Fréttablaðið - 09.11.2012, Page 50

Fréttablaðið - 09.11.2012, Page 50
9. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR30 30 menning@frettabladid.is Bækur ★★ ★★★ Rof Ragnar Jónasson Veröld Ragnar Jónasson hefur átt ágætis spretti í sögum sínum af lögreglu- manninum Ara sem iðkar störf sín á Siglufirði. Í Snjóblindu og Myrk- nætti náði hann sér vel á flug, fléttaði saman spennandi saka- málum og sögum af persónum sem vöktu áhuga lesandans. Því miður skortir á þetta í nýjustu bók hans, sem ber titilinn Rof. Sagan er tvíþætt. Annars vegar segir frá ungu pari í Reykjavík sem lendir í þeirri skelfilegu lífsreynslu að barni konunnar er rænt. Inn í þá atburðarás fléttast atburðir úr fortíðinni og hulunni er svipt af myrkum leyndarmálum. Á Siglu- firði situr Ari í sóttkví, en ban- væn pest hefur skotið sér niður í bænum sem er í einangrun. Tímann notar hann til að garfa í gamalli ráðgátu úr Héðinsfirði. Fréttakonan Ísrún, sem glímir við sín vandamál, kemur síðan að báðum málunum. Rof vantar alla spennu, sem er bagalegt í spennusögu. Ragnari mistekst að krækja í lesandann og fá hann til að fletta áfram, nokkuð sem hann hefur gert með ágætum áður. Þá er ýmislegt í bókinni heldur óraunhæft, sem þarf ekki að vera vont í íslensk- um spennusögum. Það sting- ur hins vegar í stúf við annað í bókinni. Hver mundi til dæmis halda því leyndu fyrir kærustu sinni að ókunnur maður sé á ferli á heimili ykkar um miðjar nætur? Ragnar hefur sýnt að hann getur búið til spennandi fléttur, en það tekst því miður ekki hér. Stílinn mætti bæta, en hann er á köflum full formlegur. Dæmi um það er þegar Ísrún liggur og veltir „meintum“ glæpum ein- hvers fyrir sér. Kannski hugsa lögfræðingar þannig einir með sjálfum sér, en trauðla aðrir. Kolbeinn Óttarsson Proppé Niðurstaða: Bókin nær sér ekki á flug og lítil spenna er fólgin í þeim málum sem glímt er við. Óspennandi spennusaga Hvati gerir skemmtilegar æfingar með börnunum HVOLPA- SPRELL ÆFINGIN SKAPAR MEISTARANN! OLGA BERGMANN OG ANNA HALLIN Listakonurnar hafa unnið saman um árabil. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Myndlistarsýningin Rek verður opnuð í Listasafni Íslands í dag. Sýningin er samstarfsverkefni þeirra Önnu Hallin og Olgu Berg- man. Sýningin Rek eftir þær Önnu Hallin og Olgu Bergman saman- stendur af stuttmynd og innsetn- ingu og byggir á litlu ævintýri um vindsæng í líki Íslands, sem rekur á fjörur nokkurra Evrópulanda. Innblástur sækja listakonurnar mestmegnis til náttúrunnar og jarðsögunnar, þar sem landreks- kenning Wegeners kemur við sögu. „Okkur langaði að vinna með líkan af Íslandi, sem er þessi vindsæng, því lögun landsins er óvenjulega mikilvæg í ímyndar- sköpun og sjálfsmynd okkar á Íslandi,“ segir Olga. „Það birt- ist meðal annars í tíðri notkun á lögun landsins í hönnun og lógóum svo dæmi sé tekið. En við erum líka að velta fyrir okkur afstæði tímans og setjum þess vegna tímarammann í samhengi við jarðsöguna. Það er sagt að jarð- flekana reki um tvo sentímetra á ári, sem er álíka hratt og neglur okkar vaxa. Lönd og landamæri verða þannig afstæð í jarðsögu- legum skilningi og líka sjálfs- mynd þjóða; jafnvel staðsetning heilu landanna verður afstæð í þessu samhengi. Við erum að leika okkur að þessu og pæling- um um ímynd.“ Miðpunktur sýningarinnar er myndskeið af vindsænginni þar sem hana rekur á milli staða og viðtöl við jarðfræðing og heim- spekinga, sem ræða annars vegar um hringrás í jarðsögunni og hins vegar um staðsetningu og ímynd; hvernig fólk staðsetur sig jafnan á einhvers konar korti, hvort heldur er landfræðilegu eða félagslegu, og í afstöðu við annað fólk. „Vindsængin, sem er táknmynd fyrir Ísland, verður eins og pers- óna og speglar hvernig sjálfs- mynd okkar er á floti og breytist eftir því í hvaða aðstæðum maður er,“ segir Olga. Þær Anna voru í vinnustofudvöl í Finnlandi þegar hugmyndin um vindsængina kom upp. Þar komust þær að því að það var engin leið að láta útbúa hana í Evrópu. „Við þurftum á endanum að láta gera hana í Kína, eftir okkar teikningum og þannig teng- ist þetta ferli beint pólitískri umræðu sem hefur verið ofarlega á baugi hér á landi.“ Olga og Anna hafa unnið saman um árabil, sýndu meðal annars í Kling og Bang í fyrra, auk þess að hafa unnið með öðrum lista- mönnum og arkitektum. Olga segir þó nokkurn mun á því að vinna einsamall og með öðrum við listsköpun. „Maður kemur meiru í verk þegar maður vinnur með öðrum og skoðar hugmyndir frá fleiri hliðum en maður hefði kannski annars gert. Á hinn bóginn fær maður ekki að ráða jafn miklu sjálfur, svo þetta hefur sína kosti og sína galla. En þetta er góð til- breyting frá einyrkjastarfinu og það er gott að hafa einhvern til að geta kastað hugmyndum á milli.“ Sýningin Rek verður opnuð í sal 2 í Listasafni Íslands klukkan 20 í kvöld og stendur til 31. des- ember. bergsteinn@frettabladid.is UPPBLÁSIN ÍMYND Á REKI MEIR‘EN AÐ SEGJA ÞAÐ! Málþing um fjölbreytt móðurmál verður haldið í Gerðubergi frá klukkan eitt til fimm í dag. Til máls taka kennarar, tvítyngd börn og sérfræðingar um fjölmenningu á borð við Kristínu R. Vilhjálmsdóttur sem flytur erindið Lifandi tungumál. Fundarstjóri er Einar Skúlason. Haustmánuðir, skammdegi og veturinn hafa verið innblástur íslenskrar myndlistar að fornu og nýju. Verk sem eru dæmi um það eru til sýnis á sýningunni Vetrar- búningur sem verður opnuð í kvöld í Listasafni Íslands. Á sýningunni gefur að líta um eitt hundrað verk; málverk, vatns- litamyndir, grafík, höggmyndir og innsetningar, svo sem litskrúð- ugan Norðurljósabar Halldórs Ásgeirssonar. Verkin, sem eru eftir breiðan hóp íslenskra lista- manna, eru öll úr safnaeign Lista- safns Íslands. Sýningarstjóri er Sigríður Melrós Ólafsdóttir. Sýningin stendur yfir í svartasta skammdeginu eða allt til janúar- loka. Vetrarbúningur Vindsængin, sem er táknmynd fyrir Ísland, verður eins og persóna og speglar hvernig sjálfsmynd okkar eru á floti.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.