Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 28
KYNNING − AUGLÝSINGSkólar & námskeið ÞRIÐJUDAGUR 8. JANÚAR 201310 Það skiptir foreldra miklu máli að börnum þeirra líði vel og nái árangri í lífinu. Hvort sem er í skóla, í íþróttum, með vinum eða í hverju því sem þau taka sér fyrir hendur. „Sjálfs- traust er lykilþáttur í almennri vellíðan og ungt fólk með sterkt sjálfstraust er líklegra til þess að geta tekist skynsamlega á við allar þær freistingar sem lífið hefur upp á að bjóða,“ segir Jón Halldórsson, Dale Carnegie-þjálfari. Foreldrar hafa mikil áhrif „Foreldrar sem hlúa vel að börn- um sínum, hrósa þeim fyrir það sem þau gera vel og gefa sér tíma til að hlusta og ræða við þau um það sem þau eru að takast á við, það eru foreldrar sem auka lík- urnar á því að börnin þeirra fái sterkt sjálfstraust.“ En börn eru ekki alltaf heima hjá sér. Mestan hluta dagsins eru þau í skóla, á æfingum eða í öðrum frístundum. „Einmitt þá reynir hvað mest á að þau hafi nægt sjálfstraust til þess að takast á við lífið. Við viljum öll að börn- in okkar hafi leiðtogahæfileika og þori að velja á milli réttu leiðar- innar og hinnar röngu. Hafi kjark til þess að láta ekki undan þrýst- ingi vinanna og hafi sjálfstraust til þess að segja NEI við reykingum, drykkju og fíkniefnum. Grunnur- inn að því er sterkt sjálfstraust.“ Félagsleg færni hefur áhrif „Ungt fólk með sterka félagslega færni er oft frekar viðurkennt í vinahópum. Þar af leiðandi fær það frekar jákvæða styrkingu frá umhverfinu sem eykur sjálfs- traustið. Hins vegar lenda sumir einstaklingar sem ekki eru félags- lega sterkir oft í erfiðari aðstæð- um þar sem þeir eru ekki viður- kenndir á sama máta. Margir upp- lifa mikla höfnum, er strítt, eru skildir út undan og í verstu tilfell- um lenda þeir í einelti, sem er eitt- hvað sem enginn ætti að þurfa að upplifa.“ Til að hjálpa unglingum að takast á við þættina hér að ofan hefur Dale Carnegie-þjálfun sett upp námskeiðið Næsta kynslóð fyrir ungt fólk. „Námskeiðin hafa margsannað sig og sýna rannsóknir á árangri þeirra stóraukið sjálfstraust, já- kvæðara viðhorf og áræðni hjá þátttakendum.“ Er barnið þitt með gott sjálfstraust? Rannsóknir sýna fram á að börn og unglingar sem sótt hafa Dale Carnegie-námskeið hafa aukið sjálfstraust sitt og félagsfærni svo um munar. Jón Halldórsson þjálfari hjá Dale Carnegie segir sjálfstraust lykilþátt í almennri vellíðan barna og unglinga. MYND/VALLI COMENIUS MENNTAÁÆTLUN EVRÓPUSAMBANDSINS NÁMSKEIÐ Í GERÐ COMENIUS OG GRUNDTVIG SAMSTARFSUMSÓKNA 15. JANÚAR Í NÁMU, SAL ENDURMENNTUNAR HÍ FYRIR HVERJA: Leik-, grunn-, framhaldsskóla og fullorðinsfræðslustofnanir STAÐUR: NÁMA, salur Endurmenntunar HÍ Dunhaga 7, 107 Reykjavík STUND: 15. janúar kl 13-15 SKRÁNING: fyrir 13. janúar hjá lme@lme.is Evrópsk samstarfsverkefni byggja á samstarfi minnst 3 stofnana frá a.m.k. 3 Evrópulöndum. Verkefnin eru til 2 ára og styrkir eru veittir til gagnkvæmra heimsókna kennara, starfsmanna og nemenda þegar það á við. STYRKIR ERU ALLT AÐ 24.000 € UMSÓKNARFRESTUR ER 21. FEBRÚAR NK. Á fundinum verða umsóknareyðublöðin skoðuð og umsækjendur leiddir í gegnum umsóknar- og matsferlið. Leiðbeinandi: Þorgerður Björnsdóttir Hægt er að óska eftir aðgengi að námskeiðinu í gegnum fjarfundabúnað símenntunarstöðva á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar um áætlunina og forgangsatriði næsta umsóknarfrests er að finna á www.comenius.is og heimasíðu Menntaáætlunar ESB www.lme.is LANDSKRIFSTOFA MENNTAÁÆTLUNAR ESB www.lme.is Comenius, Grundtvig Dunhaga 5 | 107 Reykjavík | Sími: 525 4900 Skólaganga er gjarnan eini starfi þeirra sem ungir eru og þeim talsvert auðveld- ari en fullorðnu fólki sem vinnur fullan vinnudag auk þess að reka heimili og rækta samband við maka og börn. Því þarf gott skipu- lag til að námsferillinn gangi upp. Hafðu eftirfarandi í huga áður en þú sest á skólabekk: ● Finndu út hvað þú vilt læra og hversu marga tíma þú vilt sækja. Athugaðu einnig hvernig at- vinnuhorfur verða á þínu starfs- sviði að námi loknu. Sé ætlun- in að læra eitthvað sem teng- ist nýju áhugamáli eða lífsstíl er tilvalið að virkja vinina með þér. Hópvinna meðal vina eykur félagslegan ávinning á náms- leiðinni og léttir byrðar í nám- inu. ● Heimsæktu skólann sem þú hyggst læra við, skoðaðu bóka- safnið, aðstöðu nemenda og bílastæðin. Gakktu um svæð- ið og fáðu tilfinningu fyrir því hvernig væri að sækja tíma í skólanum. Fáðu einnig að sitja tíma í áhugaverðu fagi ef kost- ur er. ● Ræddu við nemendur og spurðu út í kosti og galla, reynslu þeirra og fáðu góð ráð. Námsráðgjafar veita einnig góðar og gagnlegar upplýsingar. ● Vertu viss um að ráða við námskröfur skólans, tímasókn og heimavinnu án þess að það bitni á vinnu þinni, fjölskyldu og vinum. ● Skólastarf nú til dags byggir á tölvum og netaðgangi og krefst dugandi tölvukunnáttu. At- hugaðu hvort skólinn bjóði upp á kennslu sem mætir kröfum þeirra um tölvukunnáttu. ● Hefurðu efni á að fara aftur í skóla? Nám útheimtir talsverð- an kostnað á móti vinnutapi og getur valdið eldri nemendum streitu vegna fjárhagsskuld- bindinga. Góð fjárhagsáætlun er undirstaða þess að fara aftur í nám. Aftur á skólabekk Með aukinni hreysti og hækkandi lífaldri setjast æ fleiri á skólabekk eftir miðjan aldur. Þá ber að hafa í huga að nám er fullt starf og krefst skipulags. Maður er aldrei of gamall til að fara í skóla og sífellt fleiri nýta efri árin til að setjast aftur á skólabekk. Nám krefst skipulagningar og góðs undirbúnings. DISCOVERY CHANNEL ER Á STÖÐ 2 FJÖLVARP | FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á STOD2.IS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.