiri hollustu út í hann, sem ég geri ekki aftur. Kíki í blöðin og tölvuna. 11.00 Skelli mér í ræktina og nota tímann á brettinu og les handrit sem ég átti eftir að lesa. Tíminn flýgur. 12.00 Á stefnumót við vinkonu í hádeginu sem ég hef ekki hitt lengi. Fæ mér rótsterka núðlusúpu á Núðlu-station á Skólavörðu- stíg. Þriggja klúta súpa og kvefið farið. 13.30 Á að mæta klukkan tvö að lesa inn á auglýsingu, hef tíma til að skreppa og versla áður. 14.30 Er komin heim, hendi í vél og tek út úr uppvöskunarvélinni, hringi á meðan og tala við systur mína. Skæpa aðeins við kærastann sem er vaknaður í Florida. 17.00 Mæti svo á fund klukkan fimm með vinkonum mínum í Heimil- istónum. Framtíð hljómsveitarinnar skeggrædd. 18.45 Kem heim rétt fyrir kvöldmat, elda og er svo mætt upp í leik-hús rétt fyrir klukkan sjö. 22.30 Er í vinnunni til hálf ellefu. Fer heim, spjalla við heimilisfólk-ið ef einhver er heima, kíki í tölvuna, horfi svo kannski á eitt- hvað í sjónvarpinu og væflast eitthvað fram yfir miðnætti. ÁSTRÍÐUFULL LEIKKONA Lífið hitti Elvu Ósk Ólafsdóttur leikkonu yfir kaffibolla og komst að því að hún er veiðimaður í húð og hár sem nýtur lífsins að fullu, er sátt og sannarlega ástríðufull þegar kemur að leiklistinni. Öflugt gegn blöðrubólgu ROSEBERRY Sterk þrívirk trönuberjablanda 2-3 töflur fyrir svefn Fæst í apótekum, heilsubúðum og í heilsuhillum stórmarkaðanna www.gengurvel.is Höfuðhandklæðin frá Sif eru saumuð úr gæðabómull. Létt og þægileg í notkun og henta jafnt síðu sem stuttu hári og dömum á öllum aldri. Fáanleg í 10 litum Nánar um sölustaði á facebook

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.