Fréttablaðið - 09.11.2012, Qupperneq 58
9. nóvember 2012 FÖSTUDAGUR38
sport@frettabladid.is
HANDBOLTI Íslandsmeistarar Vals
í kvennahandboltanum fá stórt
próf í kvöld og á morgun þegar
rúmenska liðið H.C. Zalau mætir
á Hlíðarenda og spilar tvo leiki í 2.
umferð EHF-bikarsins. Rúmensku
stelpurnar fóru alla leið í úrslita-
leik keppninnar í fyrravetur en
Valskonur eru á heimavelli og hafa
á móti unnið alla ellefu leiki sína á
tímabilinu.
Meiddist á hné á æfingu
Það er þó ekki öruggt að Valskon-
ur geti teflt fram sínu sterkasta
liði í leikjunum. Stórskyttan Þor-
gerður Anna Atladóttir meiddist
á hné fyrir sjö dögum og var ekk-
ert með í sigrum liðsins á Selfossi
og FH í vikunni.
„Ég var að koma úr mynda-
töku,“ sagði Þorgerður Anna
þegar Fréttablaðið heyrði í henni
í gær. „Ég meiddi mig í hnénu
á æfingu á föstudaginn. Ég reif
smá í liðþófanum í janúar og það
er möguleiki á því að rifan hafi
bara stækkað aðeins. Ég vona
bara að þetta sé lítið eða ekkert,“
sagði Þorgerður Anna sem þarf
að bíða eftir niðurstöðu læknis-
ins um hvort þetta sé eitthvað
sem geti versnað eða hvort það sé
í lagi fyrir hana að spila leikina.
„Það eru tveir leikir í næstu
viku og svo er landsliðið að hitt-
ast eftir tíu daga. Þetta er ekki
alveg besti tíminn til að meiða
sig,“ segir Þorgerður sem hefur
verið í stuði í vetur.
„Ég er búin að finna mig mjög
vel síðan að tímabilið byrjaði
og þetta er því mjög leiðinlegur
tímapunktur,“ segir Þorgerður
sem er orðin þreytt á öllum þess-
um meiðslum sem banka reglu-
lega upp á hjá henni. „Þetta fer
nú að taka bráðum á sálarlífið. Ég
er bara tvítug og líst ekki alveg
nógu vel á þetta. Ég vona bara
að ég sé að fara að klára minn
pakka,“ segir Þorgerður Anna.
Hefur alltaf rétt fyrir sér
Þorgerður Anna Atladóttir var
markahæst í fyrstu fjórum leikj-
um eftir að pabbi hennar, Atli
Hilmarsson, gerðist aðstoðar-
þjálfari Valsliðsins. Þar á meðal
skoraði hún fimmtán mörk í
tveimur Evrópusigrum á Valencia
á Spáni.
„Það skiptir mig engu svaka-
legu máli. Hann mætir á alla
leiki og hefur gríðarlegan áhuga
á þessu. Við tölum um þetta allt
saman hvort sem hann er þjálf-
arinn minn eða ekki,“ segir Þor-
gerður og það er ekkert talað
meira en áður um handbolta á
heimilinu. „Nei, við tölum ekk-
ert meira um handbolta núna. Við
sitjum alveg við kvöldmatarborð-
ið og tölum um eitthvað annað.
Hann hefur þjálfað mig áður og
er líka svo rólegur. Það er eig-
inlega það versta að hann hefur
eiginlega alltaf rétt fyrir sér og
það þýðir ekkert að rökræða við
hann,“ segir Þorgerður Anna.
Ellefu sigrar í ellefu leikjum
Valsliðið er búið að vinna alla ell-
efu leiki tímabilsins, sjö í deild,
tvo í Evrópukeppni, einn í meist-
arakeppninni og svo úrslitaleikinn
í Reykjavíkurmótinu.
„Þetta hefur gengið mjög vel
en samt erum við ekki alveg nógu
sáttar. Við viljum meira og það
er fullt af hlutum sem má laga
í okkar leik. Við þurfum að ein-
beita okkur að því að laga þessa
hluti því það þurfa allir hlutir að
vera í lagi hjá okkur um helgina.
