Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 42
8. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 26 Nikola Karabatic þarf að breyta ímynd sinni upp á nýtt. Ég held að hann verði góður á þessu móti. Atli Hilmarsson handboltaspekingur © GRAPHIC NEWSMynd/NordicPhotos/Getty HM karla í handbolta Línumaður- inn Julen Aguinagalde er lykilmaður í liði heima- manna sem ætla sér stóra hluti á heimavelli. Portúgal Frakkland Sevilla Barcelona Granollers Zaragoza Guadalajara Madrid S P Á N N 2011 Frakkland 2009 Frakkland 2007 Þýskaland 2005 Spánn 2003 Króatía 2001 Frakkland Síðustu heimsmeistarar Riðlakeppni: 11.-19. janúar. Efstu fj ögur liðin komast áfram í 16-liða úrslit. A Granollers* Frakkland Þýskaland Argentína Túnis Svartfj allaland Brasilía B Sevilla Danmörk Makedónía Ísland Katar Rússland Síle C Zaragoza Serbía Slóvenía Pólland Suður-Kórea Hvíta-Rússland Sádí-Arabía D Madrid Spánn Króatía Ungverjaland Alsír Egyptaland Ástralía *12 leikir í Granollers, 3 í Barcelona 21.-22. janúar: Forsetabikarinn í Guadalajara Keppni liða um 17.-24. sæti Jan. 16-liða úrslit 20 21 20 21 23 25 27 23 26 B1 - A4 D1 - C4 A3 - B2 C3 - D2 B3 - A2 D3 - C2 A1 - B4 C1 - D4 1 4 9 13 12 14 10 11 7 5 3 2 6 8 Zaragoza Barcelona Barcelona Barcelona ZaragozaBarcelona8-liða úrslit Undanúrslit Sigurlið 1-2 Sigurlið 7-8 Sigurlið 3-4 Taplið úr undanúrslitum Sigurlið 5-6 Sigurlið 11-12Sigurlið 9-10 Bronsleikur Úrslitaleikur: Sigurlið úr undanúrslitum Heimild: IHF HANDBOLTI Ásgeir Örn Hallgríms- son verður í stóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu í handknatt- leik á heimsmeistaramótinu sem hefst um næstu helgi á Spáni. Guðjón Valur Sigurðsson, fyr- irliði landsliðsins, hrósar Ásgeiri fyrir framlag sitt í landsliðinu á undanförnum árum og telur Guð- jón að Ásgeir sé vanmetnasti leik- maður liðsins. „„Geiri“ hefur leyst sitt hlutverk með Alexander Pet- ersson og Ólaf Stefánsson fyrir framan sig í „goggunarröðinni“. Hann hefur aldrei kvartað yfir þessu hlutverki, þrátt fyrir að hann sé stundum að spila í 5 mín- útur og aðra leiki í 50 mínútur. Hann tekur að sér sitt hlutverk og leysir það. Hann er að mínu mati einn vanmetnasti leikmaður liðs- ins á undanförnum árum. Hann er núna í öðru hlutverki og þarf að axla meiri ábyrgð, og taka að sér það hlutverk að aðstoða yngri leik- mennina sem eru að taka við hans hlutverki. Þetta er sérstakur tími en jafn- framt skemmtilegur, nýir leik- menn sem eru með sína styrk- leika og hæfileika, og við þurfum að nýta þá sem best,“ bætti Guð- jón við en hann er sáttur við breytt keppnisfyrirkomulag á HM. „Það er gott að vera laus við milliriðlana – ég hef aldrei þolað þessa milliriðla. Eftir riðlakeppn- ina á HM eru bara bikarúrslita- leikir og ég held að það sé fín pressa fyrir liðið. Við höfum oft sýnt okkar bestu leiki þegar við erum með ískalt byssuhlaupið upp við hnakkann,“ sagði Guðjón Valur. - seth „Geiri“ er vanmetnasti leikmaður liðsins Ásgeir Örn Hallgrímsson verður í lykilhlutverki á HM og fær hrós frá landsliðsfyrirliðanum, Guðjón Vali. FÆR TÆKIFÆRIÐ Það verður mikil ábyrgð lögð á herðar Ásgeirs Arnar á Spáni í janúar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Það er farið að styttast í heimsmeistaramótið í handbolta en opnunarleikur mótsins verður á föstudag er heimamenn á Spáni spila gegn Alsír. Ísland spilar sinn fyrsta leik á mótinu daginn eftir en Ísland mætir þá Rússum í Sevilla. Fréttablaðið tók púlsinn á þjálf- aranum og fyrrum landsliðsmann- inum Atla Hilmarssyni, sem hefur lengi fylgst vel með alþjóðlegum handbolta, og fékk