Fréttablaðið - 08.01.2013, Síða 10
8. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
GÓÐGERÐARMÁL Landssamband
bakarameistara mun afhenda
Hjartavernd ágóða af sölu Hjarta-
brauðsins svokallaða á morgun.
Síðasta sumar hannaði sam-
bandið brauðið, sem er alfarið
bakað úr heilmöluðu korni og inni-
heldur lítið salt og sykur, í sam-
starfi við Hjartavernd í því skyni
að auka neyslu þjóðarinnar á holl-
ara brauðmeti til að minnka líkur
á hjarta- og æðasjúkdómum síðar
á lífsleiðinni.
Hjartabrauðið hefur verið til
sölu í bakaríum síðan í septem-
ber síðastliðnum, en 60 krónur af
hverju seldu brauði munu renna
til söfnunar fyrir ómtæki Hjarta-
verndar, sem er komið til ára
sinna.
Þá hefur Hjartaheill ákveðið
að styrkja kaup nýs ómtækis með
5,5 milljóna króna gjöf til Hjarta-
verndar.
Félagið tekur við styrkjunum við
hátíðlega athöfn í húsnæði sínu í
Holtasmára 1 í Kópavogi, á morg-
un klukkan 11. - sv
ÁSTRALÍA, AP Leitað var látinna í
brunarústum yfir hundrað heim-
ila og bygginga eftir þriggja daga
kjarrelda á eynni Tasmaníu, sem
er eitt héraða Ástralíu. Hundrað
manns var enn saknað í gær.
Þó nokkrir eldar hafa sprott-
ið upp á sól- og vindþurrkuðum
svæðum suðausturhluta Ástral-
íu. Sjálfboðaliði sem barðist við
kjarr elda nærri þorpinu Gund-
aroo, um 220 kílómetra suðvestur
af Sydney, varð í gær fyrir alvar-
legum bruna á höndum og í andliti,
að því er fram kemur í yfirlýsingu
sem slökkvilið Nýja Suður-Wales
fyrir dreifðari byggðir sendi frá
sér. Maðurinn var sendur í sjúkra-
flugi á spítala í Sydney.
Scott Tilyard, starfandi lög-
reglustjóri í Tasmaníu, sagði
í gær engar fregnir af því að
fólk hefði látið lífið í héraðinu
af völdum eldanna. Það myndi
hins vegar taka einhvern tíma að
ganga úr skugga um það. Síðan á
föstudag hafa kjarreldar eyðilagt
20 þúsund hektara skóga og rækt-
arlands í suðurhluta Tasmaníu.
Tilyard segir ellefu leitarhópa
svipast um eftir þeim hundrað
íbúum eða svo sem enn er saknað.
Meðal annars er leitað í smábæn-
um Dunalley, austur af héraðs-
höfuðborginni Hobart. Þar hafa
um 90 heimili eyðilagst. „Þar til
við höfum náð að ljúka allri leit á
svæðinu getum við ekkert fullyrt
um það hvort allir hafi komist af,“
sagði Tilyard við blaðamenn.
Í gær geisuðu enn kjarreldar á
þremur stöðum í suðurhluta Tas-
maníu og í norðvesturhlutanum.
Lögregla hefur kært rúmlega þrí-
tugan mann fyrir að hafa orðið
valdur af einum brunanna með
því að hafa fyrir helgi látið varð-
eld eftirlitslausan. Nafn mannsins
var ekki gefið upp og óljóst hvaða
refsing kann að bíða hans, verði
hann fundinn sekur.
Julia Gillard, forsætisráðherra
Ástralíu, sem flaug til Tasmaníu
í gær, varaði við því að hitastig
færi mjög hækkandi í Nýja Suður-
Wales í dag, fjölmennasta héraði
Ástralíu, og því væri mikil hætta
á kjarreldum. „Við búum í landi
sem er heitt og þurrt og verður
reglulega fyrir skemmdum af
miklum kjarreldum sem ganga
yfir,“ sagði hún við blaðamenn.
