Fréttablaðið - 09.11.2012, Page 34
8 • LÍFIÐ 9. NÓVEMBER 2012
sett myndir, leikið í útvarpsleikritum,
lesið inn á auglýsingar og svo fram-
vegis. Leikarar í öðrum löndum eru
oftast fastir við eitthvað eitt, eins og
talsetningu eða eingöngu leik í sjón-
varpi, svo eitthvað sé nefnt. Þannig
að við fáum þjálfun í svo mörgu. Svo
er það neikvæða: Hér er líka atvinnu-
leysi mikið hjá leikurum. Við búum í
svo litlu landi að markaðurinn er lít-
ill og þar af leiðandi ekki miklar pen-
ingaupphæðir fyrir störf sem erlendir
leikarar fá formúu fyrir á stærra mark-
aðssvæði. Gæði leikara hér heima
eru mikil. Við eigum fullt af frábærum
listamönnum. Ég held ég geti fullyrt
að ekkert okkar er í þessu út af laun-
unum, heldur er þetta hrein ástríða.
Spilar á bassa með skotvopnaleyfi
Áttu þér áhugamál sem þú sinnir
fyrir utan leiklistina? Já, ég fer heil-
mikið út í náttúruna. Ég er búin að
vera með skotvopna- og veiðileyfi í
fjögur ár og ég elska að fara á veið-
ar. Útiveran gefur mér mikið og svo
er það auðvitað bónus ef eitthvað
veiðist. Ég hef svo gaman af þessu
að ég gæti hugsað mér að gera
þetta daglega. Eins með hljómsveit-
ina Heimilistóna. Ég er bassaleikari
og elska að spila tónlist með þeim.
Vandamálið er bara það að sjaldan
gefst tími til að hittast. Svo eru mörg
önnur áhugamál sem ég á eftir að
gefa mér tíma í seinna.
Að lokum, þitt mottó í lífinu? Þora
að lifa lífinu á mínum forsendum og
vera hamingjusöm.
Hvað áttu við með að þora? Hafa
kjark til að brjóta upp mynstur, hvort
sem það tengist vinnu, búsetu og
fleiru. Það er svo satt sem sagt er að
ef einn gluggi lokast þá opnast annar.
Ég á við, að þora að hugsa og stíga
út fyrir rammann. Þora að fara sína
leið og standa með sér. Þora að lifa
á sínum forsendum án þess að velta
sér upp úr áliti og skoðunum annarra.
Þora að fylgja sínum draumum.
Framhald af síðu 7
Hér er Elva Ósk í hlutverki Hallgerðar.
Ég átti annasamt sumar og frumsýndi Gesta-
boð Hallgerðar eftir Hlín Agnarsdóttur um miðjan
júlí og sýndi það á Hvolsvelli þar til fyrir stuttu.
Við tökum smá pásu á þeirri sýningu en höldum
áfram á nýju ári.
Ég held ég geti fullyrt að ekkert
okkar er í þessu út af laununum,
heldur er þetta hrein ástríða.
TÍMARIT: Ég glugga sjaldan í tímarit nema þá helst á biðstof-
um og flugvöllum. Kíki þá aðallega í home-decoration blöð,
tískublöð og matreiðslublöð. Eina blaðið sem ég kaupi alltaf er
jólablað Bo Bedre.
BÍÓMYND: Cinema Paradiso, Black Swan, Love actually og fleiri.
HÖNNUÐUR: Gusto.
MATSÖLUSTAÐUR: Úfff... svo margir. Til dæmis Sushisamba, Grillmarkaðurinn,
Tapashúsið hér í Reykjavík, Smith& Wollensky í Miami og Ruth Chris Steak-
house i Cancún Mexico.
SNYRTIVÖRUR: Ég nota mjög lítið af snyrtivörum. Helst þá frá Nivea, Mac og
svo Lancome maskara.
KAFFIHÚS: Fjöruhúsið á Hellnum og Flat White í Soho í London.
LANDSHLUTI Á ÍSLANDI: Vestmannaeyjar og Snæfellsnesið.