Fréttablaðið - 02.01.2013, Síða 24
2. JANÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR2 ● Heilsuhótel Íslands
Gestir Heilsuhótelsins njóta
meðal annars aðstoðar
heilsuráðgjafa. Þeir leiðbeina
gestum um mataræði og
hreyfingu auk þess að veita
góðar leiðbeiningar eftir að
dvöl lýkur þar.
S tarf heilsumarkþjálfa er ansi fjölbreytt og koma þeir að ýmsum þáttum í
starfsemi Heilsuhótelsins. Stein-
unn Aðalsteinsdóttir hefur starf-
að þar frá haustinu 2009. „Ég nýti
þekkingu mína til að miðla henni
áfram til viðskiptavina Heilsu-
hótelsins, meðal annars í formi
fyrirlestra. Einnig stýri ég leik-
fimi ásamt öðrum og ýmsum
líkams meðferðum. Ég lærði
snyrtifræði og einkaþjálfun á
sínum tíma og allt nýtist þetta
vel í starfi mínu hér á Heilsu-
hótelinu.“
MEÐFERÐ Í TVÆR VIKUR
Viðskiptavinir Heilsuhótelsins
stoppa yfirleitt í tvær vikur. Einn-
ig er hægt að koma yfir helgi.
Steininn segir að hægt sé að kenna
gestum margt nytsamlegt á þess-
um tíma, eins og að lesa utan á
umbúðir matvæla, fara yfir ýmis
atriði er snúa að umhirðu húðar-
innar og auðvitað að mataræði og
hreyfingu sem skiptir vitanlega
miklu máli.
MATARRÆÐI SKIPTIR MÁLI
Að sögn Steinunnar skiptir
matar æði mjög miklu máli og í
mörgum tilfellum þarf að taka
það til endurskoðunar hjá gestum
Heilsuhótelsins. „Í raun er þetta
einfalt. Borði maður hollt og
næringar ríkt fæði öðlast maður
um leið orku til að hreyfa sig. Ef
maður hreyfir sig borðar maður
ósjálfrátt hollari mat þannig að
úr verður góð hringrás.
Ef maður er hins vegar allt-
af á næringarsnauðu fæði verð-
ur maður orkulaus og líkaminn
biður um meiri orku svo að þrátt
fyrir að borða jafnvel fullt af
hitaeiningum eru þær næringar-
snauðar. Það leiðir til þess að
maður borðar bara meira, þar
sem líkaminn þarf næringu
og mikil orka fer í að melta og
við verðum orkulausari. Það er
ekki góður hringur að vera fast-
ur í. Mataræði er því gríðarlega
mikil vægt og þess virði að gefa
sér tíma í að skipuleggja það vel,
jafnvel nokkra daga fram í tím-
ann.“
EFTIRFYLGNI EFTIR LOK DVALAR
Eftir að dvöl lýkur á Heilsu-
hótelinu fá gestir þess góðar leið-
beiningar um framhaldið, sér-
staklega varðandi hreyfingu og
mataræði. „Við leggjum mikla
áherslu á að leiðbeina fólki varð-
andi hvaða matvælum má skipta
út og hvar er hægt að breyta
til. Það þarf ekki að skipta öllu
út strax heldur er hægt að taka
þetta í þrepum. Mestu skiptir þó
að taka út unnin matvæli, hvítt
hveiti og sem mest af sykri.“
Á Facebook-síðu sinni, Heilsu-
hótel Íslands – Steinunn heilsu-
markþjálfi, mun Steinunn meðal
annars veita gestum Heilsu-
hótelsins stuðning eftir að dvöl
lýkur. „Þar mun ég meðal annars
setja inn hollar uppskriftir, góð
ráð og svara fyrirspurnum. Ég
hvet alla til að kíkja þangað inn.“
Heilsuhótel Íslands hefur síðast-
liðin þrjú ár unnið með fólki sem
vill bæta eigin lífsstíl, draga úr
streitu og bæta svefn.
STREITA
Ástæður streitu geta verið marg-
vís legar, meðal annars áhyggjur
af vinnu, fjölskyldu og fjármálum.
Dæmi um einkenni sem geta gefið
til kynna streitu eru einbeitingar-
leysi, tilfinning um að ráða ekki
við aðstæður, lítið sjálfstraust,
vandræði með svefn eða svefn-
leysi, hár blóðþrýstingur, höfuð-
verkur, meltingar truflanir, aukin
áfengis neysla og slæmt matar æði.
Einstaklingur þarf að finna fyrir
einu eða fleirum af ofan töldum
einkennum til að teljast þjást af
streitu. Einföld skýring á streitu
er uppsöfnuð þreyta í líkama og
sál.
Streita líður oft hjá, svo sem
þegar streituvaldur er ekki lengur
til staðar. Gestir á Heilsuhóteli Ís-
lands hafa náð góðum árangri og
unnið sig út úr streituvaldandi
aðstæðum og áttað sig á að raun-
verulegra breytinga var þörf.
Þetta hafa þeir gert með því að
mæta á tveggja vikna námskeið
sem nú eru haldin fyrsta föstu-
dag í hverjum mánuði og hafa um
3.000 manns sótt slík námskeið.
Dvöl á Heilsuhóteli Íslands,
sem byggir á hvíld og slökunar-
meðferðum svo sem heilsu bætandi
nuddi, jóga og fleiru en umfram
allt jákvæðu og skemmtilegu
umhverfi, hefur víðtæk áhrif á
árangur til enn betri heilsu.
Streitu og þreytu gefið hornauga
Gestir á Heilsuhóteli Íslands hafa náð góðum árangri og unnið sig út úr streituvaldandi aðstæðum.
● HEILSURÁÐ
ÁSDÍSAR RÖGNU
Ásdís Ragna Einarsdótt-
ir, grasalæknir BSc, er einn
af fyrir lesurum við Heilsu-
hótel Íslands og hefur
gefið fjölda manns heilsu-
ráð um betri heilsu og
líðan. Á nýja árinu er gott
að hafa eftirfarandi í huga
þegar kemur að heilsunni.
- Tökum skref fyrir skref í átt að betri heilsu en þannig er auðveldara að
temja sér nýjar og betri venjur.
- Reynum að draga úr streitu og álagi og finna leiðir til að slaka á eins og
með hugleiðslu og hvíld.
- Borðum litríkan, hreinan og fjölbreyttan mat og reynum að velja lífrænt
eins og hægt er.
- Finnum okkur hreyfingu við hæfi og förum reglulega út til að fá dags-
birtuna og fylla okkur af fersku súrefni.
- Vatn, vatn, vatn! Einnig er gott að drekka jurtate og nota kaffi og aðra
koffíndrykki í hófi.
www.facebook.com/grasalaeknir.is
Hugmyndafræði heilsueflingar
„Borði maður hollt og næringarríkt fæði öðlast maður um leið orku til að hreyfa sig,” segir Steinunn Aðalsteinsdóttir, heilsu-
markþjálfi hjá Heilsuhóteli Íslands. MYND/ARNOLD BJÖRNSSON