Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 46
8. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 30 „Bókin á náttborðinu mínu er sú eina sem ég fékk í jólagjöf í ár en það er Ég gefst aldrei upp um for- ræðisdeilu Borghildar Guðmunds- dóttur.“ Lilja Katrín Gunnarsdóttir, leikkona og starfs- maður Saga Film. BÓKIN „Við erum að vinna í nýrri plötu og það gengur ógeðslega vel,“ segir Arnar Freyr Frostason, með- limur hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur, en sveitin fagnar um þessar mundir ársafmæli plötunnar Föstudagurinn langi, þeirrar fyrstu frá sveitinni. „Ég er ófeiminn við að fullyrða að nýja efnið hljómar miklu betur en allt sem við höfum áður gert,“ bætir Arnar við. Það eru stór orð í ljósi árang- urs fyrri plötunnar, en lög af henni voru með þeim mest spiluðu á útvarpsstöðvunum FM957 og Flass. Auk þess var lagið Ég er farinn valið lag ársins á hlustendaverðlaunum FM957. „Við erum búnir að vera að taka upp efni á plöt- una síðasta hálfa árið,“ segir Arnar. Hið vinsæla lag Blóð og sígarettur, sem sveitin hljóðritaði eftir að síðasta plata kom út, fær ekki að vera með á plöt- unni. „Það er bara í lausu lofti á milli platna.“ Arnar vill engu lofa um útgáfudag plötunnar, en segir nýtt lag væntanlegt í spilun innan skamms. „Það heitir Sofðu vel og við erum að fara að taka upp myndband við það núna í janúar,“ segir Arnar. Hann segir lagið væntanlegt fljótlega eftir það. - hva Annað ár úlfsins fram undan Árið 2012 var einstaklega gæfuríkt fyrir skagfi rsku rappsveitina Úlfur Úlfur en þetta vinsæla tríó er staðráðið í að toppa sig tónlistarlega á nýja árinu. NÝJA EFNIÐ BETRA Úlfur Úlfur hefur tröllatrú á næstu plötu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Þetta er mjög skemmtileg breyt- ing sem við tökum fagnandi,“ segir Linda Björg Árnadóttir, fagstjóri fatahönnunardeildar Listaháskóla Íslands, en í fyrsta sinn er kynja- hlutfall nema á fyrsta ári í fata- hönnun jafnt. Fimm strákar og fimm stelp- ur stunda nú nám í fatahönnun á fyrsta ári. Þá eru tveir strákar á þriðja ári en hingað til hefur skól- inn einungis útskrifað þrjá stráka úr fatahönnunardeildinni. Linda Björg segir ímynd fatahönnunar hafi tekið stakkaskiptum síðast- liðin ár og það geti útskýrt þessa fjölgun stráka í náminu. „Það hug- arfar að fatahönnun sé bara kerl- ingaföndur er sem betur fer að breytast. Fatahönnun er orðin fag sem er tekið alvarlega sem starfs- vettvangur að lokinni útskrift. Þetta er ekki lengur bara áhuga- mál enda höfum við einblínt mjög á faglega þáttinn í náminu sjálfu,“ segir Linda Björg sem sjálf hefur barist mjög fyrir þessum breyting- um í fatahönnunarfaginu. Einnig nefnir Linda Björg fata- hönnuðinn Guðmund Jörunds- son sem eins konar brautryðj- anda fyrir karlkyns fatahönnuði á Íslandi í dag. Hann hefur slegið í gegn með herra- fatalínu sinni fyrir herrafataverslun Kor- máks og Skjaldar en hann útskrifaðist úr skólanum árið 2011. „Ég kalla þetta gjarna „Guð- mundar Jör‘s effect“. Með honum hætti fata- hönnun á Íslandi að vera fyrir konur og sam- kynhneigða karl- menn sem gjarna hafa einbeitt sér að kvenfatnaði. Að mínu mati á Guðmundur mikið í því að heilla stráka í námið en flestir þeirra sem stunda námið núna eru að hanna karlmannsfatnað sem er nýbreytni,“ segir Linda Björg og bætir við að búast megi við öldu í hönnun íslensks herra- fatnaðar í framtíðinni. „Guðmund- ur fær líklega verðuga samkeppni á næstu árum.“ Linda Björg er viss um að þessi breyting sé varanleg í skólanum og námið verði nú eftirsótt fyrir bæði kynin. „Okkur finnst þetta stórkostlega skemmtilegt og býður upp á meiri fjölbreytni í þeim hug- verkum sem koma frá skólanum í framtíðinni.