Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 34

Fréttablaðið - 02.01.2013, Side 34
2. janúar 2013 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 26MENNING Nánari upplýsingar og aðstoð má fá með því að senda fyrirspurn á netfangið upplysingar@reykjavik.is eða í síma 411 1111. www.reykjavik.is Á vef Reykjavíkurborgar geta fasteignaeigendur: www.reykjavik.is Fasteignagjöld í Reykjavík verða innheimt í heimabönkum. Fasteignaeigendum er jafnframt bent á beingreiðslur hjá öllum bankastofnunum eða boðgreiðslur af greiðslukortum. Rafræn Reykjavík fyrir þig LEIKHÚS ★★★★ ★ Mýs og menn Höfundur: John Steinbeck. Þýðing: Ólafur Jóhann Sigurðsson. Helstu hlutverk: Ólafur Darri Ólafsson. Hilmar Guðjónsson og Álfrún Örnólfsdóttir. Leikstjóri: Jón Páll Eyjólfsson. BORGARLEIKHÚSIÐ Jólasýning Borgarleikhússins í ár er Mýs og menn eftir John Stein- beck. Leikstjóri og dramatúrg sýningarinnar, nafnarnir Jón Páll Eyjólfsson og Jón Atli Jónas- son, hafa umritað verkið nokkuð, t.d. hafa þeir lýst því í fjölmiðl- um að vilja ekki hengja sig í rit- unartíma sögunnar, saga farand- verkamannanna George og hins vitgranna Lenny gæti gerst hvar sem er, menn í þeirra stöðu til- heyri alls ekki fortíðinni. Þann- ig liggur það á milli hluta hvar félagarnir vinna, það gæti verið hvers konar illa launuð stóriðja, frekar en stórbýli upprunalegu útgáfunnar. Í þessari staðleysutilraun gekk reyndar illa upp að breyta „negr- anum“ Crooks í útlending af ann- arri kynslóð innflytjenda. Þetta var virðingarverð tilraun en sá andlegi farangur sem fylgir þrælahaldi suðurríkjanna verður illa fluttur yfir á (íslenskan) ras- isma með því að skipta einu orði út fyrir annað. Þannig var ekk- ert vit í því í að „útlendingurinn“ mætti ekki nota sama kamar og hinir eða sofa nálægt þeim. Og af því að ekki tókst að yfirfæra hatr- ið, framandleikann og kúgunina sannfærandi frá einum minni- hlutahópi yfir á annan varð rödd útlendingsins hjáróma og þáttur hans í verkinu óljós. Einnig voru breytingar á lokaatriðinu ekki til bóta, þótt það hafi vissulega verið áhrifamikið. En sýningin er flott, missir aldrei dampinn og er í raun mjög trú upphaflega verkinu. Breyting- arnar sem hafa verið gerðar eru smávægilegar þegar horft er til tilfinninganna sem urðu Stein- beck yrkisefni og þær skila sér svikalaust til áhorfenda. Uppfærsla á Músum og mönn- um hangir alltaf á samspili aðal- leikaranna tveggja. Fyrstan verð- ur að nefna Lenny Ólafs Darra sem stígur fullskapaður fram eig- inlega um leið og bárujárnstjaldið lyftist. Fjarskalega fín vinna þar sem hver augngota er úthugsuð og vel heppnuð. Það er ekki laust við að ugg setji að áhorfendum, hvort Hilmar Guðjónsson nái að halda í við félaga sinn á sviðinu, en hann veldur ekki vonbrigðum og vex í hlutverkinu með hverri mínútu. Líkamsmál þeirra og óyrt samskipti skiluðu áralangri sambúð áreynslulaust. Einungis eitt kvenhlutverk er í leiknum og fer Álfrún Örn- ólfsdóttir með hlutverk hinnar léttúðugu frúar sem öllu hleyp- ir í bál og brand. Nokkuð skort- ir á raddbeitingu Álfrúnar, hún streðar merkjanlega við að láta kveða að raust sinni. Hún kom sakleysi frúarinnar vel til skila og lífsleiða hennar, en nokkuð skorti á daðurdrósina. Aðrir leik- arar stóðu sig vel, Theodór Júlí- usson var ágætur sem smæling- inn Candy og Þórir Sæmundsson gladdi sem fautinn Curley. Leikmynd Ilmar Stefánsdótt- ur var stórfengleg, hún end- urspeglaði aftur þessa óræðu stóriðju sem piltarnir unnu við, stórir sekkir