Fréttablaðið - 22.01.2013, Síða 2
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
FÓLK „Við ætlum að sanna að mið-
aldra kerlingar eru ekki dauðar
úr öllum æðum,“ segir Guðrún
Hlín Jónsdóttir, liðsstjóri Sæ-
kúnna, hóps kvenna sem ætla að
synda boðsund yfir Ermarsundið
í sumar.
Sex konur úr Sækúnum ætla að
þreyta boðsundið síðustu vikuna í
júní. Guðrún verður liðsstjóri um
borð í fylgdarbát og áttunda sjó-
sundkonan verður með og gerir
heimildarmynd um ævintýrið.
Guðrún segir erfitt að komast
að til að synda yfir Ermarsundið,
það geti jafnvel tekið tvö til þrjú
ár. Sækýrnar hafi þó náð að útvega
sér góðan skipstjóra, Eddie Spell-
ing, sem fylgir þeim á bát sínum
Anastasia. „Við fáum fyrsta sund-
rétt síðustu vikuna í júní. Ef okkur
líst ekki á aðstæður getur næsti
nýtt tækifærið,“ útskýrir hún.
Ekki er enn vitað nákvæmlega
hvaða dag íslensku Sækýrnar
leggjast til sunds. „En það verður
lagt af stað á morgunflóðinu milli
klukkan þrjú og fjögur um nótt.
Fyrstu tímana synda þær því í
myrkri. Ég verð varamaður tilbú-
in á kantinum að stökkva út í. Erm-
arsundið er Mount Everest sund-
manna og við ætlum okkur yfir og
við förum yfir,“ segir Guðrún.
Synt verður frá Dover í Eng-
landi yfir til Calais í Frakklandi.
Konurnar munu skiptast á og hver
synda klukkstund í senn. „Það er
ekki synt beint yfir því straumarn-
ir gera það að verkum að það er
synt í S,“ segir Guðrún sem kveð-
ur sundið yfir Ermarsund að jafn-
aði taka 12 til 14 klukkustundir –
aðra leið.
„En við ætlum að synda rakleitt
aftur til baka,“ segir Guðrún og
slær enn á létta strengi: „Við erum
ekkert vissar um að okkur líki við
Calais þegar við komum yfir.“ Allt
í allt gæti sundsprettur Sækúnna
varað í um þrjátíu klukkustundir.
Sækýrnar hafa allar stundað
sjósund um árabil. Meðal afreka
einstakra liðsmanna er Drang-
eyjarsund, Hríseyjarsund, Við-
eyjarsund og boðsund fjögurra
þeirra upp á Akranes. „Þær eru
seigir jaxlar, algerir dísilmótorar
og kalla ekki allt ömmu sína. Sjó-
sund er áttatíu prósent hugarfar,“
segir Guðrún, sem aðspurð upp-
lýsir að nafnið Sækýrnar komi frá
vatnaskepnunnni Manatee, sem
margir þekkja frá Flórída.
„Þetta eru miklir húmoristar
og það er ekki of mikill gorgeir
í okkur. Við skömmumst okkar
hvorki fyrir að vera miðaldra
konur né að vera „bloody cows“,“
spaugar Guðrún er hún er spurð
út í nafn Sækúnna sem nú safna
styrkjum fyrir leiðangurinn. Verði
afgangur er hann ætlaður MS-
félaginu á Íslandi.
„Ef satt skal segja þá eigum
við leynivini, nokkra einstaklinga
sem styrktu okkur strax, en okkur
vantar samt enn þá upp á,“ segir
sækýrin Guðrún Hlín Jónsdóttir.
gar@frettabladid.is
Íslenskar sækýr synda
yfir Ermarsund í júní
Sex íslenskar konur hyggjast synda boðsund yfir Ermarsund og til baka í júní. Þær
nefna hópinn Sækýrnar. Liðsstjórinn kveður þær þrautreynda „dísilmótora“. Gera
á heimildarmynd um sundið sem gæti varað 30 tíma. „Leynivinir“ styrkja hópinn.
