Fréttablaðið - 22.01.2013, Blaðsíða 30
FÓLK|BÍLAR
TOYOTA PRIUS C GRÆNASTUR Þegar allt er tekið með í reikninginn er það ekki
rafbíll heldur tvinnbíll sem er umhverfisvænastur bíla að mati ACEEE. MYND/AFP
Toyota Prius C er umhverfisvænastur bíla 2013 að mati ACEEE, American Council for an Energy Efficient Economy, óháðra samtaka sem árlega gefa út lista yfir umhverfisvæn-
ustu bíla ársins. Toyota Prius C er tvinnbíll en fast á hæla hans
kemur Honda Fit EV sem er rafdrifinn bíll. Þriðja sætið verma þrír
bílar; Toyota Prius, Prius PHV og Honda Civic Hybrid.
En hvernig getur tvinnbíll verið „grænni“ en bíll sem gengur
fyrir rafmagni? Svarið er að finna í talnafræðinni.
Samtökin skoðuðu útblástur bílanna, mengandi útblástur og
gróðurhúsalofttegundir, auk losunar frá þjónustufyrirtækjunum
sem hlaða rafbíla. Þá var einnig tekin til greina orkan sem fer í
að framleiða bílinn og áhrif sem förgun bílsins hefði á náttúruna
þegar tíma hans lyki. Þegar öll kurl voru komin til grafar stóð
bíll, sem bæði er drifinn með rafmagni og eldsneyti, uppi sem sá
grænasti.
Úttektina má lesa á vef breska ríkisútvarpsins, www.bbc.co.uk,
og þar er einnig hægt að nálgast listann yfir bílana sem athugaðir
voru.
RAFBÍLL EKKI SÁ
UMHVERFISVÆNASTI
SUMARIÐ ER
TÍMINN „Sumarið er
aðaltíminn hjá okkur.
Þá rúntum við mikið
um enda um tuttugu
skipulagðar ferðir í
boði,“ segir Þorgeir
Kjartansson, formað-
ur fornbílaklúbbsins.
MYND/GVA
Fornbílaklúbbur Íslands var stofn-aður árið 1977 og í honum eru tæplega 1200 meðlimir á öllum
aldri. Klúbburinn hefur fyrst og fremst
það markmið að efla samheldni áhuga-
manna og eigenda fornbíla, auk þess sem
félagið hefur staðið í hagsmunagæslu
fyrir fornbílaeigendur hér á landi. Þor-
geir Kjartansson, formaður klúbbsins,
segir starfsemina afar fjölbreytta þar sem
allir bílaáhugamenn ættu að geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. „Sumarið er aðal-
tíminn hjá okkur. Þá rúntum við mikið
um enda um tuttugu skipulagðar ferðir í
boði. Stærsti viðburður ársins er lands-
mótið okkar sem við höldum í tíunda
sinn á Selfossi næsta sumar. Einnig erum
við mikið beðnir um að koma á ýmsar
bæjarhátíðir yfir sumartímann auk þess
sem ýmis félagasamtök hafa einnig sam-
band við okkur.“
Starfsemin er önnur yfir vetrartímann
að sögn Þorgeirs enda hentar íslenski
veturinn sjaldnast fornbílum. Klúbburinn
eignaðist nýlega félagsheimili í Kópavogi
og heldur úti reglulegri dagskrá þar yfir
veturinn. „Við hittumst alla miðvikudaga
yfir vetrartímann. Stundum horfum við á
bíómyndir eða fáum einhvern til að halda
fyrirlestur. Næsta miðvikudag mætir til
dæmis Svavar Svavarsson í hús og segir
okkur frá vinnuvélum, trukkum og öðrum
tækjum sem hafa verið hér á landi. Hann er
gangandi sögubók um þessi tæki auk þess
sem hann sýnir okkur líka ljósmyndir.“
Það er margt sem heillar við forn-
bíla að sögn Þorgeirs. „Stór hluti af því
er auðvitað sagan. Einnig snýst þetta
um nostalgíuna hjá mörgum því margir
reyna að eignast bíla sem þeir áttu þegar
þeir voru yngri. Eða reyna jafnvel að
eignast bílinn sem þeir vildu eignast þeg-
ar þeir voru ungir en höfðu ekki efni á.“
Þorgeir segist greina aukinn áhuga
almennings á fornbílum. Á síðasta lands-
móti hafi til dæmis um 3.000 manns
heimsótt klúbbinn á laugardeginum.
„Yfirleitt er mikil traffík þar sem við
erum og hún eykst bara á milli ára. Áður
fyrr vorum við jafnvel litnir aðeins horn-
auga því mörgum fannst skrítið hvað
fjölskyldufólk væru að brasa í þessu. En
fornbílarnir eru einfaldlega hluti af sögu
okkar. Það er ekki hægt að slá hendinni á
móti því.“
HLUTI AF SÖGUNNI
FORNBÍLAR Starfsemi Fornbílaklúbbsins er fjölbreytt. Tæplega 1200 meðlimir
eru í klúbbnum og eru þeir í öllum aldursflokkum.
LANDSMÓT
Fornbílaklúbburinn hefur
haldið landsmót sitt
á Selfossi undanfarin
tíu ár.
MYND/ÚR EINKASAFNI
WU SHU ART
TAI CHI
KUNG FU
FYRIR ALLA
DREKINN
WUSHU FÉLAG REYKJAVÍKUR
Skeifunni 3j · Sími 553 8282
www.heilsudrekinn.is
Í samstarfi við Kína
-Capital Institute of
Physical Education
HYUNDAI I30 CLASSIC.
Árgerð 2010, ekinn 60 Þ.KM,
bensín, 5 gírar.
Verð 1.750.000.
Rnr.222343.
TOYOTA YARIS SOL. Árgerð
2012, ekinn 31 Þ.KM, bensín,
sjálfskiptur.bakkmyndavel ofl.
Verð 2.490.000.
Rnr.222361.
HYUNDAI I 20 CLASSIC.
Árgerð 2010, ekinn 64 Þ.KM,
bensín, 5 gírar.
Verð 1.490.000. Rnr.222359.
PEUGEOT 508.DÍSEL.Árgerð
2012, ekinn 20 Þ.KM, sjálf-
skiptur.glertoppur. álfelgur ofl.
Verð 4.250.000.
Rnr.222360.
NISSAN QASHQAI+2 SE
Árgerð 2011, ekinn 35 Þ.KM,
bensín, sjálfskiptur.glertoppur ofl.
Verð 4.390.000.
Rnr.251594.
SUZUKI GRAND VITARA
Árgerð 2010, ekinn 62 Þ.KM,
bensín, sjálfskiptur, leður.
Verð 3.090.000.
Rnr.251611
CHRYSLER TOWN -
COUNTRY TOURING LX.
Árgerð 2008, ekinn 74 Þ.KM,
bensín, sjálfskiptur.
Verð 2.990.000. Rnr.221718.
Stofnað 1974