hann til þess að spá í spilin. Hvaða lið væru sigur- strangleg og hvaða lið gætu komið á óvart að þessu sinni. „Ég held að þetta mót verði svo- lítið erfitt fyrir leikmenn. Það er búið að vera mikið að gera á síð- asta ári þar sem var bæði EM og Ólympíuleikar. Mér finnst leik- menn vera orðnir þreyttir og það gæti kallað á óvænta hluti. Það gæti fjölgað óvæntum úrslitum sem myndi krydda mótið. Ég yrði ekki hissa ef við myndum sjá nýjar hetjur sem þurfa að leysa þreyttu leikmennina af núna,“ segir Atli en það sem hefur verið að gerast er að leikmenn hafa hreinlega verið að taka sér frí. Þeir þola ekki meira álag. Ómannlegt álag „Í mörgum tilfellum er það mjög skiljanlegt. Það er nánast ómann- legt álag á leikmenn sem eru að spila í sterku liði, fara langt í öllum keppnum eins og Meistara- deildinni og spila svo á stórmót- um með landsliðinu. Ég er á meðal þeirra sem vilja endurskoða þetta stórmótaskipulag. Það er úr sér gengið að mínu mati.“ Þó svo sterka leikmenn vanti í mörg lið á Atli ekki endilega von á því að einhver ný lið blandi sér í baráttuna um heimsmeistaratit- ilinn. Það verði kunnugleg lið að berjast um efstu sætin nú eins og svo oft áður. „Mér finnst Danir vera lið sem gæti farið alla leið í þessu móti. Mér sýnist Mikkel Hansen vera í lagi og Danir eru því mjög sigur- stranglegir. Það er sterkur kjarni í þessu liði og gríðarlega sterk- ir hraðaupphlaupsmenn eins og Lindberg og Eggert. Svo er Land- in sterkur í markinu og mun lík- lega verja vel eins og venjulega. Ef Danir koma vörninni í gang hjá sér þá verða þeir illviðráðanlegir og keyra grimm hraðaupphlaup í andlit andstæðinganna. Hansen er svo einfaldlega besti leikmaður heims þegar hann er í lagi,“ segir Atli um hið gríðarsterka danska lið sem er í riðli með Íslandi. Karabatic þarf að sanna sig „Frakkar eru náttúrulega alltaf með frábært lið og maður reikn- ar með þeim á toppnum. Það eru líka nokkrir leikmenn í þessu liði sem þurfa að sanna sig upp á nýtt. Nikola Karabatic þarf til að mynda að breyta ímynd sinni upp á nýtt. Ég held að hann verði góður,“ sagði Atli en hann spáir því líka að Ung- verjar, sem unnu eftirminnilegan sigur á Íslandi á ÓL, geti komið á óvart. „Með Laszlo Nagy í toppformi geta Ungverjar komið á óvart. Ég væri ekki hissa ef ungverska liðið færi langt. Ég hef minni trú á Serbum og Króötum núna. Spán- verjar eru svo með svakalega gott lið og á heimavelli. Þeir eru til alls líklegir.“ Króatar eru aðeins að stokka upp hjá sér og verða meðal ann- ars án Ivano Balic á þessu móti en Balic hefur verið einn besti hand- boltamaður heims á undanförnum árum. Á stórmótum er hann venju- lega maðurinn sem dregur vagn- inn fyrir Króata er þeir þurfa virkilega á hjálp að halda. „Þeir eru að yngja upp en það vantar samt ekki gæðin í þeirra lið. Króatar framleiða fullt af leikmönnum og maður sér það á Zagreb-liðinu sem hefur oft geng- ið í gegnum miklar breytingar en kemur svo til baka. Ég sé þá í átta liða úrslitum en spurning hvort þeir fari í undanúrslit. Það eru minni væntingar til liðsins nú en oft áður og það gæti hjálpað þeim,“ segir Atli. Hvað með lið eins og Serbíu og Makedóníu sem slógu í gegn á EM fyrir ári síðan og þá sérstaklega Serbar sem fóru alla leið í úrslit á sínum heimavelli? „Ég hef ekki mikla trú á þeim núna. Heimavöllurinn gerði mikið fyrir Serba í fyrra en það vantar núna. Makedónía er bara Kiril Lazarov. Ef hann er í stuði getur liðið unnið fullt af leikjum. Ég hef samt ekki trú á að það gerist núna.