Fréttablaðið - 09.11.2012, Side 36
10 • LÍFIÐ 9. NÓVEMBER 2012
Þvottakoddarnir einfalda skömmtun
á þvottaefni og draga úr sóðaskap
í þvottahúsinu, bæði
á gólfinu og í sápu-
hólfinu því þú setur
koddann einfaldlega
inn í þvottavélar-
tromluna á undan
óhreina þvottin-
um. Koddinn
inniheldur
einn skammt
a f f l j ó t -
andi þvotta-
efni sem leys-
ist auðveldlega upp í vatni.
Umbúðirnar leysast einnig upp og
skolast út með vatninu. Þvottaefnið
í koddunum er tvöfalt kröftugra en
venjulegt fljótandi þvottaefni frá Bio-
tex. Þvottakoddarnir eru fáanlegir í
tveimur gerðum; fyrir hvítan eða ljós-
an þvott og fyrir mislitan þvott.
Mikilvægt að velja rétt
Þvottamarkaðurinn hefur breyst – hér
áður fyrr var bara einn þvottaefnis-
pakki í þvottahúsinu en með betri og
sérhæfðari þvottaefnum hefur fólk
nú kost á betri meðhöndlun á fötun-
um sínum sem lengir líftíma þeirra.
Þvottaefni sem eru sérstaklega ætluð
hvítum og ljósum þvotti eru sterkari
og fara því ekki vel með marglitan og
dökkan þvott. Fyrir marglitan þvott
er gæfulegra að nota þvottaefni sem
hreinsar vel án þess að hætta sé á að
efnið upplitist. Í Biotex er hátt inni-
hald af mismunandi ensímum sem
ráðast á erfiða bletti án þess að fara
illa með efnið. Ensímin gefa einn-
ig möguleika á að þvo bletti úr við
lægra hitastig
sem fer mun
be tu r með
flíkurnar.
Þ v o t t e f n i f y r i r
svartan þvott
Til þess að halda
svörtum og mjög
dökkum fötum falleg-
um er best að þvo þau
með sérstöku þvottaefni
fyrir svartan þvott. Biotex Black inni-
heldur ensím sem fjarlægja slitnu
trefjarnar af yfirborði efnisins og
gera þannig litina skýrari. Það er
ekki svart litarefni í þvottaefninu
svo óhætt er að nota það á dökk
föt sem innihalda líka ljósari liti.
Fljótandi þvottaefni hefur mikla
kosti
Margir hafa fært sig úr hefð-
bundnu þvottadufti í fljótandi
þvottaefni á undanförnum árum.
Það hefur marga kosti fram yfir
þvottaduft. Það leysist auðveld-
ar upp í vatninu og því er engin
hætta á að þvotturinn innihaldi
leifar af þvottaefni eins og stund-
um vill gerast með þvottaduft.
Af sömu ástæðu hentar fljótandi
þvottaefni líka vel í handþvott og
vélaþvott við lágt hitastig. Fljótandi
þvottaefni fer einnig betur með við-
kvæman þvott og föt úr mjög fínum
efnum. Auk nýjunganna í þvottaefn-
um kynnir Biotex nú nýjan og enn
öflugri blettaeyði með ensímum sem
sprautar froðu sem binst við óhrein-
indin og lyftir þeim upp frá þráðun-
um í efninu. Með Biotex er því leik-
ur einn að fá skínandi hreinan þvott í
hvert skipti og lengja jafnframt end-
ingartíma hans.
ÞVOTTAKODDAR – EINFÖLD OG ÖFLUG NÝJUNG
Biotex er þekktast meðal Íslendinga fyrir blettaeyðinn sem hefur verið fáanlegur hérlendis um árabil. Nú er komin heil þvottaefnislína frá
Biotex sem byggist á 45 ára reynslu og sérfræðiþekkingu á blettahreinsun og þvottaeiginleikum. Þar á meðal eru svokallaðir þvottakoddar en
þeir eru algjör nýjung á íslenskum þvottamarkaði.
Biotex-þvottakoddar einfalda
heimilisþvottinn. Þú tekur bara
einn kodda og kastar honum í
tromluna með óhreina þvottinum.
