Fréttablaðið - 22.01.2013, Síða 1
BANDARÍKIN, AP „Áratugi stríðs-
átaka er nú að ljúka. Efnahagsbati
er að hefjast,“ sagði Barack Obama
Bandaríkjaforseti í ræðu sinni í
Washington þegar hann tók við
forsetaembættinu öðru sinni í gær.
Hundruð þúsunda manna komu
til að hlusta á forsetann flytja
ræðu sína, sem einkenndist af
bjartsýni þrátt fyrir harðvítug
átök á þingi undanfarið kjörtíma-
bil. „Möguleikar Bandaríkjanna
eru takmarkalausir,“ sagði Obama.
Mikil bjartsýni ríkti fyrir fjór-
um árum þegar Obama sór emb-
ættiseið sinn til fyrra kjörtíma-
bils, en þegar leið á kjörtímabilið
tóku vonbrigði að sækja jafnvel að
mörgum hörðustu stuðningsmönn-
um hans.
Á seinna kjörtímabilinu bíða
hans erfið verkefni, meðal ann-
ars glíma við gríðarháan fjár-
lagahalla og áframhaldandi átök
við repúblikana á þingi.
- gb
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
16
BRAUÐ ER EKKI FITANDISumir telja að brauð sé fitandi. Það er þjóðsaga því
brauðið er ekki meira fitandi en önnur matvara. Það er
hins vegar fitandi að borða of mikið. Gróf brauð eru með
hátt hlutfall trefja sem er gott fyrir meltinguna og dreg-
ur úr hungurþörf. Brauðið er kolvetnaríkt og gefur orku.
KYNFERÐISLEGUR UNDIRTÓNNLÆKNADAGAR 2013 Óttar Guðmundsson geðlæknir heldur fyrirlesturinn
Kynlíf í Íslendingasögum á hádegisverðarfundi á fimmtudaginn F d
hluti af dagskrá Læknadaga 2013 í Hör
Airfree lofthreinsitækiðGegn myglugró og myglusveppi
Opið kl. 9 -18 laugardaga kl. 11 - 16 Stórhöfða 2 5 569 3100 seirberg.i
ÚTSALA
Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870
Opið mán.-fös. kl. 11.00-18.00, lau. 11.00-15.00 • www.friendtex.is • praxis.is • soo.dk
40–70% afsl.
Ótrúleg tilboð í gangi
SÉRBLAÐ
Fólk
Sími: 512 5000
22. janúar 2013
18. tölublað 13. árgangur
Frökkum fagnað
Franski herinn er kominn til Diabaly
í Malí eftir að hafa hrakið íslamista
úr bænum. Frakkar vilja að herlið
frá Afríkuríkjunum taki við keflinu á
næstu vikum. 10
Sækýr yfir Ermarsund Sex íslenskar
konur hyggjast synda boðsund yfir
Ermarsund og til baka næsta sumar. 2
Gefa merk landabréf Þýsk hjón
ætla að gefa Akureyrarbæ safn hand-
málaðra landabréfa af Íslandi. Hjónin
segjast ástfangin af Akureyri og því
vilji þau að kortasafnið endi þar. 8
Umhverfið njóti vafans Utanríkis-
ráðherrar Noregs og Svíþjóðar segja
umhverfisvernd alltaf verða í for-
grunni þegar ákvarðanir verða teknar
á norðurslóðum. 12
Möguleikar Banda-
ríkjanna eru
takmarkalausir.
Barack Obama Bandaríkjaforseti
SPORT Vignir Svavarsson var besti
leikmaður Íslands á HM í handbolta
að mati Fréttablaðsins. 30
HEILSUFRÉTTIR FYLGJA
FRÉTTABLAÐINU Í DAG
MENNING Endurgerð kvikmyndarinn-
ar Á annan veg hlýtur góðar viðtökur
á Sundance-hátíðinni. 34
MENNING „Ég gerði aðallega
grín að sjálfri mér, en svo tók ég
kreppuna á Íslandi líka fyrir og
skaut á Icesave.
Bretarnir tóku
því alls ekki
illa og hlógu
að bröndurun-
um um að við
hefðum stolið
peningunum
þeirra,“ segir
Snjólaug Lúð-
víksdóttir uppi-
standari.
Snjólaug, sem vinnur að
tökum á stuttmynd ytra, tók
á dögunum þátt í uppistands-
keppninni Laughing Horse í
London þar sem leitað er að
besta nýliða ársins. Hún sigr-
aði í sínum riðli í undankeppn-
inni og er því komin áfram í
aðra umferð ásamt rúmlega
350 öðrum, en um 1.500 manns
skráðu sig til leiks í upphafi.
