Fréttablaðið - 02.01.2013, Síða 32
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 24
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggvadóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. labb, 6. bardagi, 8. áverki, 9. rúm
ábreiða, 11. bókstafur, 12. krapi,
14. frumefni, 16. sjó, 17. regla, 18.
heyskaparamboð, 20. stöðug hreyfing,
21. tónleikar.
LÓÐRÉTT
1. dans, 3. mannþvaga, 4. vopn, 5.
viður, 7. raddbönd, 10. óvild, 13. eiga
heima, 15. titra, 16. pumpun, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. rölt, 6. at, 8. sár, 9. lak, 11.
sé, 12. slabb, 14. flúor, 16. sæ, 17. agi,
18. orf, 20. ið, 21. gigg.
LÓÐRÉTT: 1. vals, 3. ös, 4. lásbogi, 5.
tré, 7. talfæri, 10. kal, 13. búa, 15. riða,
16. sog, 19. fg.
Ég hef aðeins verið að
spá í mömmu þína Jói!
Hún er yfir 60 ára og
rekur nuddstofu í
eldhúsinu hjá sér!
Mhmm!
Mhmm!
Hún tekur á móti
ókunnugum mönnum ...
allan sólarhringinn...
í náttsloppnum!
Og nuddar þá!
Á eldhús-
borðinu?
Er það
ekki
svolítið
furðulegt?
Ekki frá
mínum
bæjardyrum
séð!
OPIÐ HÚS
OPIÐ
Einmitt þegar
maður hélt
að heimurinn
gæti ekki orðið
heimskari...
Ég hef fundið
mína köllun í
lífinu.
Ég heyri
raddir
í höfðinu
á mér.
Ekki hafa áhyggjur
af hádegismatnum,
pabbi. Ég er búinn að
setja hann í töskuna
þína.
Í alvöru?
Frábært!!
Takk,
Hannes.
Þú þurftir
ekki að borða
þetta allt!
Um kvöldið...
Fjórar gosdósir,
ostsneið, tvær
kökusneiðar og
smjörstykki.
Eldamennskan hófst þá um morgun-inn, þetta skyldi verða flott. Rótar-
grænmeti með fennel og timían, rauðkál,
brúnkál og berjasulta og þrjár tegundir
af sósu, sykurbrúnaðar kartöflur og fjór-
ar tegundir kjöts, hægeldaðar af natni.
Rjómalagaður möndlugrautur skyldi
verða í forrétt og heimalagaður ís í eftir-
rétt. Aldeilis öllu til tjaldað. Það voru nú
einu sinni jól.
VIÐ erum fjögur í fjölskyld-
unni. Þar af tvö það langt
undir fermingu að bragð-
laukar þeirra gefa lítið fyrir
timían, hvað þá fennel. Það
var því augljóst frá upphafi
að afgangarnir yrðu einhverj-
ir en það var með ráðum gert.
Kaldir kjötafgangarnir skyldu
nýttir í jólalokuna svoköll-
uðu en það er sérlega vel
útilátin samloka sem
hefð hefur skapast fyrir
hjá okkur á jóladag.
Tilhlökkunin vegna
jólalokunnar er ekki
minni en vegna jóla-
máltíðarinnar sjálfrar.
Stundum er hún margra
hæða með súrum gúrk-
um og sætu sinnepi og
kjöt áleggið í svo þykkum
sneiðum að það hálfa væri
nóg. Það var eingöngu vegna jólalokunn-
ar að hvorki meira né minna en fjórar
tegundir kjöts kraumuðu nú í ofni og í
pottum og pönnum. Lokan þessi jólin
yrði rosaleg.
HÚSBÓNDINN mundaði því kjöthita-
mælana og fylgdist með hverri gráðu.
Það er ekki sama hvernig þetta er gert,
mismunandi hiti á við hverja tegund
og ekkert má út af bera. Hann gaf sér
varla tíma til að skipta í betri fötin, svo
umhugað var honum um bragðgæði,
meyrni og áferð.
Þegar jólin komu með klukknaómi og
kræsingarnar skyldu á borðið var kjöt-
ið það eina sem stóð klárt. Grjónin í
rjómalagaða möndlugrautinn sem átti
að vera í forrétt voru enn í pakkanum.
Rótargrænmetið sem átti að lagast með
timíani og fenneli var enn í sínu upp-
haflega formi inni í ísskáp og sömuleiðis
kartöflurnar!
En það þýðir ekkert að láta svona lagað
slá sig út af laginu. Krakkarnir fengu
það sem til var enda hefði þeim ekki
getað staðið meira á sama um fjarveru
fennelsins. Við tvö borðuðum síðar, sama
kvöld þó, þegar kartöflurnar voru soðn-
ar og slepptum forréttinum. Fyrir vikið
var jólamáltíðin talsvert á annan veg en
til stóð en það gerði ekkert til. Jólin snú-
ast jú um annað og meira.
Jólalokan var hins vegar rosaleg!
Jólalokan mikla