Við þurfum líka að fylla Vodafone-
höllina og búa til alvöru stemn-
ingu og fá fullkominn leik,“ segir
Þorgerður Anna um leikinn á móti
rúmenska liðinu.
„Þetta verður ekki auðvelt en
það eru möguleikar hjá okkur.
Við bjuggumst ekki við því að það
mundi ganga svona vel á Spáni,“
segir Þorgerður Anna og bætir
við: „Við erum búnar að sjá á
myndböndum að þær eru ógeðs-
lega stórar. Við þurfum að fá geð-
veika vörn og markvörslu og fá
okkar hraðaupphlaup. Við ætlum
að reyna að stríða þeim aðeins
með hraðanum okkar,“ segir Þor-
gerður Anna en Valsliðið fór á
kostum í fyrstu umferðinni þegar
það sló út spænska liðið Valencia
Aicequip 27-22 og 37-25.
„Við vorum með bilaða trú
á þessu og það var ógeðslega
gaman að fá að spila á móti liði
sem maður þekkti ekki og vissi
því ekkert hvað maður væri að
fara út í. Það gerði sigrana enn
þá skemmtilegri,“ sagði Þorgerð-
ur Anna og Valsstelpurnar hafa
vissulega unnið sér inn góðan
stuðning í Vodafone-höllinni í dag
og á morgun.
Verð alltaf með
Fyrri leikurinn fer fram klukkan
19.30 í kvöld og telst vera
heimaleikur Vals en heimaleikur
H.C. Zalau fer fram á sama stað
klukkan 16.00 á morgun. En hvað
með Þorgerði, verður hún í búning
í Vodafone-höllinni í kvöld?
„Ég held ég verði alltaf með,“
sagði Þorgerður hlæjandi en
bætti svo við. „Ég vona að ég
fái jákvæðar fréttir. Ég bíð við
símann í dag og á morgun og bíð
eftir svörum,“ sagði Þorgerður að
lokum. ooj@frettabladid.is
DOMINOS-DEILD KARLA verður á ferðinni í kvöld en þá fara fram tveir áhugaverðir leikir. Húnarnir frá
Njarðvík sækja þá KR-inga heim en pressa er á KR-ingum eftir slaka byrjun á tímabilinu. Svo eru Stjörnumenn á
heimavelli gegn ÍR. Báðir leikir hefjast klukkan 19.15.
Við ætlum að reyna
að stríða þeim aðeins
með hraðanum okkar.
ÞORGERÐUR ANNA ATLADÓTTIR
LEIKMAÐUR KVENNALIÐS VALS
Allt um leiki
gærkvöldsins
er að fi nna á
ÞÆR ERU ÓGEÐSLEGA STÓRAR
Valskonan Þorgerður Anna Atladóttir ætlar ekki að láta hnémeiðsli koma í veg fyrir að hún geti spilað á
móti rúmenska stórliðinu H.C. Zalau í tveimur Evrópuleikjum í Vodafone-höllinni í kvöld og á morgun.
Valskonur eru búnar að vinna alla ellefu leiki tímabilsins til þessa og eru til alls líklegar í leikjunum.
VERÐUR HÚN MEÐ? Þorgerður Anna Atladóttir er búin að vera frábær í vetur en
meiddist fyrir viku. Hún ætlar sér að spila í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs-
son hefur komið sér vel fyrir hjá
Þýskalands- og Evrópumeisturum
THW Kiel en þangað kom hann nú
í sumar. Liðið er nokkuð breytt frá
síðustu leiktíð en það er þó enn
taplaust á tímabilinu. Nú síðast
komu góðir sigrar gegn sterkum
liðum Hamburg og Flensburg.
„Mér persónulega hefur geng-
ið vel að aðlagast nýju liði enda
er það oft auðveldara fyrir okkur
hornamennina en aðra leikmenn.
Við getum alltaf laumað okkur í
okkar hraðaupphlaup,“ segir hann
við Fréttablaðið. „Það er auðvitað
gaman að spila með þessu liði –
þetta er frábær klúbbur og mann-
skapurinn sömuleiðis.“
Óhætt er að fullyrða að félagið
hafi minnst tvo leikmenn í heimsk-
lassa í hverri stöðu en Guðjón
Valur deilir sinni stöðu með þýska
landsliðsmanninum Dominik
Klein.
