Fréttablaðið - 22.01.2013, Page 6
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
1. Hversu hátt hlutfall íslenskra karl-
manna á byssu?
2. Hvar langar matreiðslumanninn
Völundi Snæ að opna veitingastað?
3. Hver leikstýrir kvikmyndinni XL?
SVÖR:
1. Um 25% - 2. Á heimili sínu við Bókhlöðu-
stíg 2 - 3. Marteinn Þórsson.
Fjöldi smita
■ Mikið smit
■ Meðalmikið smit
■ Lítið smit
■ Ekkert smit
Inflúensa í Evrópu 7. - 13. janúar 2013
■ Malta
■ Liechtenstein
■ Lúxemborg
HEILBRIGÐISMÁL „Við erum svona
hálfum mánuði á undan miðað við
í fyrra og árið þar á undan,“ segir
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
um inflúensuna sem nú geisar á
landinu.
Inflúensan er skæðust hér á
landi og í Noregi af þeim 26 ríkjum
sem senda upplýsingar um stöðu
þessara mála til Sóttvarnastofn-
unar Evrópu, ECDC. Tilkynningar
um inflúensulík einkenni eru mun
fleiri nú en á sama tíma síðustu
ár. Tilkynningum um inflúensu-
lík einkenni hefur fjölgað mikið
síðustu vikur sem og staðfestum
inflúensutilvikum. Alls voru 22
staðfest tilfelli tilkynnt til sótt-
varnalæknis í annarri viku ársins,
sem eru nýjustu tölur.
Haraldur gerir ráð fyrir því að
inflúensufaraldurinn muni einn-
ig ná hámarki fyrr en undan-
farin ár, þegar inflúensan náði
hámarki seinni hluta febrúar.
„Það er smá slaki í augnablikinu
en hún á sjálfsagt eftir að stefna
áfram upp en ekki með jafn mikl-
um hraða og undanfarnar vikur.
Þetta mun ábyggilega ganga yfir
hér allan janúar og langt fram í
febrúar.“
Inflúensan hefur nú greinst í
flestum landshlutum og meðal-
aldur þeirra sem greinast er 37
ár. Flensan er að færast í aukana
í nítján af þeim 26 ríkjum sem til-
kynntu Sóttvarnastofnun Evrópu
um stöðu smitmála í annarri viku
ársins. Inflúensan er útbreidd í
tólf Evrópuríkjum, svæðisbundin
í sex ríkjum og fátíð í sjö ríkjum.
Aðeins í Búlgaríu voru engin tilvik
inflúensu tilkynnt. „Norðmenn og
við erum dugleg í þessu. A-tegund-
ir flensunnar eru yfirgnæfandi.
Þetta er ýmist af svínastofni, sem
er að breytast í að verða árstíða-
bundinn, og svo þessi gamli stofn
sem var alltaf að hrjá okkur hér á
árum áður,“ segir Haraldur.
Þá hefur tilfellum RS-veiru
fjölgað, en átján greindust með
staðfesta sýkingu í annarri viku
ársins. Börn á fyrsta og öðru ári
greinast helst með veiruna en sex
af þeim átján sem greindust síðast
voru á aldrinum 79 til 92 ára, sem
er óvenjuhátt hlutfall.
thorunn@frettabladid.is
Inflúensan er fyrr á ferðinni í ár
Inflúensutilvikum fjölgar nú hratt hér á landi og sóttvarnalæknir gerir ráð fyrir að faraldurinn nái hámarki fyrr en undanfarin ár. Farald-
urinn er skæðari hér og í Noregi en í flestum öðrum Evrópuríkjum, samkvæmt tölum Sóttvarnastofnunar Evrópu. Flensan hefur greinst í
flestum landshlutum og meðalaldur greindra er 37 ár. Fleiri greinast einnig með RS-veiruna, þar af óvenjumargir eldri borgarar.
Björn Zoëga, forstjóri LSH, segir ástandið á spítalanum erfitt en viðráðan-
legt. Tæplega fjörutíu sjúklingar eru í einangrun þar vegna inflúensu, RS-
veirunnar og nóróveirunnar. Hann segir ástandið svipa að hluta til ársins
2009 þegar svínaflensufaraldurinn gekk yfir landið.
„Þá stóðum við í raun tæpar því það var svo mikið af fólki í öndunarvél
og á gjörgæslu, en það er ekki eins mikið um það núna,“ segir hann. „En
síðan þá höfum við þurft að minnka okkur og núna eru svo margir sem
eru að bíða eftir einhverju öðru inni á bráðadeildunum. Það er töluverður
munur.“
Björn sinnir sjálfur sjúklingum samhliða forstjórastarfinu, þó hann segi
það hafa minnkað þar sem mikið af valstarfsemi spítalans hefur verið lagt
niður tímabundið vegna álagsins. „Ég hitti mína sjúklinga, tala við fólk og
fylgist með aðstöðunni,“ segir hann. „Svo maður sé ekki að fá þetta allt úr
Excel-skjölum.“ - sv
➜ Ástandið erfitt en viðráðanlegt
SAMGÖNGUR Sex milljörðum króna
verður varið á næstu tíu árum til
að ljúka tvöföldun Reykjanesbraut-
ar Hafnarfjarðarmegin. Þetta
kemur fram í svari innanríkis-
ráðherra við fyrirspurn Guðlaugs
Þórs Guðlaugssonar.
Í svari sínu segir ráðherra að á
samgönguáætlun sé gert ráð fyrir
að umræddur vegarkafli, sem er
um átta kílómetra langur og nær
frá sveitarmörkum Hafnarfjarð-
ar, fram hjá Álverinu í Straumsvík
og inn undir kirkjugarðinn, verði
kláraður í tveimur áföngum. Ann-
ars vegar á árunum 2015 til 2018
þegar 1,8 milljörðum verður varið
til verksins og svo á árunum 2019
til 2022 þegar 4,2 milljarðar verða
settir í verkið.
Ekki liggur fyrir tímasetning
um lok tvöföldunar sex kílómetra
kafla frá Fitjum í Reykjanesbæ
upp að Flugstöð Leifs Eiríksson-
ar, en samkvæmt svari ráðherra
minnkar umferð verulega þegar
komið er fram hjá Fitjum.
Kostnaður við þann kafla
Reykjanesbrautar sem þegar
hefur verið tvöfaldaður, um 24
kílómetra vegalengd, er um það
bil 6,3 milljarðar, uppreiknað að
verðlagi í nóvember síðastliðn-
um.
Ráðherra svaraði því einnig til
að uppsetning víravegriða sem
skilja að umferð úr sitthvorri
átt ætti að hefjast í ár sunnan
Straumsvíkur. Framkvæmdum
ætti að ljúka á árunum 2015 til
2016 og kostnaður er áætlaður um
350 milljónir króna. - þj
Svar innanríkisráðherra við fyrirspurn þingmanns um tvöföldun Reykjanesbrautar:
Sex milljarðar í að klára tvöföldunina
REYKJANESBRAUT Það mun kosta
ríkið sex milljarða að klára lagningu
brautarinnar inn í Hafnarfjörð.
FRÉTTABLAÐIÐ/PÉTUR
VEISTU SVARIÐ?