„Og þótt ekki sé hægt að kenna
loftslagsbreytingum um ein-
hvern ákveðinn atburð […] vitum
við þó að vegna loftslagsbreytinga
eigum við eftir að sjá meiri öfga í
veðurfari og aðstæðum.“
Shane Fitzsimmons, slökkvi-
liðsstjóri slökkviliðs Nýja Suð-
ur-Wales fyrir dreifðari byggðir,
sagði í gær að kjarreldar geis-
uðu á fleiri en 90 stöðum í hér-
aðinu, þar með talinn eldurinn
við Gundaroo. Hann varaði við
því að aðstæður gætu versnað í
dag. Engin heimili væru þó enn
í hættu.
Gert er ráð fyrir að hitastig í
héraðinu nái allt að 45 gráðum á
Celsíus í dag og vindstyrkur gæti
náð yfir 22 metrum á sekúndu.
Kjarreldar eru algengir að sum-
arlagi í Ástralíu. Í febrúar 2009
urðu hundruð elda sem geisuðu
í Viktoríuhéraði 173 að bana og
eyðilögðu yfir tvö þúsund heimili.
olikr@frettabladid.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
0
32
88
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS Melbourne
Hobart Boomer
bay
TASMANÍA
Á S T R A L Í A
Kjarreldar í Tasmaníu
LOFTMYND Brunnin hús við Boomer-
flóa á eynni Tasmaníu í Ástralíu.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Hita- og þurrkatíð
eykur eldhættuna
Stjórnvöld í Ástralíu óttast fleiri kjarrelda víðar í landinu. Í suðurhluta landsins
var í dag spáð roki og allt að 43 stiga hita. Á eynni Tasmaníu hafa yfir hundrað
heimili og byggingar orðið eldi að bráð. Í gær var hundrað manns enn saknað.
Í BRUNNUM SKÓLA Julia Gillard, forsætisráðherra Ástralíu, heimsótti Tasmaníu í gær og skoðaði svæði sem hart eru leikin af
kjarreldum. Hér er hún í brunarústum Dunally-barnaskólans í suðausturhluta Tasmaníu. Á suðurhluta eyjunnar hafa yfir hundr-
að heimili orðið eldinum að bráð. NORDICPHOTOS/AFP
Næstu þrjá áratugi mun ein-
staklingum eldri en 65 ára fjölga
úr 40 þúsund í tæp 90 þúsund,
gangi þjóðhagsspár eftir fyrir
árið 2024. Dauðsföllum vegna
kransæðastíflu fækkaði um 80
prósent hjá fólki undir 75 ára
aldri á tímabilinu frá 1981 til
2006. Með ómtækni má greina
byrjunarstig æðakölkunar löngu
áður en hjarta- og æðasjúkdómar
gera vart við sig.
➜ Eldra fólki fjölgar
Bakarameistarar og Hjartaheill afhenda gjafir til Hjartaverndar á morgun:
Bakarar styrkja kaup á nýju ómtæki
HJARTADEILD LSH Hlutfall eldra fólks
mun aukast töluvert á næstu áratugum
og nauðsynlegt er að sporna við því
með auknum forvörnum og eftirliti.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SKÓLAMÁL Hvalfjarðarsveit
hyggst útvega öllum nemendum
og kennurum í leik- og grunnskóla
spjaldtölvu til afnota.
Segir í frétt frá sveitarfélaginu
að markmiðið sé fjölbreyttari leið-
ir í kennsluháttum. „Við ætlum
að byrja á því að fá kennarana til
að kynna sér tækjabúnaðinn og
kennsluefnið og svo í framhaldinu
munum við innleiða þetta í hvern
árgang fyrir sig á næstu tveimur
árum,“ er haft eftir skólastjóra
Heiðarskóla. - gar
Framþróun í Hvalfirðinum:
Allir nemendur
fá spjaldtölvu