Fréttablaðið - 02.01.2013, Page 18

Fréttablaðið - 02.01.2013, Page 18
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| SKOÐUN | 18 Fyrir liðlega eitt hundrað árum setti Albert Einstein fram kenningu sína: E=mc². Efni er orka. Grundvöllur lífsins er orka. Albert Ein- stein spáði því að lækning- ar framtíðar snerust um að leiðrétta orkusvið frum- unnar. Brenglun orkusviðs leiðir til sjúkdóma. Marg- ir Nóbelshafar hafa spáð eins og meistarinn. Það er talið að 95% allra sjúk- dóma megi rekja til streitu. Nei- kvæðar tilfinningar valda streitu og brengla orkusvið. Afleiðingin er órökvís hegðun. Fólk er leiksoppur neikvæðra tilfinninga. Það kann að vilja vel en er ekki sjálfrátt. Það var árið 1905 sem Einstein setti fram kenninguna um efni og orku. Samt ól 20. öldin af sér mestu illmenni mannkynssögunnar; Hitler og Stalín. Kommúnistar og nasist- ar rændu völdum þegar Þýskaland og Rússland loguðu stafna í milli. Vald í Moskvu og Berlín var án hirðis. Siðblint hugarfar komst til valda. Kommúnistar hlekktu þjóð- ir í fátækt, nasistar fóru með stríði. Báðir ismar hötuðust við velgengni og ofsóttu eigendur veraldlegra gæða. Stalín og Hitler voru siðblindir nei-hugar, bullur sem gerðu út á hinn lokaða huga fátæktarvitundar sem jafnan selur sig undir öflugasta nei-ið sem þó tortímir sér að lokum. Hugarfar fátæktarvitundar ríkti í Evrópu. Útkoman var ofsafengið stjórnlyndi. Nei ómaði milli fjalls og fjöru. Um álfuna fór kerling í tötrum með Drekann frá Niðafjöll- um í bandi og dæturnar Ágirnd og Öfund og synina Spuna og Hrotta. Það var myrkur í mannheimum. Fátæktarvitund einkenndi ismana; ofríki, ágirnd, öfund, reiði og illska. Nei-hugur hatast við lýðræði. 20. öldin var öld öfganna. Evrópa var leiksoppur neikvæðra tilfinninga, veröldin öll. Þegar allt kom til alls voru þeir Stalín og Hitler bara að agta út neikvæðar tilfinningar. Þegar allt kemur til alls er illska bara birtingarform nei- kvæðra tilfinninga. Lífsorkan í sinni tær- ustu mynd er kærleikur en neikvæðar tilfinningar blokk era flæði lífsorkunn- ar. Hinn opni hugur leitar í ljósið en hinn lokaði hugur í myrkrið. Þetta er lögmál lífsins. Sigmund Freud kall- aði nei afl dauða og illsku. Kristur boðaði að lífsorkan væri kærleikur. Mannkyn er enn eina ferðina að reisa múra, stöðugt hærri múra þó sá illræmdasti hafi fallið fyrir tæpum aldarfjórðungi. Stjórnlynd öfl eru í sókn. Í Brussel er vald án hirðis. Evrópa leikur sér enn að eldi. Þangað sækir stjórnlynt fólk eins og flugur í ljós. Við þessu er varað í Váfugli. Af spunarokkum Eftir að áhrifamesti bísniss- mógull landsins lenti fyrir ára- tug í klóm réttvísinnar tók hann að safna fjölmiðlum. Hann eign- aðist Fréttablaðið, Stöð 2, Bylgj- una, DV og fjölda tímarita. Hann gerði bandalag við pólitísk öfl sem eiga stjórnlyndi og ofríki að lögfesti; öfl með nei sem heim- ilisfesti. Hann leitaði í myrkrið og eignaðist öfluga bandamenn. Hámarki náði spuninn þegar starfsmenn Baugsmiðla lögðu ban- ana að Alþingi, húsbónda sínum til stuðnings. Þeir þöndu rokkinn ásamt Ríkisútvarpinu. Þeir