Fréttablaðið - 22.01.2013, Síða 36
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
MYNDASÖGUR
LÁRÉTT
2. hreinsiefni, 6. í röð, 8. mælieining,
9. vætla, 11. tveir eins, 12. méla, 14.
kompa, 16. karlkyn, 17. slæða, 18. lífs-
hlaup, 20. ónefndur, 21. flokka.
LÓÐRÉTT
1. héla, 3. í röð, 4. olíuvaxefni, 5.
dýrahljóð, 7. eyða, 10. einkar, 13.
vandlega, 15. framkvæma, 16. náinn,
19. hreyfing.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. sápu, 6. rs, 8. bar, 9. íla, 11.
rr, 12. mölva, 14. klefi, 16. kk, 17. lín,
18. ævi, 20. nn, 21. raða.
LÓÐRÉTT: 1. hrím, 3. áb, 4. parafín, 5.
urr, 7. slökkva, 10. all, 13. vel, 15. inna,
16. kær, 19. ið.
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hver var
þetta?
Manstu
eftir
Konna?
Konni? Úr
menntó?
Hættu nú?
Var þetta
hann?
The one and only!
Heitasti sveinn
síðari tíma!
Dömurnar sóttust
að honum eins og
mý að mykjuskán á
barnum!
Ég
dýrkaði
hann!
Hvað
skeði?
Hann giftist! Og
skildi! Fjórum sinnum!
Missti vinnuna, hárið
og eina framtönnina
áður en hann varð
þrítugur! En hann
hangir ennþá á
barnum!
Svona
getur þetta
farið!
Góðan dag, þú hefur náð
sambandi við dýflissuna.
Jón, Kolla og Palli geta
ekki svarað símanum
eins og er.
Endilega
skildu eftir
nafn og
skilaboð og
við höfum
samband
við fyrsta
tækifæri.
Þegar þú hefur lesið inn
skilaboðin geturðu lagt
á eða ýtt á # til að fá
frekari valkosti.
Takk fyrir og
bless!
PÍP
Hvaða takka ýti ég á
til að fá ykkur til að
stytta símsvara-
kveðjuna?
Meistari, þú
átt eina ósk
eftir. Ertu viss
um að þú viljir
annað bein?
Pulsur, bjúgu, sperðill,
chorizo, bratwurst.
Ekkert
grænmeti?
Grill-matseðillinn
minn samanstendur
nánast eingöngu af
kjöti í túpu.
Krafa um stjórnarslit og kosningar í vor. Svo hljóðaði fyrirsögnin á forsíðu
Fréttablaðsins fyrir sléttum fjórum árum
síðan. Verið var að lýsa kröfum sem Sam-
fylkingarfélagið í Reykjavík hafði samþykkt
á fjölmennum fundi í Þjóðleikhúskjallar-
anum. Þær samþykktir voru endurómur
mannfjöldans sem stóð fyrir utan, barði
potta og pönnur, kveikti bál, söng, hrópaði,
öskraði, stappaði og klappaði. Fólkið vildi
breytingar, enda hafði orðið hér eitt stykki
efnahagshrun. Og fólkið fékk sitt fram.
ÞAÐ er nefnilega alveg sama hve menn
rembast við að endurskrifa söguna, hér
varð hrun og kreppa í kjölfarið og gæsa-
lappir utan um hugtök breyta engu um
það. Fyrirsagnir í blöðunum mánuðina
fyrir þennan örlagaríka janúar 2009
bera það með sér: „Fiskútflutningur í
hættu vegna gjaldeyriskreppu“. „Ráð-
stöfunartekjur rýrna um 20 prósent“. Að
ekki sé minnst á fregnir af yfirvofandi
vöruskorti í búðum sem varð til þess að
fólk hamstraði nauðþurftir.
HÖRMUNGARNAR í efnahagslíf-
inu vöktu reiði fólks sem fór þúsund-
um saman út á götur og mótmælti.
Aðalkrafa þess var að ríkisstjórnin
færi frá og boðað yrði til kosninga.
Mótmælaaldan óx dag frá degi,
bál voru kveikt, pústrar féllu, lög-
reglan stóð í ströngu og undir niðri
dunaði beljandinn í pönnuslætt-
inum fram á nótt. Svefnhljóð fjölmargra
Reykvíkinga þessa mánuði: niðandi taktur
og hrópin: „Vanhæf ríkisstjórn.“
NOKKUÐ hefur borið á því að menn vilji
endurskrifa þessa sögu líka. Helst er að
skilja að einstaka alþingismenn hafi haft
vald á því að stýra reiði fólksins í þann far-
veg sem þeim hentaði. Mikill var máttur
þeirra. En auðvitað var það ekki þannig.
Fólk var reitt og sárt og vildi breytingar,
þeir sem sjá það ekki hafa pottlok fyrir
himinn.
ÞAÐ ber að gjalda varhug við því að segja
að þjóðin vilji þetta og hitt. En, Fréttablaðið
spurði í janúar 2009: Hvaða afstöðu hefur
þú til mótmælanna að undanförnu. Svör-
in voru nokkuð skýr, tæp 46 prósent voru
hlynnt þeim og tæpt 21 prósent mjög hlynnt.
Stjórnmálamenn hafa flíkað þjóðarvilja
með minna fylgi í könnunum á bak við sig.
OG nú erum við hér fjórum árum síðar.
Ástandið er slæmt hjá mörgum og gæti
verið mun betra hjá flestum. Í umkvört-
unum okkar mættum við hins vegar muna
að það eru ekki nema fjögur ár síðan við
hömstruðum mjólk af því við héldum að
hamfaraástand væri í nánd.
EFTIR stendur hins vegar að þegar fólk
stendur saman, þá getur það breytt hlutum.
Um það vitna ótal dældaðir pottar og pönn-
ur.
Hrært í pottum sögunnar
NAOMI WATTS
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
100/100
„Einstaklega raunveruleg stórslysamynd,
sem lætur engan ósnortinn“
„Ein af betri myndum ársins 2012.“
Mbl.
Komin í bíó