„Ég þekki það vel að spila í
liðum þar sem ríkir samkeppni í
stöðum og er það ekkert óvenju-
legt. Ég væri auðvitað til í að spila
hverju einustu mínútu en miðað
við hvað það er mikið álag í hand-
boltanum í dag, með tilheyrandi
ferðalögum, snýst þetta meira um
samvinnu á milli leikmanna en
samkeppni,“ áréttar hann.
„Heilt á litið er ég búinn að spila
ívið meira en hann og ég er mjög
sáttur við mína stöðu,“ segir Guð-
jón Valur.
Hann segir erfitt að neita því
að Kiel sé besta lið sem hann hafi
spilað með á ferlinum. „Liðið er
ríkjandi Þýskalandsmeistari, bik-
armeistari og Evrópumeistari og
það væri erfitt fyrir mig að segja
eitthvað annað. Ég hef spilað með
mörgum góðum handboltamönnum
um árin en í Kiel eru allir góðir.
Þetta er án nokkurs vafa besta lið
sem ég hef æft og spilað með.“
Alfreð Gíslason er þjálfari liðs-
ins en Guðjón Valur þekkir vel til
hans, enda spilað undir hans stjórn
í bæði Gummersbach og íslenska
landsliðinu.
„Hann er enn sami maðurinn
og sami þjálfarinn,“ segir Guð-
jón Valur. „Hann hefur úr meiru
að moða núna og er með betri leik-
menn í höndunum. Annars ætla
ég ekki að segja of mikið jákvætt
eða neikvætt um hann,“ segir hann
sposkur á svip. „Það kemur allt í
bakið á mér,“ bætir hann við og
hlær.
- esá
Guðjón Valur Sigurðsson er ánægður með dvölina hjá Þýskalandsmeisturum THW Kiel:
Samvinnan mikilvægari en samkeppnin
ÞURRKAR SVITANN Guðjón Valur er hér í leik með Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í hand-
bolta. NORDICPHOTOS/GETTY
N1-deild karla:
Akureyri-Valur 23-27
Akureyri - Mörk (skot): Bjarni Fritzsson 6/2 (11/3),
Guðmundur H. Helgason 5 (10), Bergvin Þór
Gíslason 4 (4), Geir Guðmundsson 4 (11), Andri
Snær Stefánsson 2 (4), Friðrik Svavarsson 1 (2)
Varin skot: Jovan Kukobat 10 (29/1, 34%), Stefán
Guðnason 2/1 (10/2, 20%)
Valur - Mörk (skot): Þorgrímur Smári Ólafsson 8
(10), Valdimar Fannar Þórsson 7/1 (12/1), Finnur
Ingi Stefánsson 4/1 (7/2), Vignir Stefánsson 3 (3),
Sveinn Aron Sveinsson 3 (6), Atli Báruson 1 (1)
Varin skot: Hlynur Morthens 24 (45/2, 53%),
Lárus Helgi Ólafsson 2/1 (4/1, 50%),
ÍR-HK 31-22
ÍR - Mörk (skot): Sturla Ásgeirsson 9/5 (10/5),
Ingimundur Ingimundarson 8 (11), Guðni Már
Kristinsson 6 (10), Sigurjón Friðbjörn Björnsson
3 (4), Jón Heiðar Gunnarsson 3 (4), Halldór Logi
Árnason 1 (1), Björgvin Hólmgeirsson 1 (8).