mögn- uðu upp neikvæða orku. Nú situr nei í söðli íslensks samfélags og rekur hjörðina í réttir. Helsta markmið þeirra sem sitja við rokkana í Skaftahlíð og Efsta- leiti er að koma Íslandi í ESB sem er að verða stórríki. Allt er gert til þess að draumurinn rætist þó þjóðin sé full efasemda. Kolbeinn Proppé, blaðamaður Fréttablaðs- ins, sakar mig um að vera með evrófóbíu. Það auðvitað eru for- dómar blaðamanns. Ef ESB væri bandalag um frjálsa markaði með frelsi í öndvegi þá væri ég fyrstur til að styðja aðild Íslands að ESB. Svo er því miður alls ekki. Hingað kom á dögunum bresk þingkona sem sagði: „Lýðræði er of dýrmætt að glata.“ Hún varaði okkur við „Brussel-maskínunni“ sem hún segir að sé ólýðræðisleg. Bretar eru fullir efasemda um þróun mála í Brussel sem stöð- ugt sogar til sín meira vald. Tveir af hverjum þremur vilja út. Auð- vitað vildu hvorki Baugsmiðlar né RÚV ræða við Kate Hoey. Þeir taka ekki málefnalega rökræðu en eru áróðurs stofur stjórnlyndra afla. Það er misskilningur hjá Kol- beini Proppé að Evrópusambandið sé váfugl í samnefndri sögu minni. Það er mikill misskilningur. Váfugl- inn býr djúpt, djúpt í myrkviðum mannlegrar vitundar. Váfuglinn unnir sér aldrei hvíldar. Váfugl í véum kreppir lýðræði vald án hirðis, vá fyrir dyrum. Vargur dritar í hreiður þjóðar. En ljósið vinnur alltaf. Viðsnún- ingurinn hefst þegar spádómur Einsteins rætist. Þá byrjar mann- kyn að vinda ofan af neikvæðum til- finningum og múrar hrynja. Þekk- ingin er komin til mannheima. Gott væri ef þingmenn hæfust handa að vinda ofan af eigin neikvæðum til- finningum í stað þess að agta þær út við Austurvöll. Þá á forsætisráðherra ekki á hættu að vera kýldur í þingsal né verður efnt til pólitískra réttar- halda. Eða forsætisráðherra hlaupi á eftir villiköttum á göngum þing- hússins. Af Einstein og spunarokkum Betsson er fyrirtæki sem býður viðskiptavinum um allan heim spilaþjónustu á netinu frá höfuðstöðvum sínum á Möltu. Við teljum rétt að segja okkar skoðun á nýlegu frumvarpi innan- ríkisráðherra Íslands um breytingar á happdrættis- lögum landsins en fjalla líka um algengan mis- skilning um spilamennsku á netinu og útskýra fyrir hvað Betsson stendur sem fyrirtæki. Ef tilgangur frumvarps innan- ríkisráðherra á að vera vernd fyrir þá sem spila á netinu þá mun það óhjákvæmilega mistakast eins og hefur sýnt sig annars staðar. Það er líka ástæðan fyrir því að Dan- mörk, Bretland, Eistland, Ítalía, Frakkland, Belgía, Þýskaland, Sví- þjóð, Holland og Spánn hafa breytt (eða munu breyta) fyrri einkarétt- arstöðu og hafa innleitt leyfiskerfi án mismununar undir innlendri stjórn. Slík kerfi eru ekki aðeins í flestum tilvikum í samræmi við evrópsk lög heldur tryggja þau að sem flestir spili á netsvæð- um sem heyra undir lög og eftir- lit hvers lands, og hafi að auki val um hvert þeir kjósa að beina við- skiptum sínum. Vernd notenda Megintilgangur þessara laga- breytinga í Evrópu er vernd not- enda sem fer að fullu saman við gildi og skuldbindingar Bets- son. Árið 2009 fékk Bets- son æðstu viðurkenningu