Fréttablaðið - 08.01.2013, Blaðsíða 16
8. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Elías Snæland Jónsson er sjötugur
í dag. Ritstörf hafa verið aðalstarf
Elíasar undanfarin ár en hann vann
lengst af í fjölmiðlum sem blaða maður
og ritstjóri. „Ég hef starfað sem rithöf-
undur síðan ég hætti að hamast á dag-
blöðunum, sem var mitt ævistarf. Á
síðasta ári kom út barnabókin Ævintýri
á Ljósanótt en árið 2011 saga Möðru-
vallahreyfingarinnar sem var mikið
rit sem tók nokkur ár að skrifa. Nú er
ég með í smíðum barnabók sem kemur
væntanlega út á næsta ári,“ segir Elías
sem segir ekki vandamál að finna sér
efnivið í sögur. „Ég fæ alveg nóg af
hugmyndum. Þær skrifa ég svo hjá
mér jafnóðum og hef alltaf gert. Það
er nauðsynlegt að halda hug myndum
til haga ætli maður að láta verða af
því að vinna úr þeim. Ég skrái þær hjá
mér og útfæri stundum eitthvað. Svo á
ég þær til í möppu í tölvunni þar til ég
þarf á þeim að halda.“
Elías vann við blaðamennsku frá
árinu 1963 til 2002. „Ég hóf ferilinn
í Noregi, en svo var ég á Tímanum,
Vísi, fór þaðan á Tímann þar sem ég
var ritstjóri og svo yfir á DV en ég var
aðstoðarritstjóri blaðsins um árabil.
Loks var ég ritstjóri Dags,“ segir Elías
sem hefur íhugað að gera ferli sínum
í fjölmiðlum skil á prenti. „Það hefur
stundum verið rætt við mig að ég ætti
að skrifa um ferilinn í blaðamennsku
og það getur svo sem vel verið að ég
láti verða af því einhvern tíma þegar
tími gefst til þess,“ segir Elías.
Spurður hvort hann ætli að halda
veislu í tilefni sjötugsafmælis síns
segir Elías svo ekki vera. „Við hjónin
ætlum saman út úr bænum, við ætlum
að njóta íslenskrar náttúru í tilefni
dagsins. Ég hef aldrei haldið neinar
stórar afmælisveislur, ég hef ekki
kunnað við það,“ segir Elías að lokum.
sigridur@frettabladid.is
Alltaf nóg af hugmyndum
Elías Snæland Jónsson er sjötugur í dag og heldur upp á daginn í íslenskri náttúru.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma og systir,
ERLA KARELSDÓTTIR
lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu í Hafnarfirði
að morgni 3. janúar 2013. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn
11. janúar klukkan 13.00.
Jón Hartmann
Jóhanna Katrín Jónsdóttir
Guðný Karen Jónsdóttir
Jón Birgir Jónsson
systkini og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
JÓHANNA GÍSLADÓTTIR
Skúlagötu 40b, Reykjavík,
sem lést á Droplaugarstöðum 1. janúar
2013 verður jarðsungin frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 10. janúar, klukkan 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á
Barnaspítalasjóð Hringsins, símar 543-3022 og 543-3025.
Ólafur Guðjónsson
Gísli Ólafsson Elísabet Solveig Pétursdóttir
Viðar Ólafsson Birna Björnsdóttir
Þórunn Ólafsdóttir
Sveinn Ingi Ólafsson Gyða Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR
SVENDSEN
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
27. desember. Útförin verður gerð frá ríkissal
Votta Jehóva, Hraunbæ 113, fimmtudaginn
10. janúar kl. 13.00.
Bernhard Palmqvist Svendsen Kolbrún Sigurðardóttir
Bjarne Palmqvist Svendsen Elínborg Ellertsdóttir
Skúli Thor Palmqvist Svendsen
barnabörn og langömmubörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN G. JOHNSON
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
miðvikudaginn 9. janúar kl. 13.00. Blóm og
kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala
Hringsins eða aðrar líknarstofnanir.
Friðþjófur Ó. Johnson Sigurlaug Sigurðardóttir
Gunnlaugur Ó. Johnson Hjördís Bjartmars Arnardóttir
Ólafur Ó. Johnson Bjarndís Pálsdóttir
Helga Guðrún Johnson Kristinn Gylfi Jónsson
og barnabörn.
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
EVA SVEINBJÖRG EINARSDÓTTIR
ljósmóðir,
Digranesheiði 19, Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 5. janúar.
Hermann Einarsson Lára Runólfsdóttir
Guðmunda Þ. Einarsdóttir Sigurbjörn Ólason
systkinabörn og fjölskyldur þeirra.
Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát
og útför föður okkar, tengdaföður, afa og
langafa,
SNÆBJÖRNS ÁSGEIRSSONAR
Lindarbraut 29 (Nýlenda),
Seltjarnarnesi.