Þetta er í fyrsta sinn sem hún
reynir sig við uppistand.
- trs / sjá síðu 34
Gekk vel í fyrstu tilraun:
Heillaði Breta
með uppistandi
HEILBRIGÐISMÁL Inflúensan er
skæðari hér á landi en í flestum
öðrum Evrópuríkjum, samkvæmt
tölum Sóttvarnastofnunar Evrópu.
Aðeins í Noregi er flensan eins
kröftug og hér.
Þá er flensan einnig fyrr á ferð-
inni en undanfarin ár, segir Harald-
ur Briem sóttvarnalæknir. Staðfest-
um inflúensutilvikum hefur fjölgað
og tilkynningar um inflúensulík ein-
kenni eru miklu fleiri nú en á sama
tíma síðustu ár, þegar faraldurinn
hefur náð hámarki undir lok febrú-
ar. Haraldur gerir einnig ráð fyrir
því að flensan muni ná hámarki fyrr
í ár. „Þetta mun ábyggilega ganga
yfir allan janúar og langt fram í
febrúar.“
Björn Zoëga, forstjóri Landspít-
alans, segir stöðu mála á spítalan-
um örlítið betri en fyrir helgi, en
óvissustig er óbreytt þar. Tæplega
fjörutíu manns eru enn í einangrun
vegna inflúensu, nóróveiru og RS-
veirunnar.
„Það er seinni tíma vandamál að
glíma við kostnaðinn sem fylgir því
að hafa fólk á aukavöktum og eitt-
hvað sem við munum bara kíkja á
þegar hlutirnir fara að róast,“ segir
hann.
„Spítalinn hefur leyfi til að gera
það sem þarf til að bregðast við
þessum aðstæðum og það stoppar
ekki á peningum af hálfu ráðuneyt-
isins,“ segir Guðbjartur Hannes-
son velferðarráðherra. Hann hefur
fundað með sóttvarnalækni. „Við
fylgjumst daglega með gangi mála
og það er ekki fyrirstaða að veita
fjármagn eða opna deildir, enda er
það allt í gangi.“
„Ráðherra, og fleiri í ráðuneytinu,
hafa verið mjög skýrir frá byrjun og
okkur hafði ekki einu sinni dottið í
hug að fara að blanda peningum inn
í þetta strax,“ segir Björn.
„Þetta er svo mikið álag af ýmsum
ástæðum. Það er ekki þannig að við
sjáum mikla aukningu í því að fólk
leiti til heilsugæslunnar eða bráða-
móttökunnar. Þeir sem koma eru þá
veikari, þurfa að leggjast inn og þá
byrja erfiðleikarnir,“ segir Harald-
ur Briem.
- þeb, sv / sjá síðu 6
Flensan skæðust hér á landi
Inflúensan er skæðari hér og í Noregi en í öðrum Evrópulöndum. Er fyrr á ferðinni en áður. Um 40 eru í ein-
angrun á LSH, meðal annars vegna flensunnar. Allt gert sem þarf til að bregðast við, segir velferðarráðherra.
22
staðfest infl úensutilfelli á
veirufræðideild Landspítal-
ans í annarri viku ársins.
Þeir sem koma eru
þá veikari, þurfa að
leggjast inn og þá byrja
erfiðleikarnir.
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
SKOÐUN Teitur Guðmundsson segir
uppfinningar geta verið hættulegar
fyrir heilsuna. 17
Bolungarvík 1° A 5
Akureyri 0° SA 5
Egilsstaðir 1° SA 3
Kirkjubæjarkl. 2° SA 7
Reykjavík 2° SA 9
Léttir til norðanlands Í dag má búast
við SA-átt, víða 3-8 m/s en heldur
hvassara við suður- og vesturströndina.
Stöku skúrir eða slydduél S- og SA-til. 4
SNJÓLAUG
LÚÐVÍKSDÓTTIR
Barack Obama segist bjartsýnn við upphaf seinna kjörtímabils síns:
Hvetur þjóð sína til dáða
FAGNAR MEÐ FJÖLSKYLDUNNI Dætur Baracks Obama Bandaríkjaforseta, þær Sasha og Malia, tóku ásamt
eiginkonu hans, Michelle, þátt í hátíðlegri innsetningarathöfn í Washington í gær. NORDICPHOTOS/AFP