leikjageirans fyrir félagslega ábyrga starfsemi. Við leitumst stöðugt við að vera í forystu á því sviði. Betsson AB, hið sænska móður- félag Betsson Möltu, býr yfir 50 ára sögu og er skráð í Norrænu kauphöllinni OMX í Stokkhólmi. Betsson Malta er undir strangri stjórn Lottó og spilayfirvalda Möltu (LGA) sem felur til dæmis í sér að sjóðir viðskiptavina eru aðskildir. Við erum einnig með staðbundin leyfi í Danmörku, Eist- landi og Ítalíu með álíka eða jafn- vel enn strangari reglum. Enda er öryggi viðskiptavina Betsson mjög mikið. Við erum í stöðugum viðræðum við stjórnvöld víða um hvernig hægt er að útfæra reglusetningu á netspilamennsku á ábyrgan og árangursríkan hátt. Við von- umst til að einhvern daginn gef- ist tækifæri á slíku samráði við íslensk stjórnvöld til hagsbóta fyrir íslenska notendur og skatt- greiðendur. Ábyrg spilamennska með Betsson EVRÓPUMÁL Hallur Hallsson höfundur Váfugls SPILAMENNSKA Ulrik Bengtsson forstjóri Betsson Opið svarbréf til fv. for- manns Nesklúbbsins, Eggerts Eggertssonar. Sakleysislegur saman- burður minn á tekjum Nes- klúbbsins sem ég tilheyri og tekjum Nesprestakalls þar sem ég þjóna virðist hafa valdið þér nokkru hugarangri. Lunginn í grein þinni er góð kynning á starfi klúbbsins en inn- gangurinn er lítið annað en misskilningur og þar örlar einnig á fordómum gagnvart kirkjunni. Ekkert í minni grein var hugsað sem gagnrýni á starf Nesklúbbsins og því kom það mér á óvart að þú skyldir bregðast við með þessum neikvæða hætti og nota tækifærið til að gagnrýna Þjóðkirkjuna, elstu þjónustustofnun þjóðarinnar, sem yfirgnæfandi meirihluti lands- manna tilheyrir. Ríkið í samkeppni við trúfélög Markmið mitt með greininni var að sýna fram á hvað rekstur ann- arrar stærstu sóknar í Reykjavík kostar í raun lítið. Samanburður- inn er Nesklúbbnum í hag því þar sést svart á hvítu hverju fámennur hópur getur áorkað sé brennandi áhugi fyrir hendi. Ég hefði einnig getað sýnt fram á að heildartekjur Nesprestakalls væru álíka miklar og laun fjögurra einstaklinga sem hver um sig hefur eina milljón á mánuði og þeir eru fleiri í þjóð- félaginu en margan grunar. Þú talar um ríkiskirkju og það sýnir að þú hefur ekki lesið grein- ar mínar af nógri athygli. Ríkið innheimtir sóknargjöld fyrir öll trúfélög, múslíma, ásatrúarmenn, bahá’í-söfnuðinn, aðventista, hvíta- sunnusöfnuði, söfnuði kaþólsku kirkjunnar, fríkirkjur af ýmsu tagi, Þjóðkirkjuna o.fl. Vilt þú þar með kalla þessi félög ríkistrúfélög vegna þjónustunnar sem ríkið veitir þeim? Þú gagnrýnir að börn séu skráð í trúfélög og verði að greiða sóknar- gjald til trúfélags þegar þau eldast. Skv. lögum tilheyra börn trúfélagi móður eða eru utan trú- félaga sé hún það. En hvað greiðslu varðar þá er það rangt að þau þurfi full- orðin að greiða til trúfélags gegn vilja sínum eins og sannast á þér sjálfum. Hér áður fyrr rann gjald þeirra sem kjósa að vera utan allra skráðra trúfélaga í sérstakan sjóð hjá Háskóla Íslands en þessu var breytt illu heilli af löggjafanum og rennur gjaldið nú í ríkissjóð. Ríkið er þar með komið í