Fréttablaðið - 09.11.2012, Blaðsíða 33
LÍFIÐ 9. NÓVEMBER 2012 • 7
mig langar í því ég er algjör nautna-
seggur, en allt er gott í hófi. Ég nenni
ekki að vera í endalausri megrun. Ef
ég bæti á mig þá tek ég á því með
til dæmis minni skömmtum og meiri
hreyfingu. Ég fer í ræktina þegar ég
hef tíma, svo hugsa ég vel um að
borða hollan mat. Ég hef forðast
unnar vörur og brauð í mörg ár þótt
það komi auðvitað fyrir að það fari
inn fyrir mínar varir. Ég sef út þegar
ég get. Það sama gildir um andlegu
hliðina. Ég nærist á því að ræða hin
ýmsu málefni við vini mína, lesa og
skoða, ganga úti í náttúrunni og næra
andann. Engin megrun þar heldur.
Ef þú lítur um öxl, hvaða hlutverk
eru þér kær? Mér hefur alltaf fundist
það hlutverk sem ég er að fást við þá
stundina, vera mér kært. Í leikhúsinu
eru mér minnisstæðust þau hlutverk
sem eru vel skrifuð og þar af leið-
andi gaman að vinna, til dæmis Nóra
í Brúðuheimilinu eftir Ibsen. Miklu
skiptir líka hópurinn sem stend-
ur að sýningunni. Ég hef alltaf verið
svo lánsöm að vinna með eðalfólki,
skemmtilegu og skapandi, svo ég á
ansi erfitt með að gera upp á milli.
Gæði leikara á Íslandi mikil
Hvernig er að starfa sem leikkona
á Íslandi? Hverjar eru neikvæðu og
jákvæðu hliðarnar sem við áhorf-
endur þekkjum ekki til? Það er
mjög gott að vera leikari hér miðað
við til dæmis í Bretlandi þar sem allir
eru lausráðnir og atvinnuleysið gríð-
arlega mikið. Hér geta leikarar unnið
í leikhúsi, kvikmyndum, sjónvarpi, tal-
MYND/VALLI
Framhald á síðu 8
Elva Ósk er mikið náttúrubarn og svo er hún veiðimaður sem kemur skemmtilega á óvart.
AUSTURSTRÆTI 8–10
SÍMI 534 0005
OPIÐ ALLA DAGA
7
ÁRA
7
ÁRA