Fréttablaðið - 02.01.2013, Síða 14

Fréttablaðið - 02.01.2013, Síða 14
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÁ DEGI TIL DAGS A gnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, varpaði fram áhugaverðri hugmynd í sinni fyrstu nýárspredikun í Dómkirkjunni í gær. Hún lagði þar til að þjóðkirkjan hefði forystu um söfnun fyrir betri tækjakosti Land- spítalans. Biskupinn benti á að Landspítalinn værir fyrir alla sem byggju í landinu. „Þjóðkirkjan er líka fyrir okkur öll sem búum í þessu landi. Þess vegna vill kirkjan taka þeirri áskorun að vera leiðandi í söfnun til tækja- kaupa á Landspítalanum í sam- ráði við stjórnendur spítalans. Samtakamáttur þjóðarinnar hefur einatt skilað miklum árangri,“ sagði hún. Fréttablaðið fjallaði á síðasta ári mikið um tækjaskortinn á Landspítalanum. Í þeirri umfjöllun kom meðal annars fram að stórum hluta tækjakostsins væri haldið gangandi með sífelldum viðgerðum. Dæmi væru um að tækjum væri tjaslað saman með límbandi. Björn Zoëga, forstjóri spítalans, sagði að það hefði komið fyrir að fresta varð krabbameinsmeðferð vegna þess að bæði geislatæki spítalans voru biluð á sama tíma. Talið hefur verið að Landspítalinn þyrfti 2-3 milljarða króna til að endurnýja tækjakost sinn með viðunandi hætti á þessu og síðasta ári. Verulega vantar upp á það í fjárveitingum Alþingis til spítalans, þótt eitthvað hafi verið komið til móts við þörfina bæði í fjáraukalögum síðasta árs og fjárlögum þessa. Vand- ræðaástand blasir því áfram við. Okkur hættir stundum til að hugsa sem svo að með skött- unum okkar, sem flestum þykja nógu háir, sé flestum þörfum í velferðarþjónustunni mætt. Auðvitað er það samt ekki svo og margvísleg starfsemi reiðir sig á bein framlög frá almenningi, auk fjárveitinga af fjárlögum. Áratugum saman hefur það raunar verið svo að stór hluti af nýjum tækjum á Landspítalanum hefur verið keyptur fyrir gjafa- og söfnunarfé einstaklinga og margvíslegra félaga- samtaka, sem hafa unnið mikið og óeigingjarnt starf. Núna er þörfin hins vegar svo brýn og ástandið svo slæmt, að full ástæða er til að efna til þjóðarátaks á borð við það sem Agnes biskup leggur til. Það er vel til fundið af forystu þjóðkirkjunnar að beita sér fyrir þjóðþrifamáli eins og þessu. Það er liður í því að kirkjan færi sig nær almenningi og taki beinan þátt í að vinna að margs konar góðum málum, sem snerta almannahag. Engum stendur nær en kirkjunni að minna á hlutverk sam- kenndar og samhjálpar í þjóðfélaginu. „Samkennd er nauðsyn- leg í samfélagi okkar. Hún minnir okkur á ábyrgð okkar gagn- vart hvert öðru og á það að hver og einn einstaklingur getur haft áhrif,“ sagði Agnes Sigurðardóttir í nýárspredikuninni. Það er rétt hjá biskupi. Í myndarlegu þjóðarátaki í þágu Landspítalans er hægt að virkja samtakamáttinn og tryggja að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því, þurfi vinur okkar eða ættingi á þjónustu spítalans að halda, að tækin séu ekki til eða virki ekki sem skyldi. FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is og Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is DÆGURMÁL: Kjartan Guðmundsson kjartan@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Nú um jólin fögnuðu aðdáendur enska skáldjöfursins J.R.R. Tolkiens frumsýn- ingu á mynd sem byggð er á bók hans um hobbitann Bilbó Bagga. Bókin kom út fyrir margt löngu og hefur heillað jafnt börn sem fullorðna. Eins og kunnugt er þá leitaði höfundurinn víða fanga við smíði Hobbitans, m.a. í íslenskum forn- bókmenntum. Nöfn dverganna eru m.a. fengin úr Eddukvæðum og sjálfur var Tolkien mikill aðdáandi íslenskrar tungu. Það er því sjálfsögð kurteisi við þennan snilling enskra bókmennta að þýðingar á verkum hans á íslensku séu vel úr garði gerðar. Þetta á ekki síður við um þýðingar á kvikmyndum sem byggðar eru á bókum Tolkiens. Óhætt er að segja að þýðingin á kvik- myndinni Hobbitanum hafi ekki tekist sem