“ Kærkomnar breytingar Breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi heimsmeistara- mótsins. Milliriðlarnir heyra nú sögunni til og þess í stað er farið beint í sextán liða úrslit eftir riðla- keppnina. Hefur verið kallað eftir slíkum breytingum í nokkurn tíma og verður áhugavert að sjá hvernig þessi breyting fellur í kramið. „Þetta er flott breyting fyrir áhorfendur. Þjálfarar myndu örugglega vilja hafa milliriðlana áfram. Að fara beint í úrslitaleiki svona snemma býður upp á óvænt úrslit. Liðin í fyrsta sæti eru ekk- ert endilega örugg. Áhorfendur fá því mikið fyrir sinn snúð og allt getur gerst. Ég held að það sé gott fyrir handboltann að fá svona úrslitaleiki,“ segir Atli. Hvaða lið sér hann fara alla leið í undanúr- slitin? „Það verða Danir, Frakkar og líklega Spánverjar. Svo gæti komið lið eins og Ungverjaland. Ég held að Ísland stoppi í átta liða úrslitum sem væri ásættanlegur árangur.“ henry@frettabladid.is Danir eru sigurstranglegir Atli Hilmarsson, handboltaþjálfari og fyrrum landsliðsmaður, hefur mikla trú á Dönum á HM á Spáni. Atli býst við því að margir leikmenn á mótinu verði þreyttir eft ir mikið álag á síðasta ári. Þjálfarinn segir að það sé gott fyrir handboltann að sleppa milliriðlunum sem áður voru og fara beint í úrslitakeppni sextán liða. MAGNAÐUR Mikkel Hansen er lykil- maður hjá Dönum. NORDICPHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Pep Guardiola, fyrrum stjóri Barcelona, hefur staðfest að hann ætli að snúa sér aftur að þjálfun á næsta keppnistímabili. Guardiola hefur verið í fríi síðan hann hætti hjá Börsungum í vor og hefur haldið til í Banda- ríkjunum ásamt fjölskyldu sinni. „Ég vil gjarnan komast aftur í þjálfun. Ég er ekki kominn með lið en ég vil byrja aftur að vinna,“ sagði hann í dag. Guardiola vill ekki tjá sig um ákveðin félög af virðingu við þá þjálfara sem eru þar að störfum. Hann hefur þó verið orðaður við fjöldamörg lið síðustu mánuði, svo sem bæði Manchester-liðin, Chelsea og Bayern München. Hann fylgist þó vel með sínu gamla liði. „Ég horfi á Barce- lona í sjónvarpinu og það er frá- bært að horfa á liðið spila. Ég var heppinn að hafa fengið að starfa með þessu frábæra liði í nokkur ár og ég er stoltur af því að liðið er að spila jafn vel eða betur í dag.“ - esá Guardiola mun snúa aft ur LIÐ ÁRSINS Iker Casillas, Real Madrid Dani Alves, Barcelona Gerard Pique, Barcelona Sergio Ramos, Real Madrid Marcelo, Real Madrid Xabi Alonso, Real Madrid Xavi, Barcelona Andres Iniesta, Barcelona Lionel Messi, Barcelona Radamel Falcao, Atletico Madrid Cristiano Ronaldo, Real Madrid FÓTBOLTI Argentínumaðurinn ótrúlegi, Lionel Messi, var í gær valinn besti knattspyrnumaður heims árið 2012 af alþjóðaknatt- spyrnusambandinu, FIFA. Þetta er fjórða árið í röð sem Messi hlýtur þessi verðlaun en það er met. Messi átti enn og aftur frábært ár og setti meðal annars heims- met er hann skoraði 91 mark á árinu. Bandaríska konan Abby Wam- bach var valin besta knatt- spyrnukona heims. Hún sló bras- ilísku knattspyrnukonunni Mörtu við en hún hefur hlotið þessa útnefningu fimm sinnum. Vicente del Bosque, landsliðs- þjálfari Spánar, og Pia Sundhage, landsliðsþjálfari bandaríska kvennalandsliðsins, voru valin þjálfarar ársins. Jose Mourinho og Pep Guardiola voru einnig til- nefndir sem þjálfarar ársins í karlaflokki. Athygli vakti í liði ársins að allir leikmenn koma úr spænska boltanum. Það sem meira er þá koma þeir allir frá Barcelona og Real Madrid nema einn. - hbg Messi bestur enn og aft ur SÁ BESTI Margir segja Messi vera þann besta frá upphafi. NORDICPHOTOS/GETTY SPORT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.