Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 22
FÓLK|
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Jónína María Hafsteinsdóttir, jmh@365.is, s. 512 5473 | Sverrir Birgir
Sverrisson, sverrirbs@365.is, s. 512 5432 | Elsa Jensdóttir, elsaj@365.is, s. 512-5427
Sjónvarpsþættirnir Downton Abbey hafa heldur betur slegið í gegn um allan heim, þar á meðal hér
á landi. Breski leikarinn, Hugh Bonne-
ville, hefur vakið heimsathygli fyrir leik
sinn í þáttunum þar sem hann þykir
sýna mikla snilldartakta. Hann var áður
þekktur úr kvikmyndunum Notting Hill
og Gosford Park og ýmsum sjónvarps-
þáttum en sagt er að Downton Abbey
hafi gjörbreytt lífi hans.
Myndaflokkurinn, sem hefst um það
leyti sem fyrri heimsstyrjöldin er að
hefjast, segir frá Crawley-fjölskyldunni
og þjónustufólki hennar. Bonneville
hefur látið hafa eftir sér í viðtölum að
þættirnir höfði mjög til hans. „Ég féll
fyrir handritinu frá fyrstu stundu og
fannst það áhugavert. Ég átti hins vegar
ekki von á þessum gífurlegu vinsæld-
um,“ segir hann. Bonneville fer með eitt
aðalhlutverkið, hlutverk jarlsins Robert
Crawley.
Þættirnir hafa fengið eftirsótt verð-
laun á borð við Golden Globe og Emmy
auk margra annarra. Þættirnir hófu
göngu sína á ITV-stöðinni í septem-
ber 2010 en nú er verið að sýna þriðju
þáttaröðina. Höfundur er sir Julian
Fellowes og nýlega var ákveðið að hefja
upptökur á fjórðu þáttaröðinni.
Highclere-kastali í Hampshire var
notaður í tökur bæði utan- og innan-
dyra þótt einstaka atriði séu tekin upp
í stúdíói. Bonneville segir að kastalinn
sé ekki síður mikilvægur en leikar-
arnir. „Þegar maður gengur inn er upp-
lifunin eins og að ganga inn í breska
menningar sögu,“ segir leikarinn.
Bærinn Bampton í Oxford-héraði var
notaður í tökur utandyra. Margir þekktir
leikarar koma við sögu og meðal þeirra
er Maggie Smith. Hún hefur þó óskað
eftir að verða skrifuð út úr sögunni.
Downton Abbey hefur verið líkt við
aðra svipaða þáttaröð, Húsbændur og
hjú, sem sýnd var hér á landi á áttunda
áratugnum. Þættirnir hafa haft mikil
áhrif á ýmsa þætti nútímasamfélags,
meðal annars á tísku. Fyrirtæki í Bret-
landi sem sér fólki fyrir þjónum og hús-
hjálp finnur mikla aukningu á eftirspurn
hjá efnameira fólki eftir ekta breskum
„butler“. Um 430 breskir „butlerar“ hafa
fengið vinnu á árinu í gegnum umboðs-
skrifstofuna Bespoke Bureau. Fram-
kvæmdastjórinn sagði við The Daily
Mail að nýríkar fjölskyldur í Kína, Rúss-
landi og Miðausturlöndum væru tölu-
vert að sækjast eftir ráðsmönnum.
DOWNTON ABBEY HEFUR
ÁHRIF Á NÝRÍKT FÓLK
VERÐLAUNAÞÆTTIR Downton Abbey hefur fengið metáhorf víða um heim.
Þættirnir hafa orðið til þess að margir óska nú eftir ekta breskum „butler“.
HEIMSFRÆGÐ
Þótt Hugh Bonneville
hafi öðlast frægð
fyrir löngu þá hefur
hún margfaldast með
Downton Abbey.
ÞJÓNUSTUFÓLKIÐ
Aukin eftirspurn er eftir ráðs-
mönnum og þjónustufólki í Bret-
landi og víðar vegna þáttanna.
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
Öll kínvesk
leikfimi
Frír
prufutími til
5. janúar
• Heilsu Qi Gong 5000 ára tækni
• Heilsubætandi Tai chi
• Kung Fu í samstafi við
Kínveskan íþrótta háskóla
SKRÁNING
NÚNA!
Fyrir alla
aldurshópa
WU SHU ART
TAI CHI
FRÍR PRUFUTÍMI
TIL 5. JANÚAR
KUNG FU
FYRIR ALLA
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Í samstarfi við Kína
-Capital Institute of
Physical Education
Við erum á Facebook
ÚTSALAN HEFST Í DAG
30% - 70%
AFSLÁTTUR
ÚTSALA
Save the Children á Íslandi
QI
Stephen Fry fer á kostum
í skemmtilegum þáttum
BBC ENTERTAINMENT ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS
Save the Children á Íslandi