Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 10
8. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10 GÓÐGERÐARMÁL Landssamband bakarameistara mun afhenda Hjartavernd ágóða af sölu Hjarta- brauðsins svokallaða á morgun. Síðasta sumar hannaði sam- bandið brauðið, sem er alfarið bakað úr heilmöluðu korni og inni- heldur lítið salt og sykur, í sam- starfi við Hjartavernd í því skyni að auka neyslu þjóðarinnar á holl- ara brauðmeti til að minnka líkur á hjarta- og æðasjúkdómum síðar á lífsleiðinni. Hjartabrauðið hefur verið til sölu í bakaríum síðan í septem- ber síðastliðnum, en 60 krónur af hverju seldu brauði munu renna til söfnunar fyrir ómtæki Hjarta- verndar, sem er komið til ára sinna. Þá hefur Hjartaheill ákveðið að styrkja kaup nýs ómtækis með 5,5 milljóna króna gjöf til Hjarta- verndar. Félagið tekur við styrkjunum við hátíðlega athöfn í húsnæði sínu í Holtasmára 1 í Kópavogi, á morg- un klukkan 11. - sv ÁSTRALÍA, AP Leitað var látinna í brunarústum yfir hundrað heim- ila og bygginga eftir þriggja daga kjarrelda á eynni Tasmaníu, sem er eitt héraða Ástralíu. Hundrað manns var enn saknað í gær. Þó nokkrir eldar hafa sprott- ið upp á sól- og vindþurrkuðum svæðum suðausturhluta Ástral- íu. Sjálfboðaliði sem barðist við kjarr elda nærri þorpinu Gund- aroo, um 220 kílómetra suðvestur af Sydney, varð í gær fyrir alvar- legum bruna á höndum og í andliti, að því er fram kemur í yfirlýsingu sem slökkvilið Nýja Suður-Wales fyrir dreifðari byggðir sendi frá sér. Maðurinn var sendur í sjúkra- flugi á spítala í Sydney. Scott Tilyard, starfandi lög- reglustjóri í Tasmaníu, sagði í gær engar fregnir af því að fólk hefði látið lífið í héraðinu af völdum eldanna. Það myndi hins vegar taka einhvern tíma að ganga úr skugga um það. Síðan á föstudag hafa kjarreldar eyðilagt 20 þúsund hektara skóga og rækt- arlands í suðurhluta Tasmaníu. Tilyard segir ellefu leitarhópa svipast um eftir þeim hundrað íbúum eða svo sem enn er saknað. Meðal annars er leitað í smábæn- um Dunalley, austur af héraðs- höfuðborginni Hobart. Þar hafa um 90 heimili eyðilagst. „Þar til við höfum náð að ljúka allri leit á svæðinu getum við ekkert fullyrt um það hvort allir hafi komist af,“ sagði Tilyard við blaðamenn. Í gær geisuðu enn kjarreldar á þremur stöðum í suðurhluta Tas- maníu og í norðvesturhlutanum. Lögregla hefur kært rúmlega þrí- tugan mann fyrir að hafa orðið valdur af einum brunanna með því að hafa fyrir helgi látið varð- eld eftirlitslausan. Nafn mannsins var ekki gefið upp og óljóst hvaða refsing kann að bíða hans, verði hann fundinn sekur. Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, sem flaug til Tasmaníu í gær, varaði við því að hitastig færi mjög hækkandi í Nýja Suður- Wales í dag, fjölmennasta héraði Ástralíu, og því væri mikil hætta á kjarreldum. „Við búum í landi sem er heitt og þurrt og verður reglulega fyrir skemmdum af miklum kjarreldum sem ganga yfir,“ sagði hún við blaðamenn. „Og þótt ekki sé hægt að kenna loftslagsbreytingum um ein- hvern ákveðinn atburð […] vitum við þó að vegna loftslagsbreytinga eigum við eftir að sjá meiri öfga í veðurfari og aðstæðum.“ Shane Fitzsimmons, slökkvi- liðsstjóri slökkviliðs Nýja Suð- ur-Wales fyrir dreifðari byggðir, sagði í gær að kjarreldar geis- uðu á fleiri en 90 stöðum í hér- aðinu, þar með talinn eldurinn við Gundaroo. Hann varaði við því að aðstæður gætu versnað í dag. Engin heimili væru þó enn í hættu. Gert er ráð fyrir að hitastig í héraðinu nái allt að 45 gráðum á Celsíus í dag og vindstyrkur gæti náð yfir 22 metrum á sekúndu. Kjarreldar eru algengir að sum- arlagi í Ástralíu. Í febrúar 2009 urðu hundruð elda sem geisuðu í Viktoríuhéraði 173 að bana og eyðilögðu yfir tvö þúsund heimili. olikr@frettabladid.is PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 0 32 88 Ótrúlegt úrval íbúða til sölu eða leigu! STÆRSTI HÚSNÆÐISVEFUR LANDSINS Melbourne Hobart Boomer bay TASMANÍA Á S T R A L Í A Kjarreldar í Tasmaníu LOFTMYND Brunnin hús við Boomer- flóa á eynni Tasmaníu í Ástralíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Hita- og þurrkatíð eykur eldhættuna Stjórnvöld í Ástralíu óttast fleiri kjarrelda víðar í landinu. Í suðurhluta landsins var í dag spáð roki og allt að 43 stiga hita. Á eynni Tasmaníu hafa yfir hundrað heimili og byggingar orðið eldi að bráð. Í gær var hundrað manns enn saknað. Í BRUNNUM SKÓLA Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, heimsótti Tasmaníu í gær og skoðaði svæði sem hart eru leikin af kjarreldum. Hér er hún í brunarústum Dunally-barnaskólans í suðausturhluta Tasmaníu. Á suðurhluta eyjunnar hafa yfir hundr- að heimili orðið eldinum að bráð. NORDICPHOTOS/AFP Næstu þrjá áratugi mun ein- staklingum eldri en 65 ára fjölga úr 40 þúsund í tæp 90 þúsund, gangi þjóðhagsspár eftir fyrir árið 2024. Dauðsföllum vegna kransæðastíflu fækkaði um 80 prósent hjá fólki undir 75 ára aldri á tímabilinu frá 1981 til 2006. Með ómtækni má greina byrjunarstig æðakölkunar löngu áður en hjarta- og æðasjúkdómar gera vart við sig. ➜ Eldra fólki fjölgar Bakarameistarar og Hjartaheill afhenda gjafir til Hjartaverndar á morgun: Bakarar styrkja kaup á nýju ómtæki HJARTADEILD LSH Hlutfall eldra fólks mun aukast töluvert á næstu áratugum og nauðsynlegt er að sporna við því með auknum forvörnum og eftirliti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SKÓLAMÁL Hvalfjarðarsveit hyggst útvega öllum nemendum og kennurum í leik- og grunnskóla spjaldtölvu til afnota. Segir í frétt frá sveitarfélaginu að markmiðið sé fjölbreyttari leið- ir í kennsluháttum. „Við ætlum að byrja á því að fá kennarana til að kynna sér tækjabúnaðinn og kennsluefnið og svo í framhaldinu munum við innleiða þetta í hvern árgang fyrir sig á næstu tveimur árum,“ er haft eftir skólastjóra Heiðarskóla. - gar Framþróun í Hvalfirðinum: Allir nemendur fá spjaldtölvu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.