Fréttablaðið - 22.01.2013, Síða 12

Fréttablaðið - 22.01.2013, Síða 12
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 12 TROMSÖ, FRÉTTABLAÐIÐ Umhverfis- vernd kemur alltaf fyrst þegar tækifæri á norðurslóðum verða nýtt í nútíð og framtíð. Spenna á milli þjóðlanda sem eiga hags- muna að gæta á svæðinu er mjög ýkt í almennri umræðu. Um þetta tvennt eru utanríkisráðherrar Noregs og Svíþjóðar sammála. Þetta er meðal þess sem kom fram á fyrsta degi sjöundu norð- urslóðaráðstefnunnar Arctic Frontiers 2013, sem nú er haldin í Tromsö í Noregi og þeirrar sjö- undu í röðinni. Svæði sem var áberandi í óör- yggi kaldastríðsáranna er nú fyr- irmynd í alþjóðasamstarfi sagði Carl Bildt, utanríkisráðherra Sví- þjóðar og formaður Norðurskauts- ráðsins, í ræðu sinni. Hann bætti við að ef aðeins eitt sé öruggt þá sé það sú staðreynd að mikil- vægi norðurslóða mun stóraukast á allra næstu árum, og samstarf þjóða skyldi skoða í því ljósi. „Umhverfismálin eru í for- grunni þess sem við erum að gera. Hlýnun jarðar er staðreynd á sama tíma og Kínverjar og Ind- verjar opna nokkrar verksmiðjur á mánuði sem nýta kolaorku. Þróun- in vekur ugg og við sjáum afleið- ingarnar hér,“ sagði Bildt og bætti við að þessum staðreyndum verði að halda á lofti á alþjóðlegum vettvangi á sama tíma og lönd á norður slóðum þurfi að gera meira í tilliti til umhverfismála. Bildt tók sérstaklega fram að olíu- og gasvinnsla væri mest í umræðunni en námuvinnslu ættu menn að gefa meiri gaum. „Það er í þessu ljósi sem unnið er að því að styrkja Norðurskautsráðið sem langmikilvægasta vettvang þessarar umræðu og vettvang framtíðar samvinnu þjóða í þess- um heimshluta um fyrirsjáanlega framtíð,“ sagði Bildt. Espen Barth Eide, utanríkis- ráðherra Noregs, sagði að málefni norðurslóða hafi verið og verði eitt af hryggjarstykkjunum í norskri utanríkisstefnu; að vinna að sífellt betra alþjóðlegu samstarfi um nýtingu og verndun svæðis- ins með sjálfbærni að leiðarljósi. Hann sagði tækifærin nær enda- laus í kjölfar þess að sífellt fleiri svæði væru að verða aðgengileg á norðurslóðum. Það þýði jafnframt að álitamálunum sem krefjast úrlausnar fjölgar að sama skapi. „Hlýnun jarðar eru vondar fréttir, og mannamót um tæki- færi sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér verður alltaf að hafa þá staðreynd í forgrunni,“ sagði Eide og lagði þunga áherslu á að umhverfismál yrðu alltaf að vera mönnum ofarlega í huga þegar nýting, hver sem hún væri, er rædd. Eide sagði öll löndin sem eiga hagsmuna að gæta á svæðinu við- urkenna að hafréttarsáttmáli Sam- einuðu þjóðanna gildi á svæðinu „Við búum því á svæði sem gæti verið vettvangur átaka og spennu, en þvert á móti, einkennir friður og eindrægni öll samskipti,“ sagði Eide. svavar@frettabladid.is Umhverfið skal alltaf njóta vafans Umhverfisvernd á að vera í forgrunni allrar ákvarðanatöku um norðurslóðir, að mati norrænna utanríkisráðherra. Spenna á milli landa vegna hagsmuna á svæðinu er ekki til staðar. Magnús Jóhannesson gegnir stöðu framkvæmdastjóra Norðurskautsráðsins. ➜ Magnús Jóhannesson, ráðuneytisstjóri umhverfis- ráðuneytisins til margra ára, tók í gær við embætti framkvæmdastjóra Norðurskautsráðsins, þegar fastaskrifstofa ráðsins var opnuð í Tromsö. Að mati utanríkisráðherra Svíþjóðar og Noregs, Espen Barth Eide og Carl Bildt, hefur mikilvægi Norður- skautsráðsins stóraukist á stuttum tíma, og er orðinn vettvangur ákvörðunartöku en ekki aðeins samræðu. ➜ Norðurskautsráðið er mikilvægasti vettvangurinn fyrir samráð og samstarf á norðurslóðum. ➜ Ráðið eru einu svæðasamtökin sem ná til alls svæðisins með aðild allra ríkja þess. ➜ Það var stofnað árið 1996 sem samráðs- og sam- starfsvettvangur norðurskautsríkjanna átta, Bandaríkjanna, Danmerkur (Grænland, Færeyjar), Finnlands, Íslands, Kanada, Noregs, Rússlands og Svíþjóðar, og sex helstu samtaka þeirra frumbyggja sem þar búa. ➜ Megináherslur Norðurskautsráðsins hafa frá upphafi snúið að umhverfismálum og leiðum til að tryggja sjálfbæra þróun á norðurslóðum. Vaxandi sókn í auðlindir norðurslóða og auðveldari aðgangur að þeim með tilkomu nýrrar tækni og hlýnandi lofts- lags hefur orðið til þess að auka pólitískt mikilvægi Norðurskautsráðsins. ORÐINN VETTVANGUR ÁKVÖRÐUNARTÖKU Fjörefni úr frystinum Fæst í verslunum Bónus NÝ FASTASKRIFSTOFA Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, og Magnús Jóhannesson, framkvæmdastjóri Norður- skautsráðsins við opnun fastaskrifstofu Norðurskautsráðsins í Tromsö í Noregi í gær.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.