Fréttablaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 22. janúar 2013 | FRÉTTIR | 13 og hljóta veglega vinninga. Auk EFNAHAGSMÁL Sé áætluðum líf- eyrisskuldbindingum ríkisins og fyrirséðum útgjöldum vegna vanda Íbúðalánasjóðs bætt við heildarskuldir ríkissjóðs hækka þær úr um 1.500 milljónum króna í hátt í 2.000 milljónir. Þetta kemur fram í nýjustu Hagsjá hagfræðideildar Lands- bankans sem gefin var út á föstudag. Er þar fjallað um skuldastöðu ríkisins og helstu óvissuþætti er snúa að því mark- miði að lækka skuldir ríkissjóðs. Í Hagsjánni kemur fram að miðað við áætlanir stjórnvalda verði skuldir ríkisins um 1.500 milljarðar í lok árs, eða um 80% af landsframleiðslu. Til lengri tíma litið sé hins vegar stefnt að því að ná skuld- um ríkisins niður í 45 til 50% af landsframleiðslu. Er áætlað að lækkun skulda hefjist á næsta ári þegar búist er við því að afgang- ur verði af fjárlögum í fyrsta sinn frá bankahruni. Samkvæmt reikningum hag- fræðideildar Landsbankans þarf hins vegar mun meiri afgang úr rekstri ríkisins en fyrirsjáan- legur er á næstu árum til þess að markmiðið um verulega lækkun skulda náist. Munar þar mestu um að ef rík- issjóður legðist í skuldabréfa- útboð til að fjármagna rekstur Íbúðalánasjóðs og standa undir lífeyrisskuldbindingum ríkis- sjóðs myndu bætast við tæplega 50 milljarðar á ári við rekstrar- kostnað hins opinbera samkvæmt útreikningum hagfræðideildar- innar. - mþl Fyrirséð útgjöld ríkisins vegna lífeyrisskulda og Íbúðalánasjóðs tæplega 500 milljarðar: Skuldastaða ríksins verri en ætla mætti FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ Hagfræði- deild Landsbankans bendir á að fyrirséð útgjöld ríkissjóðs hækka skuldastöðu hans verulega. AFÞREYING Íþróttaráð Akureyrar hefur samþykkt að félagið Berg- menn fái leyfi til að gera tilraun með sölu og markaðssetn- ingu þyrlu- skíðaferða frá skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Skilyrði er að Bergmenn vinni þetta verkefni í fullu samráði við forstöðumann Hlíðarfjalls. Fyrirtækið hefur áður boðið upp á þyrluskíðaferðir á Tröllaskaga. Stofnandi Bergmanna er Jökull Bergmann fjallaleiðsögumaður. - gar Nýjung í Hlíðarfjalli: Veita leyfi fyrir þyrluskíðafólk JÖKULL BERGMANN DANMÖRK Tungumálaörðugleikar eiga ekki að koma í veg fyrir að menn hætti að reykja. Þetta er mat yfirvalda í Kaupmannahöfn sem ákváðu að láta tóbaksvarnar- ráðgjafa stöðva múslíma á leið til föstudagsbænar. Múslímarnir voru ávarpaðir á arabísku og þeim tjáð að hægt væri að fá aðstoð án endur- gjalds við að drepa í sígarettunni. Rannsóknir hafa leitt í ljós að yfir helmingur útlendinga í Dan- mörku vill hætta reykingum, að því er segir í frétt á vef Jyllands-Post- en. - ibs Átak í Kaupmannahöfn: Reykjandi mús- límar stöðvaðir ÞÝSKALAND, AP Kaþólska kirkjan í Þýskalandi hefur blásið af óháða rannsókn viðurkennds fræði- manns á kynferðisglæpum innan kirkjunnar. Árið 2011 bað kirkjan pró- fessor Christian Pfeiffer, við Afbrotafræði- stofnun Neðra- Saxlands, að rannsaka gögn um misbeit- ingu allt frá árinu 1945. Rannsóknin var hluti af viðleitni kirkjunnar eftir að kynferðis brot gegn börnum og ungmennum í Þýskalandi og víðar komust í hámæli árið 2010. Pfeif- fer segir samstarfið við kirkjuna hafa gengið vel í fyrstu, en síðan hafi biskupsdæmið í München farið fram á óásættanlega stjórn yfir rannsókninni. - óká Kirkja ósátt við fræðimann: Rannsókn á barnaníði hætt CHRISTIAN PFEIFFER DANMÖRK Sóknarnefnd á Norður- Sjálandi hefur í þrjú ár neitað að upplýsa Ann Brydholm um hvar leiði sonar hennar, Claus Bryd- holm, er. Leiðið var á leynilegum stað í kirkjugarðinum í Karlebo og án legsteins þar til fyrir stuttu vegna óska ekkjunnar en nú hafa jarðneskar leifar Brydholms verið fluttar annað, að því er greint er frá í Jyllands-Posten. Biskupinn í Helsingjaeyri, Lise- Lotte Rebel, benti formanni sókn- arnefndarinnar, Ellen Ladhøj, á það fyrir tveimur árum að það kynni að brjóta í bága við lög að neita Brydholm um upplýsingar um hvar sonur hennar væri jarð- settur. Ladhøj kveðst skilja óskir móðurinnar. Hún vill þó heldur fara í fangelsi en segja henni hvar leiðið er. Segir hún það vera af tillitssemi við börn Claus Bryd- holms. Málið er nú komið á borð Manu Sareens kirkjumálaráðherra. - ibs Deila um leiði til ráðherra: Gröf leynt fyrir tengdamömmu

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.