samkeppni við trúfélög í landinu. Gjaldið er sem nemur verði tveggja til þriggja kaffibolla á mánuði. Þá tel ég það jákvætt að fólki utan trúfélaga sé gert að greiða lítilræði til göfugra málefna eins og var gert með hinu eldra fyrirkomulagi en er andvíg- ur núverandi kerfi. Kostnaðarsöm innheimta Börn eru oft skráð í íþróttafélög og fjöldi barna sem ég skíri í Vest- urbænum er kominn í KR-bún- ing áður en þau losna úr bleyju. Íþróttafélög fá gríðarlegar upp- hæðir úr opinberum sjóðum. Mörg stór íþróttamannvirki eru byggð af hinu opinbera en kirkjur af söfn- uðunum sjálfum. Konurnar sem bökuðu og prjónuðu á 5. og 6. ára- tug liðinnar aldar og seldu afurðir sínar og karlarnir sem gáfu vinnu sína byggðu Neskirkju ásamt öðrum sóknarbörnum sem greiddu sitt félagsgjald. Þú segir: „Ef trúfélög og þá sér- staklega Þjóðkirkjan vill hafa golf- hreyfinguna að leiðarljósi þá ætti hún að segja skilið við ríkisvald- ið, hætta að láta Hagstofuna skrá félaga og innheimta sjálf félaga- gjaldið.“ Þessu er til að svara að Þjóð- kirkjan og ríkið skildu árið 1997 er þau gerðu með sér samning þar um. Ríkið innheimtir að vísu áfram sóknargjöldin en tekur nú af þeim rúmlega 36% hlut. Það er ærið kostnaðarsöm innheimta svo ekki sé nú dýpra í árinni tekið. Kirkjan gæti auðvitað séð um inn- heimtuna sjálf eða framselt hana til banka eins og Nesklúbburinn gerir. Þannig vinna félagasam- tök gjarnan í dag. En þá spyr ég: Muntu þá segja að kirkjan verði á framfæri bankanna? Ég ítreka að í umræddum grein- um mínum var ekkert sem túlka má sem gagnrýni á Nesklúbbinn, ekkert, Eggert! Ég óska þér farsældar á nýju ári. Við munum vonandi taka golf- hring saman næsta sumar eins og oft áður og njóta útiveru á Nes- inu innan um kríur og aðra fugla, fiðraða sem ófiðraða. Ekkert, Eggert ÞJÓÐKIRKJAN Séra Örn Bárður Jónsson sóknarprestur í Neskirkju ➜ Um álfuna fór kerling í tötrum með Drekann frá Niðafjöllum í bandi og dæt- urnar Ágirnd og Öfund og synina Spuna og Hrotta. Það var myrkur í mannheimum. ➜ Við erum í stöðug- um viðræðum við stjórnvöld víða um hvernig hægt er að útfæra reglusetningu á netspilamennsku á ábyrgan og árangursríkan hátt. 3. janúar 2013 Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands Opinn fundur – aðgangur ókeypis Fyrirlestrar fyrir almenning á 16. ráðstefnunni um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum í Háskóla Íslands. Fimmtudaginn 3. janúar 2013, kl. 15.50–17.20 í sal 104 á Háskólatorgi, Háskóla Íslands. Erindi flutt af Guðmundi Þorgeirssyni, prófessor Forvarnir gegn hjarta- og æðasjúkdómum Erindi flutt af Halldóri Jónssyni jr, prófessor Skurðaðgerðir á Íslandi við slitgigt, nýjar fóðringar eða staurliður Dagskrá ráðstefnunnar og ágrip rannsókna, á slóðinni: http://www.laeknabladid.is/fylgirit/fylgirit/2013/ fylgirit-73 ➜ Þá tel ég það jákvætt að fólki utan trúfélaga sé gert að greiða lítilræði til göfugra málefna eins og var gert með hinu eldra fyrirkomu lagi en er and- vígur núverandi kerfi . Save the Children á Íslandi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.