Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 26
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 20138
Með réttu mataræði og nægri vat nsdr yk kju aukast líkur á góðri
námshæfni og betri einkunn-
um. Hér eru tíu fæðutegund-
ir sem næra og fríska upp á
heilabúið.
● Epli á dag kemur heilsunni í lag og eykur
námsgetu til muna. Eplahýði inniheldur
kröftug andoxunarefni sem bæta minnis-
hæfni heilans.
● Spínat er stútfullt
af fólati og sýnt hefur
verið fram á að það
geti bætt minnistap.
● Fiskur er flestur ríkur af ómega-3 fitu-
sýrum sem eru nauðsynlegar fyrir tauga-
starfsemina. Stærstur hluti mannsheil-
ans er gerður úr fituvef svo fituríkur fiskur
skerpir á hugsun og hjálpar okkur að læra á
skilvirkan hátt. Rannsóknir sýna að reglu-
legt fiskát minnkar líkur á elliglöpum.
● Dök kt súk kulaði
eykur blóðf læði til
heilans og nærir
hann, bætir minni
og eykur snerpu, ár-
vekni og skýrleika.
● Kjúklinga-, nýrna-
og linsubaunir inni-
halda góðan prótín-
forða, sem eykur virkni
heilans, og fólat, sem
bætir minnis-
hæfni hans.
● Litrík bláber, kirsuber,
hindber, trönuber, kræki-
ber og v í nber
draga úr áhrifum
eitrunar í blóð-
rás og innihalda
andoxunar efni
sem bæta blóð-
flæði og taugastarf-
semi.
● Valhnetur, möndlur og pistasíuhnet-
ur eru ríkar af góðum fitusýrum fyrir
heilabúið. Þær eru orkuríkar, inni-
halda járn og láta heilanum í
té súrefni sem eykur and-
lega árvekni og hæfni til
að varðveita upplýs-
ingar.
● Laukur bætir minni og skerpu. Efnasam-
bönd lauka eru talin draga úr líkum á Alz-
heimers-sjúkdómnum.
● Öfugt við letjandi áhrif hvíts hveitis gefa
heilkorn orku ásamt því að bæta minni og
námsgetu.
● Brokkólí, blómkál, rósakál, kínakál og
fleiri káltegundir hafa jákvæð áhrif á minn-
isgeymd. Best er að borða kálið hrátt til að
fá úr því mestu næringuna þar
sem eldun sviptir kálið
þeim næringarefn-
um sem heilinn
þarfnast mest.
Áhrifaríkt
heilafóður
Matur hefur bein áhrif á heilastarfsemina og getur haft
úrslitaáhrif á námsgetu. Vissar fæðutegundir eru beinlínis lykill
að betri einkunnum um leið og þær gefa góða magafylli.