Fréttablaðið


Fréttablaðið - 22.01.2013, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 22.01.2013, Qupperneq 36
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 24 BAKÞANKAR Kolbeins Óttarssonar Proppé 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 KROSSGÁTA MYNDASÖGUR LÁRÉTT 2. hreinsiefni, 6. í röð, 8. mælieining, 9. vætla, 11. tveir eins, 12. méla, 14. kompa, 16. karlkyn, 17. slæða, 18. lífs- hlaup, 20. ónefndur, 21. flokka. LÓÐRÉTT 1. héla, 3. í röð, 4. olíuvaxefni, 5. dýrahljóð, 7. eyða, 10. einkar, 13. vandlega, 15. framkvæma, 16. náinn, 19. hreyfing. LAUSN LÁRÉTT: 2. sápu, 6. rs, 8. bar, 9. íla, 11. rr, 12. mölva, 14. klefi, 16. kk, 17. lín, 18. ævi, 20. nn, 21. raða. LÓÐRÉTT: 1. hrím, 3. áb, 4. parafín, 5. urr, 7. slökkva, 10. all, 13. vel, 15. inna, 16. kær, 19. ið. PONDUS Eftir Frode Øverli GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Hver var þetta? Manstu eftir Konna? Konni? Úr menntó? Hættu nú? Var þetta hann? The one and only! Heitasti sveinn síðari tíma! Dömurnar sóttust að honum eins og mý að mykjuskán á barnum! Ég dýrkaði hann! Hvað skeði? Hann giftist! Og skildi! Fjórum sinnum! Missti vinnuna, hárið og eina framtönnina áður en hann varð þrítugur! En hann hangir ennþá á barnum! Svona getur þetta farið! Góðan dag, þú hefur náð sambandi við dýflissuna. Jón, Kolla og Palli geta ekki svarað símanum eins og er. Endilega skildu eftir nafn og skilaboð og við höfum samband við fyrsta tækifæri. Þegar þú hefur lesið inn skilaboðin geturðu lagt á eða ýtt á # til að fá frekari valkosti. Takk fyrir og bless! PÍP Hvaða takka ýti ég á til að fá ykkur til að stytta símsvara- kveðjuna? Meistari, þú átt eina ósk eftir. Ertu viss um að þú viljir annað bein? Pulsur, bjúgu, sperðill, chorizo, bratwurst. Ekkert grænmeti? Grill-matseðillinn minn samanstendur nánast eingöngu af kjöti í túpu. Krafa um stjórnarslit og kosningar í vor. Svo hljóðaði fyrirsögnin á forsíðu Fréttablaðsins fyrir sléttum fjórum árum síðan. Verið var að lýsa kröfum sem Sam- fylkingarfélagið í Reykjavík hafði samþykkt á fjölmennum fundi í Þjóðleikhúskjallar- anum. Þær samþykktir voru endurómur mannfjöldans sem stóð fyrir utan, barði potta og pönnur, kveikti bál, söng, hrópaði, öskraði, stappaði og klappaði. Fólkið vildi breytingar, enda hafði orðið hér eitt stykki efnahagshrun. Og fólkið fékk sitt fram. ÞAÐ er nefnilega alveg sama hve menn rembast við að endurskrifa söguna, hér varð hrun og kreppa í kjölfarið og gæsa- lappir utan um hugtök breyta engu um það. Fyrirsagnir í blöðunum mánuðina fyrir þennan örlagaríka janúar 2009 bera það með sér: „Fiskútflutningur í hættu vegna gjaldeyriskreppu“. „Ráð- stöfunartekjur rýrna um 20 prósent“. Að ekki sé minnst á fregnir af yfirvofandi vöruskorti í búðum sem varð til þess að fólk hamstraði nauðþurftir. HÖRMUNGARNAR í efnahagslíf- inu vöktu reiði fólks sem fór þúsund- um saman út á götur og mótmælti. Aðalkrafa þess var að ríkisstjórnin færi frá og boðað yrði til kosninga. Mótmælaaldan óx dag frá degi, bál voru kveikt, pústrar féllu, lög- reglan stóð í ströngu og undir niðri dunaði beljandinn í pönnuslætt- inum fram á nótt. Svefnhljóð fjölmargra Reykvíkinga þessa mánuði: niðandi taktur og hrópin: „Vanhæf ríkisstjórn.“ NOKKUÐ hefur borið á því að menn vilji endurskrifa þessa sögu líka. Helst er að skilja að einstaka alþingismenn hafi haft vald á því að stýra reiði fólksins í þann far- veg sem þeim hentaði. Mikill var máttur þeirra. En auðvitað var það ekki þannig. Fólk var reitt og sárt og vildi breytingar, þeir sem sjá það ekki hafa pottlok fyrir himinn. ÞAÐ ber að gjalda varhug við því að segja að þjóðin vilji þetta og hitt. En, Fréttablaðið spurði í janúar 2009: Hvaða afstöðu hefur þú til mótmælanna að undanförnu. Svör- in voru nokkuð skýr, tæp 46 prósent voru hlynnt þeim og tæpt 21 prósent mjög hlynnt. Stjórnmálamenn hafa flíkað þjóðarvilja með minna fylgi í könnunum á bak við sig. OG nú erum við hér fjórum árum síðar. Ástandið er slæmt hjá mörgum og gæti verið mun betra hjá flestum. Í umkvört- unum okkar mættum við hins vegar muna að það eru ekki nema fjögur ár síðan við hömstruðum mjólk af því við héldum að hamfaraástand væri í nánd. EFTIR stendur hins vegar að þegar fólk stendur saman, þá getur það breytt hlutum. Um það vitna ótal dældaðir pottar og pönn- ur. Hrært í pottum sögunnar NAOMI WATTS TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI 100/100 „Ógnvænlega vel gerð.“ 100/100 „Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir sem fólk verður að sjá á árinu.“ 100/100 „Einstaklega raunveruleg stórslysamynd, sem lætur engan ósnortinn“ „Ein af betri myndum ársins 2012.“ Mbl. Komin í bíó

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.