SÆKÝRNAR Sundkonurnar í Sækúnum eru seigar og láta slæmt veður og öldugang
lítil áhrif á sig hafa segir liðsstjórinn Guðrún Hlín Jónsdóttir, sem er efst til hægri á
myndinni. MYND/SÆKÝRNAR
Við skömmumst okkar
hvorki fyrir að vera mið-
aldra konur né að vera
„bloody cows“.
Guðrún Hlín Jónsdóttir, liðsstjóri
Sækúnna.
Kjartan, þannig að þetta var
ekki bara hannað fyrir Ísland?
„Nei, þetta var hannað fyrir Noreg,
Svíþjóð, Finnland, Danmörku, Bret-
land og Írland til að byrja með.“
Kjartan Þór Þórðarson er framkvæmdastjóri
Saga Film. Fyrirtækið hefur selt sniðið að
þáttunum Hannað fyrir Ísland til útlanda.
ALÞINGI Meirihluti stjórnskip-
unar- og eftirlitsnefndar stefn-
ir að því að taka frumvarp um
nýja stjórnarskrá úr nefnd í dag.
Málið er á dagskrá Alþingis á
fimmtudag.
Fulltrúar frá Samfylkingunni
funduðu með stjórnarandstöð-
unni um málið í gær, en vegna
forfalla mætti enginn fulltrúi
Vinstri grænna á fundinn. Val-
gerður H. Bjarnadóttir, formað-
ur stjórnskipunar- og eftirlits-
nefndar, segir málið ekkert hafa
breyst á fundinum. Menn hafi
þó náð að skiptast á skoðunum.
En verður málið tekið úr nefnd
í dag?
„Já, við höfum stefnt að því.
Við þurfum að sjá hvernig staðan
er í fyrramálið [í dag]. Það vant-
ar einhver nefndarálit.“
Það er einmitt það sem Illugi
Gunnarsson, þingflokksformað-
ur Sjálfstæðisflokksins, sem sat
fundinn í gær, gagnrýnir harð-
lega. Stjórnskipunar- og eftirlits-
nefnd hafi fengið nefndir til að
skila áliti, sem séu ekki öll fram
komin. „Þrátt fyrir það er meiri-
hlutinn búinn að ákveða hvaða
breytingartillögur hann leggur
fram og að taka málið úr nefnd á
morgun [í dag].“
Illugi segir þetta í takt við
annað í málinu og svona vinnu-
brögð hefðu ekki verið viðhöfð
við lagafrumvarp, hvað þá um
breytingu á sjálfri stjórnar-
skránni. Hann segir ekkert hafa
komið fram á fundinum í gær í
sjálfu sér.
„Þar kom ekkert nýtt fram,
annað en það að staðfest var
að það væri vilji meirihlutans
að gera allsherjar breytingar á
stjórnarskránni.“ - kóp
Minnihlutinn ósáttur við að ekki sé beðið eftir álitsgerðum:
Stjórnarskrármálið úr nefnd
SVEITARSTJÓRNIR Jón Pálmi Pálsson,
sem látið hefur af störfum bæjar-
ritara á Akranesi, fær greidd laun
út þetta ár samkvæmt samkomulagi
um starfslok hans.
Í yfirliti sem lögmenn tóku
saman um greiðslur til Jóns Pálma
frá árinu 2010 kemur fram að
hann rukkaði ítrekað tvo aðila
fyrir sama aksturinn. Hann sat í
stjórnum Heilbrigðiseftirlits Vest-
urlands og Menningarráðs Vest-
urlands og rukkaði oft þessa aðila
fyrir sama aksturinn og hann rukk-
aði Akranesbæ
fyrir. Jón Pálmi
viðurkenndi að
hafa gert mis-
tök að þessu leyti
og endurgreiddi
bæjarsjóði. „Jón
Pálmi álítur að sú
leiðrétting feli í
sér farsæla lausn
málsins,“ segir í bréfi lögmanns
sem gætti hagsmuna bæjarritarans.