Varin skot: Kristófer Guðmunds. 24 (46/2, 52%),
HK - Mörk (skot): Bjarki Már Elísson 5/2 (8/2),
Vladimir Djuric 5 (10), Ólafur Víðir Ólafsson 3 (5),
Eyþór Már Magnússon 3 (6), Leó Snær Pétursson
2 (3), Daníel Berg Grétarsson 2 (4), Atli Karl
Bachmann 1 (3), Bjarki Már Gunnarsson 1 (4)
Varin skot: Björn Ingi Friðþjófsson 12 (32/3, 38%),
Arnór Freyr Stefánsson 1 (12/2, 8%),
Fram-Afturelding 24-29
Fram - Mörk (skot): Sigurður Eggertsson 10 (16),
Þorri Björn Gunnarsson 4 (5), Jóhann Gunnar Ein-
arsson 4 (10/2), Elías Bóasson 2 (2), Ægir Hrafn
Jónsson 1 (1), Ólafur Magnússon 1 (1), Haraldur
Þorvarðarson 1/1 (2/1), Stefán Stefánsson 1 (3/1
Varin skot: Magnús Erlendsson 4 (18/2, 22%),
Björn Viðar Björnsson 3/1 (18/4, 17%),
Afturelding - Mörk (skot): Jóhann Jóhannsson
8/5 (10/6), Sverrir Hermannsson 5 (8), Örn Ingi
Bjarkason 4 (4), Benedikt Reynisson 4 (7), Hilmar
Stefánsson 3 (6), Einar Héðinsson 2 (2), Fannar
Helgi Rúnarsson 2 (3)
Varin skot: Davíð Svansson 13/2 (37/3, 35%),
STAÐAN:
Haukar 6 5 1 0 166-137 11
Akureyri 7 3 1 3 173-175 7
FH 6 3 1 2 150-149 7
ÍR 7 3 1 3 183-188 7
Fram 7 3 1 3 187-196 7
Valur 7 2 2 3 166-170 6
HK 7 2 1 4 165-179 5
Afturelding 7 2 0 5 171-177 4
Dominos-deild karla:
KFÍ-Þór 84-128
KFÍ: Kristján Andrésson 24, Mirko Virijevic 15,
Bradford Harry Spencer 13, Momcilo Latinovic 10,
Pance Ilievski 7, Leó Sigurðsson 6, Haukur Hreins-
son 4, Óskar Kristjánsson 3, Jón Baldvinsson 2.
Þór Þ.: Benjamin Curtis Smith 25, Grétar Ingi
Erlendsson 19, Darri Hilmarsson 18, Guðmundur
Jónsson 17, Robert Diggs 14, Baldur Þór Ragnars-
son 13, Darrell Flake 11, Emil Karel Einarsson 7.
Fjölnir-Snæfell 95-102
Fjölnir: Sylverster Cheston Spicer 27, Jón
Sverrisson 20, Arnþór Freyr Guðmundsson 19,
Tómas Tómasson 14, Árni Ragnarsson 13.
Snæfell: Jón Ólafur Jónsson 32, Asim McQueen
25, Jay Threatt 17, Ólafur Torfason 16, Sveinn Arnar
Davidsson 8, Hafþór Ingi Gunnarsson 2.
Tindastóll-Keflavík 84-92
Tindastóll: George Valentine 16, Þröstur Leó
Jóhannsson 15, Helgi Freyr Margeirsson 13, Helgi
Rafn Viggósson 10, Drew Gibson 9, Hreinn Gunnar
Birgisson 6, Friðrik Hreinsson 6, Svavar Atli Birgis-
son 5, Sigtryggur Arnar Björnsson 4.
Keflavík: Darrel Keith Lewis 22, Michael Craion 21,
Valur Orri Valsson 18, Magnús Þór Gunnarsson 14,
Kevin Giltner 12, Andri Daníelsson 3.
Skallagrímur-Grindavík 86-93
Skallagrímur: Haminn Quaintance 23, Páll Axel
Vilbergsson 21, Carlos Medlock 17, Orri Jónsson 9,
Sigmar Egilsson 9, Trausti Eiríksson 5.
Grindavík: Samuel Zeglinski 25, Aaron Broussard
23, Sigurður Þorsteinsson 17, Jóhann Ólafsson 12,
Þorleifur Ólafsson 10, Davíð Bustion 6
STAÐAN:
Snæfell 6 5 1 622-534 10
Stjarnan 5 4 1 477-442 8
Grindavík 6 4 2 587-546 8
Skallagrímur 5 3 2 428-403 6
Keflavík 6 3 3 508-503 6
Þór Þ. 5 3 2 459-420 6
Fjölnir 6 3 3 497-513 6
ÍR 5 2 3 427-450 4
KR 4 2 2 328-349 4
KFÍ 6 2 4 496-587 4
Njarðvík 5 1 4 427-463 2
Tindastóll 5 0 5 387-433 0
ÚRSLIT