skyldi. Satt að segja leynast þar fjölmarg- ar ambögur og víða gætir herfilegs mis- skilnings á frumtexta, svo mikils að jafn- vel meðaljónar í enskri tungu eru furðu lostnir. Hér skulu nefnd fáein dæmi. Gand- álfur segir við ferðafélaga sína: „Áum hér“ þegar ætlunin er að æja, ætti sem sagt að vera: æjum hér. Gandálfur spyr sig líka eins og unglingur að því „hvað sé í gangi“ þegar hann reynir að átta sig á því hvað sé um að vera. Margsinnis eru ensk orð þýdd beint á íslensku án þess að hirt sé um ólíka merkingu orðanna. Þannig færir Gandálfur Bilbó sverð, „a sword of your size“ eða sverð sem hæfir smæð hobbit- ans. Í íslensku þýðingunni segir: „Sverð á stærð við þig“. Ein aðalpersónan meðal dverga er Thorin Oakenshield eða Þórinn Eikinskjöldur. Ekki verður betur séð en að nafn Eikinskjaldar komi fyrir óbeygt eða jafnvel sem Eikinskjölds í eignarfalli. Þannig mætti lengi telja. Eins og siður er í bókum Tolkiens bregða dvergar fyrir sig bundnu máli. Þýðandanum virðist kunnugt um ljóð- stafi í íslensku en kann ekki að nota þá. Þannig eru ýmist engir stuðlar né höfuð- stafir í ljóðlínum eða ofstuðlunin keyrir um þverbak; sami samhljóði er notaður í næstum hverju orði einnar braglínu. Þetta hefði Tolkien aldrei sætt sig við fyrir hönd íslenskrar tungu. Það er tillaga mín að þeir sem eiga sæmd Tolkiens sem höfundar að verja hér á landi láti laga þýðinguna á kvikmyndinni eða stöðvi sýningu hennar að öðrum kosti. Slíkt virðingarleysi við frábæran rithöf- und á borð við J.R.R. Tolkien er okkur Íslendingum ekki sæmandi. Í það minnsta ætti Reykjavík, bókmenntaborg UNESCO, að firra sig slíkri lágkúru. Tolkien sýnd nægileg virðing? MENNING Gunnsteinn Ólafsson tónlistarmaður Velkomin í núið – frá streitu til sáttar Byggt á Mindfulness-based Cognitive Therapy sem tvinnar saman aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og sálfræði austrænnar visku. Námskeiðið er í 8 vikur á Hilton Reykjavík Nordica kl.17:30 til 19:00. Innifalið er geisladiskur með árvekniæfingum og handbók Skráning er hjá Nordica Spa í síma 444 5090 og á http://nordicaspa.is Verð: 49.000 kr. Meðlimir Nordica Spa fá 10% afslátt Næstu námskeið verða: 9. janúar. Leiðbeinendur verða Anna Dóra Frostadóttir og Guðbjörg Daníelsdóttir sálfræðingar. 27. febrúar. Leiðbeinendur verða Herdís Finnbogadóttir og Margrét Bárðardóttir sálfræðingar. N Á M S K E I Ð Innifalið 1 vika ók eypis aðgangur í alla opn a tíma Nord ica Spa, gufu og h eita potta Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is Biskup vill safna fyrir betri tækjum Landspítala: Söfnun undir merki samkenndar Ekki óvænt Guðfríður Lilja Grétarsdóttir er hætt á þingi frá með gærdeginum. Það þarf ekki að koma neinum á óvart – hún hefur strítt við ríkisstjórnina í hverju málinu á fætur öðrum, ver- ið jaðarsett í þingflokki Vinstri grænna svo til allt kjörtímabilið og átti þar fáa bandamenn undir það síðasta eftir að þremenn- ingarnir Atli, Ásmundur og Lilja hurfu á braut. Í apríl 2011 kom Guðfríður Lilja úr fæðingaror- lofi og var um leið sett af sem þingflokksformaður Vinstri grænna. Það hefur líklega ekki aukið ánægju hennar. Tvær vinnur ei meir Það er samt ekki svo að Guð- fríður hafi ekkert að gera. Hún var nefnilega ráðin í vinnu í sumar sem leið við að kortleggja mannrétt- indamál fyrir innanríkis-, utanríkis- og velferðarráðu- neytið. Það er býsna óvenjulegt að sitjandi þingmenn séu ráðnir í vinnu við þess- lags verkefni og kannski er ágætt að hún þurfi ekki lengur að sinna tveimur störfum sam- tímis. Árangurslítið Gegnumgangandi stef í Áramóta- skaupi sjónvarpsins var ádeila á umræðuhefðina á netinu, dónaskap og gífuryrði. Til að glöggva sig á kveikjunni að því gríni þurfti ekki annað en að fara á netið eftir að Skaupinu lauk og lesa skoðanir manna á því. Það var ekki að sjá að margir hefðu tekið ofanígjöfina til sín. stigur@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.