Þú þarft ekki að spá í skammta-
stærðum og því fer ekkert til
spillis.
Biotex fljótandi þvottaefni fyrir
hvítan, svartan eða mislitan
þvott. Lengdu líftíma fatanna
þinna.
AUGLÝSING - NATHAN OG OLSEN KYNNIR
„Ein af uppáhaldsaðferðum mínum til að
gera villtar krullur er zúlú-hnútaaðferðin, en
með henni er hægt að gera rennislétt hár
verulega krullað. Mikilvægt er að hárið sé
hreint og algerlega þurrt áður en byrjað er
að rúlla upp. Stærðin á krullunum fer eftir
því hve stórar skiptingarnar eru. Því stærri
hnútar, því stærri krullur, en þá verður rótin
líka sléttari. Þess vegna mæli ég með því
að hafa lokkana ekki of þykka. Mikilvægt
er að úða hárlakki á hvern lokk, helst lakki
sem byggist á sykri, það er auðveldara að
greiða það úr síðar. Ég byrja á að snúa upp
á lokkana til hægri (örvhentir snúa auð vitað
til vinstri). Ég byrja að snúa neðst við rótina
og þegar nokkuð þéttur u.þ.b. 10 sentí-
metra stilkur hefur myndast (fer auðvitað
eftir hárlengd) set ég lítinn snúð á stilkinn
sem ég held með vinstri hendi og held svo
áfram að vefja lokknum niður eftir stilkin-
um. Það er mjög mikilvægt að vefja vel,
alveg út í enda, og gæta þess vel að lokk-
arnir séu bæði vel vafðir og snúnir í kring-
um stilkinn.
Þegar lokkurinn hefur verið vafinn alveg
niður þarf að festa hann með spennu, ann-
ars rekur hann sig til baka. Gæta þarf vel
að því að hnútarnir séu nokkurn veginn í
svipaðri stærð svo að krullurnar verði jafn-
ar.
Þegar búið er að rúlla upp öllu hárinu
er gott að úða ögn af hárlakki yfir allt til
öryggis. Svo er bara að bíða, fara undir
þurrku í að minnsta kosti 30 mínútur eða
að blása öðru hvoru með blásaranum yfir
hnútana. Á meðan er auðvitað upplagt
að nota tímann og mála sig. Þegar hnút-
arnir eru teknir úr er mikilvægt að byrja
neðst, rekja þá fyrst varlega í sundur og
taka síðan hvern lokk og renna fingrun-
um í gegnum hann. Gott er að vera með
ögn af serum (glansefni) á höndunum (er
bæði til sem úði og gel), þá gengur betur
að losa hnútana.“
Munið að mikilvægt er að hárið sé alveg
orðið þurrt áður en þið byrjið upprúllið og
að snúa alveg út í enda, annars verða lokk-
arnir ekki fallegir.
KRULLUR FYRIR ÞÆR SEM ÞORA
Íris Sveinsdóttir hefur um árabil kennt hárgreiðslu hér á landi sem erlendis. Nú hefur hún sett saman glæsilega hárgreiðslubók þar sem hún
kennir auðveldar greiðslur í nokkrum þrepum Bókin heitir Frábært hár og er gefin út af Veröld. Hér má sjá brot úr bókinni.
1 Það er mikil-vægt að lokk-
arnir séu allir jafn
þykkir svo að krull-
urnar verði jafnar.
2 Snúið upp á l o k k i n n
þangað til að þéttur
stilkur hefur mynd-
ast.
3 Haldið með vinstri hönd
um stilkinn og hald-
ið áfram að snúa.
4 Vefjið snún-um lokknum
niður stilkinn.
5 Vef j ið ve l a l v e g ú t
í enda og festið
með spennu.
6 Zúlú-hnútar geta verið töff
greiðsla fyrir þær sem
þora.
7 Byrjið að leysa hnútana neðst. Gott er að hafa ör-
lítið glansefni á höndunum á
meðan.
ZÚLÚ - HNÚTAAÐFERÐIN