“ alfrun@frettabladid.is Strákarnir sækja líka í fatahönnunarnámið Í fyrsta sinn eru jafn margir strákar og stelpur á fyrsta ári í fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands. Linda Björg segir að ímynd fatahönnunar hafi tekið stakka- skiptum síðastliðin ár og hætt að vera kerlingaföndur. HÆTT AÐ VERA KERLINGAFÖNDUR Linda Björg Árnadóttir er ánægð með þá þróun að drengir sæki í auknum mæli í fatahönnun en í fyrsta sinn er jafn kynjahlutfall á fyrsta ári í fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA ÁHRIFAVALDURINN Velgegni Guðmundar Jörundssonar á sviði fatahönnunar hefur gert námið eftirsóknarvert fyrir stráka. Búið er að ákveða dagsetningar fyrir tónlistarhátíðirnar Rauða- sand og Extreme Chill sem verða haldnar í sumar í þriðja og fjórða sinn. Báðar hátíðirnar eru frekar smáar í sniðum en hafa fest sig vel í sessi. Rauðasandur Festival verður haldin í þriðja sinn 4. til 7. júlí. Hún fer fram á Rauðasandi á Vestfjörðum og þar er spiluð kántrí-, blágras-, þjóðlaga-, blús- og reggítónlist. Á meðal þeirra sem spiluðu í fyrra voru Lay Low, Prinspóló, Snorri Helgason og Ylja. Á bilinu 220 til 250 miðar voru seldir á hátíðina og að sögn Jón- ínu de la Rosa, eins af skipu- leggjendunum, er stefnt að því að halda hátíðinni lágstemmdri og fjölskylduvænni, þannig að hver og einn geti verið í ró og næði ef hann vill. „Fólk nær líka að kynnast betur þegar það eru svona fáir,“ segir Jónína og bætir við að markmiðið sé að fjöldinn fari aldrei yfir 500 manns. Boðið verður upp á takmarkað magn miða á hátíðina á 6.500 krónur snemma á þessu ári fyrir áhuga- sama. Aðeins fimm dögum eftir að Rauðasandi lýkur hefst Extreme Chill Festival sem verður hald- in í fjórða sinn á Hellissandi á Snæfellsnesi 12. til 14. júlí. Þar er raftónlist í hávegum höfð og á meðal flytjenda í fyrra voru Fut- uregrapher, Beatmakin Troopa, Krummi og Yagya. Um 350 miðar voru seldir á hátíðina. „Þetta er aðeins meira partí hjá okkur,“ segir skipuleggj- andinn Pan Thorarensen spurð- ur út í muninn á Extreme Chill og Rauðasandi. „Í fyrra vorum við með tvö tjaldsvæði, eitt fjöl- skylduvænt og eitt fyrir partí,“ segir hann og bætir við að hátíð- in hafi alltaf farið mjög vel fram. Miðaverð á Extreme Chill í ár verður um átta þúsund krónur. - fb Smáar en knáar tónlistarhátíðir Dagsetningar eru komnar á tvær íslenskar tónlist- arhátíðir sem haldnar verða næsta sumar. SKIPULEGGJANDI Pan Thorarensen skipuleggur Extreme Chill á Hellissandi. „Ég er enn ekki búinn að átta mig á að ég sé að fara að gera þetta. Ég hef oft verið beðinn um að taka þátt áður en alltaf sagt nei,“ segir rokkarinn Eyþór Ingi Gunnlaugs- son sem tekur þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í lok mánaðar. Eyþór flytur lagið Ég á líf sem er samið af Örlygi Smára og Pétri Erni Guðmundssyni. „Ég veit eig- inlega ekki af hverju ég sló til núna. Lagið höfðaði bara til mín og svo spilar auðvitað inn í að við Pétur erum góðir vinir,“ segir Eyþór. Hann segir að lagið muni koma mikið á óvart en gefur ekk- ert upp um hvort Pétur Örn, sem er einn vinsælasti bakraddasöngvari Íslendinga í Eurovision, verði með á sviðinu. Aðspurður hvort hann hafi dreymt um að verða Eurovision- stjarna segir Eyþór svo ekki vera. Hann hefur þó fylgst með keppn- inni í gegnum árin eins og flestir Íslendingar. „Ég er enn þá móðg- aður fyrir hönd Wig Wam að þeir hafi ekki unnið á sínum tíma. Það er án efa flottasta Eurovision- lag sem hefur verið samið,“ segir hann, en norsku rokkararnir lentu í níunda sæti í keppninni árið 2005 með lagið In My Dreams. Frá því að Eyþór sigraði í Band- inu hans Bubba árið 2008 hefur hann unnið hvern sigurinn á fætur öðrum þegar kemur að leik og söng. Það er nóg fram undan hjá honum á árinu og ætlar hann meðal annars að klára sína fyrstu sóló- plötu. „Hún hefur verið í vinnslu í dágóðan tíma en alltaf þurft að sitja á hakanum vegna einhvers annars, svo nú ætla ég að einbeita mér að henni,“ segir hann. - trs Eurovision hefur aldrei verið draumurinn Eft ir fj ölda tilboða síðustu ár tekur rokkarinn Eyþór Ingi nú þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrsta skipti. ENN MÓÐGAÐUR Eyþór segist hafa fylgst með Eurovision í gegnum árin og enn vera móðgaður fyrir hönd Wig Wam að þeir hafi ekki unnið keppnina árið 2005.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.