mynduðu annars vegar hrikalegt landslag og hins vegar þröng híbýli verkamann- anna. Lýsing Bjarnar Bergsteins Guðmundssonar var glæsileg og hljóðmynd Davíðs Þórs Jónsson- ar var mjög nostursamlega unnin, minnti á háværan véladyn á rétt- um stöðum án þess að drekkja áhorfendum í hávaða. Mýs og menn er leikverk sem er beinlínis skrifað til að koma út tárunum á áhorfendum. Í með- förum hóps listamanna sem getur sagt langa sögu með orðalausri tannburstun – þá eru tárin ein- hvers virði, frekar en afleiðing af merkingarsnauðu melódrama. Arndís Þórarinsdóttir NIÐURSTAÐA: Alvörustórsýning á klassísku verki. Svona á jólagóðgæti atvinnuleikhúss að vera. Almennileg þriggja vasaklúta sýning BÆKUR ★★★★ ★ Nútíminn er trunta Jennifer Egan Þýðing: Arnar Matthías- son BJARTUR Jennifer Egan hefur hlotið mikið lof og verðlaun fyrir bók sína A Visit from the Goon Squad frá 2010 sem nú er komin út í íslenskri þýðingu undir nafninu Nútíminn er trunta. Sagan er samsett úr stuttum köflum með mismunandi sögumönnum sem allir tengjast á einn eða annan hátt. Sá sem er aukapersóna í einum kafla verð- ur aðalpersóna í öðrum og þannig koll af kolli. Kaflarnir eru ólíkir í stíl og frásagnarhætti og hver persóna fær eigin rödd sem skil- ur hana frá öðrum. Heill kafli upp á um 80 síður er til dæmis byggð- ur upp sem Power Point skyggnur og svo merkilega sem það kann að hljóma er hann einn áhrifamesti kafli bókarinnar. Sögusviðið er New York sam- tímans en það er rásað fram og til baka í tíma og staðsetningum og leikurinn berst um víðan völl, til Afríku, San Fransisco, Napólí og Los Angeles, svo dæmi séu tekin. Miðja sögunnar er tónlistarbrans- inn í USA frá tímum Nirvana til um það bil 2020 og þær breyting- ar sem verða á honum endurspegl- ast í lífi persónanna á mismunandi hátt. Framtíðarsýn höfundar er ekki björt, tæknin tekur völdin, siðferði verður hlægilegt, pening- arnir tala sem aldrei fyrr og allt og allir fást keyptir fyrir rétt verð. Samskipti molna og fara mestan part fram með rafrænum bylgj- um. Þeir fáu snertifletir sem fólk hafði hvort við annað í „þá gömlu góðu daga“ eru í útrýmingarhættu í lok bókar. Persónurnar eru mjög mis- áhugaverðar og sömuleiðis sögur þeirra og framan af klórar lesand- inn sér í höfðinu yfir vinsældum bókarinnar: hvað er svona æðis- legt? En smátt og smátt flækir Egan lesandann í net sitt, persónur sýna á sér nýjar hliðar og stíllinn verður knappari og magnaðri. Það er þrýst á alla auma bletti samtím- ans og miskunnarlaust sýnt hvern- ig hver og ein persóna missir sjón- ar á æskudraumunum, selur sál sína á einn eða annan hátt; verð- ur hlægileg skrumskæling á fyrra sjálfi. Tíminn, sú trunta, er harð- ur húsbóndi og fólk fylgir honum nauðugt viljugt í þá átt sem hann vísar því. Og öllu eru þessu komið til skila án nokkurra predikana eða yfirlýsinga, saga persónanna endurspeglar breytingarnar full- komlega, jafnvel þær sögur sem eru í raun aðeins leiftur af langri ævi. Virkilega glæsilega gert. Þýðing Arnars Matthíassonar rennur prýðilega, þótt dálítið beri á því að hrá ameríska frumtext- ans taki völdin og úr verði hin ill- ræmda ísl/enska. Þýðandanum er þó sannarlega vorkunn því amer- ískari saga er vandfundin og ekk- ert skrýtið þótt krítíkerar vest- anhafs hafi kallað bókina „nýtt meistaraverk amerískra bók- mennta“. Friðrika Benónýsdóttir NIÐURSTAÐA: Magnað verk sem endurspeglar samtímann með áhri- faríkum hætti. Leiðin frá A til B

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.