Fréttablaðið - 02.01.2013, Page 26
2. JANÚAR 2013 MIÐVIKUDAGUR4 ● Heilsuhótel Íslands
PI
PA
R\
TB
W
A
-S
ÍA
-
1
2
3
8
2
9
Verður þín hugmynd að veruleika á Ásbrú?
Aðeins 4 mínútur
frá Keflavíkurflugvelli
– sparar þér tíma og peninga
KEFLAVÍKUR-
FLUGVÖLLUR
Sími 425 2100 | fyrirspurnir@kadeco.is
Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar
Ásbrú í Reykjanesbæ er spennandi svæði þar sem fyrrum herstöð er umbreytt
í samfélag frumkvöðla, fræða og atvinnu lífs. Svæðið hentar einstaklega vel
fyrir flutningafyrirtæki eða önnur fyrirtæki sem sjá hag sinn í að vera nálægt
alþjóðaflugvelli.
Á Ásbrú er hlið beint inn á flugsvæði Keflavíkurflugvallar og góð tenging
við stórskipahöfnina í Helguvík. Allar gerðir húsnæðis eru á svæðinu, bæði til
útleigu og sölu, s.s. geymslu húsnæði og skrifstofu húsnæði. Mikil upp bygging
er á svæðinu og má þar nú meðal annars finna fjölmörg sprotafyrirtæki og
menntastofnanir.
Nánari upplýsingar um Ásbrú má finna á www.asbru.is.
Chad Kailen, einkaþjálfari, nuddari og nær-
ingarfræðingur á Heilsuhóteli Íslands, notar
ýmsar leiðir til að ná árangri við að bæta
heilsu fólks. „Á hverjum morgni fer ég með
hópinn minn í göngutúr. Eftir það förum við
í gegnum léttar styrktar- og teygjuæfing-
ar. Markmiðið er að losa um liðina og koma
líkamsvökvum af stað. Þannig fáum við nýjan
vökva inn í liðina og komum hreyfingu á
vökvaflæðið.“
Æfingarnar eru einfaldar og til þess gerðar
að fólk geti tileinkað sér þær og framkvæmt
þær heima hjá sér eftir að dvöl á hótelinu lýkur.
„Fólk sem kemur hingað öðlast þekkingu og
færni til ná betri heilsu og líðan.“ Önnur og ár-
hrifarík aðferð sem Chad notar er nudd. „Nudd
er tilvalin leið til að endurhlaða líkamann og
koma hreyfingu á líkamsvökva. Með því er
hægt að leiðrétta spennu í líkamanum. Stíf-
ar axlir síga niður við að vera nuddaðar og
fólk verður eðlilegra og slakara. Nudd er samt
ekki bara til þess gert að slaka á, heldur hefur
mun meiri áhrifamátt en það. Þetta finnur fólk
þegar það er nuddað; það er endurnært.“
Áhrifaríkar aðferðir til uppbyggingar
Chad notar til dæmis svona keilur við styrktar- og
liðleikaæfingar ásamt því að beita nuddi.
● PERSÓNULEG RÁÐ
GJÖF VIÐ AÐ HÆTTA
TÓBAKSNOTKUN Ráð-
gjöf í reykbindindi hefur starf-
að óslitið frá árinu 2000 og er
því að hefja fjórtánda starfsár
sitt. Þjónusta Reyksímans bygg-
ir á heimasíðunni www.reyk-
laus.is og símalínunni 800-6030,
en fólk hringir gjaldfrjálst í það
númer. Símaþjónustan er opin
frá klukkan 17-20 alla virka daga
og svara sérþjálfaðir ráðgjafar í
símann. Fyrstu tvær vikurnar í
janúar er lengri opnun eða frá
klukkan 16-21. Þjónustan er sér-
sniðin að þeim sem vilja hætta
tóbaksnotkun, en margar leiðir
eru til þess.
● FYRIRLESTRAR
AUÐAR HEILSUKOKKS
Auður Ingibjörg Konráðsdóttir
heilsukokkur hefur haldið vinsæl
námskeið í hollri matargerð og
lífsstíl undanfarin ár. Hún hefur
gefið út tvær spennandi upp-
skriftabækur sem báðar seld-
ust upp. Bókin Heilsudrykkir
kom út 2012 og nú fyrir jól kom
út bókin Heilsusúpur og salöt.
Auður verður með fyrirlestra
á helgarnámskeiðum Heilsu-
hótels Íslands í janúar og febrú-
ar á næsta ári. Sjá nánar á www.
heilsukokkur.is.
● EIN GLÆSILEGASTA
LÍKAMSRÆKTARSTÖÐ
LANDSINS Sporthúsið
Reykjanesbæ var opnað þann
15. september síðastliðinn eina
glæsilegustu heilsu- og líkams-
ræktarstöð landsins á Ásbrú.
Stöðin er í rúmlega 2.000 fer-
metra húsnæði sem hefur allt
verið endurgert. Sporthúsið
býður upp á allt það helsta í
heilsurækt í dag svo sem full-
kominn tækja-
sal, einka-
þjálfun,
Hot-
yoga,
skvass,
spinn-
ing, fit
pilat-
es, ketil-
bjöllur auk
fjölda opinna hóptíma og nám-
skeiða. Þá hafa bæði Crossfit-
og Superform-námskeiðin sleg-
ið rækilega í gegn. Sporthúsið
er í nánu samstarfi við Íþrótta-
og heilsuskóla Keilis sem býður
upp á ÍAK-þjálfaranám.