Jón Pálmi hafnaði hins vegar
ásökunum um að það hafi verið brot
á starfsskyldum að þiggja laun fyrir
setur sínar í fyrrgreindum nefndum
„enda afar óréttlátt og órökrétt að
nefndarmenn séu látnir gjalda fyrir
það í launum sínum fyrir nefndirn-
ar að vera starfsmenn sveitarfélags
sem hefur aðkomu að starfi nefnd-
arinnar,“ sagði lögmaður bæjarrit-
arans. „Eðlilegt er að það sé tekið
til skoðunar innan hverrar stofnun-
ar fyrir sig hvaða þóknanir sé eðli-
legt og rétt að greiða en það er starfi
Jóns Pálma sem bæjarritara alger-
lega óviðkomandi.“ - gar
Bæjarritarinn á Akranesi sem rukkaði fleiri en einn fyrir sama aksturinn:
Látinn hætta með laun út árið
JÓN PÁLMI
PÁLSSON
Þrátt fyrir það er
meirihlutinn búinn að
ákveða hvaða breytingar-
tillögur hann leggur fram
og að taka málið úr nefnd
á morgun [í dag].
Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins
NOREGUR Fylgi Hægri flokksins
í Noregi hefur aukist um 5,4 pró-
sentustig frá því í september, sam-
kvæmt könnun Aftenposten. Fylg-
ið er nú 40,1 prósent. Yrði kosið nú
myndi þingmönnum flokksins á
Stórþinginu fjölga úr 30 í 76.
Leiðtogi hægrimanna, Erna Sol-
berg, segir fylgisaukninguna til
marks um að norska þjóðin vilji
stjórnarskipti í haust.
Fylgi Verkamannaflokksins dróst
saman um 1,7 prósentustig og er nú
26,5 prósent. - ibs
Norska þjóðin vill breytingar:
Aukið fylgi
Hægri flokksins
INDÓNESÍA, AP Yfir hundrað þúsund manns hafa þurft að yfirgefa
heimili sín vegna flóða í Jakarta, höfuðborg Indónesíu. Flóðin hafa
kostað að minnsta kosti 26 manns lífið.
Flóðin náðu hámarki síðastliðinn fimmtudag eftir að stífla brast í
miðborg Jakarta. Nærri þriðjungur borgarinnar fór undir vatn, sem
varð allt að tveggja metra djúpt.
Lögreglan segir að flestir hinna látnu hafi annað hvort drukknað
eða látist af völdum raflosts. - gb
Flóð í Indónesíu hafa kostað tugi manns lífið:
Tugir þúsunda flýja flóðin
Á KAFI Í VATNI Vörubílstjórar í Jakarta bíða þess sem verða vill. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Hluthafar í Bakka-
vör vilja að Lýður Guðmundsson
hverfi úr starfi sínu sem stjórn-
arformaður félagsins, á meðan
ákæra á hendur honum er til með-
ferðar í dómskerfinu. Frá þessu
sagði í fréttum Stöðvar 2 í gær.
Lýður og Ágúst bróðir hans eru
stærstu eigendur félagsins með
40 prósenta hlut, en Arion banki
og lífeyrissjóðir standa gegn því
að þeir nái meirihluta í félaginu
og vilja, samkvæmt heimildum
Stöðvar 2, að nýr stjórnarformað-
ur komi úr þeirra röðum.
Lýður er ákærður fyrir að hafa
staðið ólöglega að hlutafjáraukn-
ingu hjá Exista. - þj
Hluthafar í Bakkavör:
Vilja Lýð á brott
vegna ákæru
LÖGREGLA Gæsluvarðhald hefur
verið framlengt um fjórar vikur
yfir karlmanni á sextugsaldri,
sem handtekinn var í síðustu viku
grunaður um kynferðisbrot gegn
tveimur stúlkum á barnsaldri.
Lögregla hefur hins vegar kært
aðra ákvörðun héraðsdóms, sem
í gær hafnaði gæsluvarðhalds-
kröfu yfir öðrum manni sem nam
á brott tvær sjö ára stúlkur fyrir
utan verslun í Árbæ. RÚV skýrði
frá þessu í gær.
Á morgun rennur svo út gæslu-
varðhald yfir Karli Vigni Þor-
steinssyni, sem hefur viðurkennt
að hafa brotið gegn tugum barna.
- gb
Gæsluvarðhald framlengt:
Níðingur situr
áfram í haldi
SPURNING DAGSINS