Fréttablaðið - 22.01.2013, Side 10
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Samkvæmt lögum VR gerir Uppstillinganefnd tillögu um skipan í trúnaðarráð
félagsins. Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda erindi á netfangið
uppstillinganefnd@vr.is fyrir kl. 12 á hádegi þann 1. febrúar nk.
Uppstillinganefnd stillir upp lista til trúnaðarráðs sem endurspeglar félagið eins
og mögulegt er hvað varðar aldur, kyn og störf félagsmanna. Einnig verður litið
til félagsaðildar og starfa fyrir félagið.
Hlutverk trúnaðarráðs VR er að vera stjórn félagsins ráðgefandi varðandi ýmis
stærri málefni sem upp koma í starfsemi félagsins svo sem við gerð
kjarasamninga og stærri framkvæmda.
Uppstillinganefnd VR
Viltu leggja þitt af
mörkum í starfi VR?
N R HYUNDAI
KEMUR VART
5 RA BYRGÐ - TAKMARKAÐUR AKSTUR
Fáir bílaframleiðendur treysta bílum sínum jafnvel og
Hyundai sem býður 5 ára ábyrgð og ótakmarkaðan akstur
með öllum nýjum Hyundai bílum.
Opnunartími Hyundai Kauptúni 1(Beint á móti IKEA)
Opið frá kl. 07.45–18.00 virka daga og 10.00–16.00 á laugardögum.
ÓKEYPIS LÉTTSKOÐUN fyrir Hyundai viðskiptavini.
Viðskiptavinir Hyundai geta komið með bílinn sinn hvenær
sem er í Léttskoðun þeim að kostnaðarlausu.
Sparneytinn
d siljeppi!
Sparneytinn
d silb ll!
Hyundai ix35 – 4x4
2,0 dísil, beinskiptur. Verð: 5.790 þús. kr.
Eyðsla 5,7 l/100 km.*
Hyundai i30 Classic
1,4 dísil, beinskiptur. Verð: 3.550 þús. kr.
Eyðsla 4,1 l/100 km.*
Hyundai Santa Fe Comfort - Jeppi ársins 2012
Comfort 2,2 dísil, sjálfskiptur. Verð: 7.650 þús. kr.
Eyðsla 6,6 l/100 km.*
Kaupt ni 1 - 210 Garðabæ
575 1200 - www.hyundai.is
www.facebook.com/hyundai.is
*
M
ið
as
t
vi
ð
bl
an
da
ða
n
ak
st
ur
s
am
kv
æ
m
t
fr
am
le
ið
an
da
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
10
5
MALÍ, AP Franskir og malískir her-
menn náðu á sitt vald bænum Dia-
baly, viku eftir að íslamistar her-
tóku bæinn. Íslamistarnir gáfust
upp eftir að franski herinn hafði
haldið uppi linnulausum loftárás-
um dögum saman.
„Við erum sannarlega þakklát
Frökkum sem skárust í leikinn á
síðustu stundu,“ segir Gaoussou
Kone, 34 ára íbúi í Diabaly. „Án
Frakkanna væri ekki aðeins Dia-
baly fallinn, heldur væri brátt ekk-
ert Malí til lengur. Þetta lið vildi
fara alla leið til Bamako.“
Bamako er höfuðborg lands-
ins. Hún er í suðausturhlutanum
en herskáir íslamistar náðu á síð-
asta ári norðurhluta landsins á sitt
vald. Þeir tóku að sækja lengra
suður á bóginn nú eftir áramótin
og náðu fyrst á sitt vald bænum
Konna og síðan Diabaly. Þeir hafa
nú verið hraktir á brott frá báðum
þessum bæjum.
Franski herinn hóf loftárásir á
íslamista þann 11. janúar. Stjórn-
arherinn í Malí er ekki búinn til
þess að takast á við hersveitir upp-
reisnarmannanna.
Jean-Yves Le Drian, varnar-
málaráðherra Frakka, segir að
loftárásirnar hafi valdið umtals-
verðu mannfalli í röðum uppreisn-
arliðsins, en vildi þó ekki segja
hve margir hafi látist. Frakkar
hafi einungis tekið þátt í minni
háttar átökum á jörðu niðri.
Frakkar fara nú fram á það að
hersveitir frá Afríkuríkjum taki
að mestu að sér hernaðinn gegn
íslamistunum í Malí, en reiknar
með að nokkrar vikur muni líða
þangað til lið Afríkuríkja verði
tilbúið til átaka. Á meðan muni
franski herinn sinna þessi verki.
Íbúar hins strjálbýla norður-
hluta Malí eru að mestu túaregar,
sem margir hverjir vilja stofna
sjálfstætt ríki eða í það minnsta
fá einhverja sjálfstjórn, því stjórn-
völd í suðurhluta landsins láti sig
örlög þeirra hvort eð er litlu varða.
Íslamistarnir, sem hófu upp-
reisn í norðurhluta landsins á
síðasta ári, voru margir málalið-
ar hjá Múammar Gaddafi, leið-
toga nágrannaríkisins Líbíu, sem
steypt var af stóli og síðan drepinn
árið 2011. gudsteinn@frettabladid.is
Íbúar í Diabaly tóku
vel á móti Frökkum
Franski herinn er kominn til Diabaly í Malí, viku eftir að íslamistar hertóku
bæinn. Íslamistarnir hröktust burt eftir linnulausar loftárásir Frakka undanfarna
daga. Frakkar vilja að herlið frá Afríkuríkjunum taki við keflinu á næstu vikum.
Gíslatakan í Alsír kostaði að minnsta kosti 37 gísla lífið, að því er forsætis-
ráðherra landsins fullyrðir. Að gíslatökunni stóðu íslamistar úr samtökum
sem kalla sig Grímuklæddu herdeildina. Í yfirlýsingu frá samtökunum í
gær segir að lönd, sem styðja hernað Frakka í nágrannaríkinu Malí, geti
búist við fleiri árásum: „Við heitum öllum löndum sem tóku þátt í herferð
krossfaranna,“ segir í yfirlýsingunni, „að við munum standa að fleiri
aðgerðum ef þau snúa ekki við blaðinu“.
MALÍSKIR HERMENN Í DIABALY Íbúar bæjarins tóku hermönnunum fagnandi þegar íslamistar höfðu verið hraktir á flótta.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Að minnsta kosti 37 gíslar létu lífið