Bryndís Snæbjörnsdóttir Mark Wilson
Jón Snæbjörnsson Soffía Guðmundsdóttir
Ásgeir Snæbjörnsson Guðný Hreinsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og bróðir,
JÓHANN HEIÐAR GUÐJÓNSSON
Skarðshlíð 36d, Akureyri,
lést laugardaginn 29. desember. Útför hans
fer fram frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
8. janúar kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á Heimahlynningu
Akureyri og Krabbameinsfélag Akureyrar.
Elsa Hlín Axelsdóttir
Guðjón Páll Jóhannsson Valborg Inga Guðjónsdóttir
Björk Jóhannsdóttir Steinþór Guðmundsson
barnabörn og systkini hins látna.
Ástkær móðir mín, dóttir og systir,
AUÐUR MJÖLL FRIÐGEIRSDÓTTIR
verður jarðsungin í dag 8. janúar kl. 13.00
frá Fella- og Hólakirkju.
Ísak Örn Arnarsson
Elsabet Jónsdóttir
systkini og fjölskyldur.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
KRISTÍN SIGURLÍNA EIRÍKSDÓTTIR
frá Hlemmiskeiði,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Ási í
Hveragerði miðvikudaginn 2. janúar verður
jarðsungin frá Skálholtskirkju laugardaginn
12. janúar kl. 11.00.
Ingólfur Bjarnason
Ómar Örn Ingólfsson Rósa Guðný Bragadóttir
Inga Birna Ingólfsdóttir Árni Svavarsson
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær eiginkona mín og móðir okkar,
KRISTJANA ELÍSABET
KRISTJÁNSDÓTTIR
Brúnavegi 9, Reykjavík,
lést þriðjudaginn 1. janúar á Hrafnistu í
Reykjavík. Útför hennar fer fram frá Áskirkju
föstudaginn 11. janúar kl. 13.00.
Guðlaugur Gíslason
Guðmundur Guðlaugsson
Gísli Steinn Guðlaugsson
Elsku mamma, tengdamamma og amma
okkar,
GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR
Lækjargötu 30, Hafnarfirði,
lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi
að morgni 5. janúar. Útförin verður auglýst
síðar.
Sóley Ólöf Hlöðversdóttir Heiðar Jóhannsson
Bjarney Kristín Hlöðversdóttir Ólafur Ingólfsson
Þórey Maren Sigurðardóttir Óskar Thorarensen
Sveinbjörn S. Sigurðsson Arndís Þorvaldsdóttir
og barnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
PÁLL AXELSSON
Víðilundi 2c, Akureyri,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar fimmtudaginn
27. desember sl. Útför hans hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Starfsfólki gjörgæslu- og lyflækningadeilda
á Sjúkrahúsi Akureyrar eru færðar sérstakar þakkir fyrir
ómetanlega umönnun og aðstoð.
Sigurbjörg Pálsdóttir
Hólmfríður Pálsdóttir
Herdís Pálsdóttir
Þórhildur Pálsdóttir
og fjölskyldur.
Elskuleg móðir okkar, systir,
amma og langamma,
ÞÓRUNN BJÖRGÚLFSDÓTTIR
lést á þrettándanum 6. janúar.
Guðrún Hreggviðsdóttir James Stuart Crosbie
Þórunn Hreggviðsdóttir Finnbogi Rútur Arnarson
Ása Hreggviðsdóttir Birgir E. Birgisson
Ólafur Björgúlfsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR JÓNSSON
Sævargörðum 5, Seltjarnarnesi,
lést á Droplaugarstöðum 1. janúar. Útförin
fer fram frá Seltjarnarneskirkju föstudaginn
11. janúar kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á minningarkort Félags
aðstandenda heimilisfólks á Droplaugarstöðum sem fást á
skrifstofu Droplaugarstaða, sími 414-9507.
Þórlaug Guðbjörnsdóttir
Anna Sigríður Ólafsdóttir Sigmundur Tómasson
Ragnheiður Ólafsdóttir Stig Faber Rasmussen
Þorbjörg Einarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær sonur minn, bróðir okkar,
mágur og frændi,
RÖGNVALDUR ÓMAR GUNNARSSON
lést þann 4. janúar sl. Jarðsungið verður frá
Breiðholtskirkju fimmtudaginn 10. janúar
kl. 13.00.
Sigurbjörg Rögnvaldsdóttir
Anna Rúnarsdóttir Sigurjón Haraldsson
Sigrún Rúnarsdóttir Guðmundur R. Ársælsson
Erla Vigdís Rúnarsdóttir Skúli Sigurbergsson
og frændsystkini.
SJÖTUGUR Í DAG Elías Snæland Jónsson og
eiginkona hans, Anna Kristín Brynjúlfsdóttir.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM