Fréttablaðið - 22.01.2013, Síða 20
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að kynna
vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s. 512-5427
■ SINADRÁTTUR
Sinadráttur er hvimleiður vöðva-
krampi sem getur hrjáð fólk á öll-
um aldri. Orsakir sinadráttar geta
verið ýmsar, meðal annars skortur
á magnesíum og/eða skortur á
E-vítamíni, hreyfing-
arleysi eða mikið
álag á vöðva. Þá
er vökva skortur
talinn geta or-
sakað sinadrátt
og einnig skortur á
söltum. Gott er að teygja á vöðv-
anum á móti sinadrættinum, svo
sem að grípa í tær og toga á móti
sinadrætti í kálfa eða il. Einnig er
gott að hreyfa sig, drekka vatn og
borða magnesíumríka fæðu, svo
sem avókadó, möndlur og grænt
grænmeti. Þá hjálpar mörgum að
borða einn banana á dag. Bananar
innihalda kalíum en skortur á því
getur leitt til vöðvakrampa og
þreytu í vöðvum.
Heimild: heilsa.is og heilsubankinn.is
GOTT RÁÐ VIÐ
VÖÐVAKRAMPA
handhægi
D-vítamín
úðinn,
hámarksnýting
Fæst í apótekum, heilsubúðum
og stórmörkuðum.
Eru ekki allir
örugglega
að fá sér
D vítamín
núna?
3
mánaða
skammtur
www.gengurvel.is
ÚTSALA HAFIN!
Breyttur afgreiðslutími.
Opið er mánud. til föstud. 11:00-18:00.
Laugardaga 12:00-15:00.
Skipholti 29b • S. 551 0770
Mígreni
Þjáist þú af
eða einhver sem þú þekkir
Nýtt
á Íslandi
Vísindalega sannað að MigreLief gagnast við mígreni
Fæst í Lyfjaborg
Borgartúni 28 - Sími 553-8331
Náttúrulegt v í tamín
fæðubótarefni æt lað
mígrenis júkl ingum
fæst án ly fseði ls .
Umboðsaðili á Íslandi: Vitex ehf - www.vitex.is
Hrönn hefur starfað í tólf ár á gjörgæsludeild Landspítalans. Henni þykir gaman í vinnunni og
vill helst ekkert annað gera en að starfa
við hjúkrun. „Frá því ég man eftir mér
ætlaði ég að verða hjúkrunarfræðingur.
Starfið er mjög skapandi og gefandi og
ég mun ekki hætta í hjúkrun þó svo ég
hætti hér,“ segir Hrönn Birgisdóttir sem
er einn af um 280 hjúkrunarfræðingum
sem sagt hafa upp störfum á Landspítal-
anum.
Spurningin er bara hvar hún ætli að
starfa ef ekki á Íslandi? „Ég er í 90% starfi
á þrískiptum vöktum. Það er fáheyrt að
fólk sé í 100% starfi enda þarf alltaf smá
tíma til að skipta á milli dag og nætur-
vakta. Síðastliðið rúmt ár hef ég farið
átta sinnum til Noregs, viku í senn, til að
vinna. Ein vika skilar mér hærri upphæð
en ég fæ fyrir mánaðarvinnu á Íslandi.
Með því að þjappa saman vöktum og
nýta sumarfrí hefur þetta gengið upp.“
Fjöldi íslenskra heilbrigðisstarfsmanna
nýtir sér þennan möguleika en um fjórð-
ungur hjúkrunarfræðinga á gjörgæslu-
deild hefur nýtt hluta sumarfrís og farið
til Noregs í atvinnuskyni. Hrönn er ein-
stæð móðir og fyrir nokkru flutti barns-
faðir hennar til Svíþjóðar með sambýlis-
konu sinni, sem er læknir. „Ég hef verið
að skoða flutning þangað eða til Noregs.
Þannig getur dóttir okkar verið nær föð-
ur sínum og ég fengið vinnu við hjúkrun
sem er mun betur borguð.“
Ástæður þess að Hrönn hefur sagt
upp eru einfaldar. „Ég næ bara varla
endum saman. Þegar ég er búin að
borga alla mína reikninga á ég sáralítið
eftir. Fólk er bara búið að fá nóg. Það er
meira álag á starfsfólki, ekki kallað út
aukafólk ef upp koma veikindi, minni
yfirvinna. Aðstaða og tækjakaup hafa
setið á hakanum ásamt fleiru. Við vorum
aldrei í neinu góðæri hér á spítalanum
fyrir hrun svo við finnum virkilega fyrir
þessu.“
Hrönn segir lítið ganga í viðræðum
hjúkrunarfræðinga og stjórnenda
spítalans. „Ég set þær kröfur að það
verði gerður stofnanasamningur og að
sérnám sé metið. Ég vil fá að lifa á laun-
unum mínum og geta búið á Íslandi.
Viðskiptafræðingar hjá ríkinu eru með
hærri heildarlaun en við sem erum með
meiri menntun og vinnum á þrískiptum
vöktum. Samt vinnum við hjá sama
vinnuveitanda.“ ■ vidir@365.is
BÚIN AÐ SEGJA UPP
BETRI LAUN SKILYRÐI Hrönn Birgisdóttir starfar á Landspítalanum í Foss-
vogi. Eftir fimm ára nám í hjúkrun og tólf ára starf á gjörgæsludeild duga laun
hennar rétt fyrir hefðbundnum reikningum.
NÆR EKKI ENDUM
SAMAN
Hrönn segist gjarnan
vilja geta búið á Íslandi
og starfað við hjúkrun.
Hún nær þó ekki endum
saman á þeim launum
sem í boði eru.
MYND/ANTON