Fréttablaðið - 22.01.2013, Qupperneq 33
ÞRIÐJUDAGUR 22. janúar 2013 | SKOÐUN | 21
Í ágúst sl. birti hópur vís-
indamanna undir forystu
G.E. Séralini niðurstöð-
ur 2ja ára rannsóknar á
erfðabreyttum maís sem
skók vísindasamfélagið
og afhjúpaði galla í kerfi
leyfisveitinga til ræktun-
ar erfðabreyttra plantna í
Evrópu. Erfðabreytta maí-
syrkið (NK603) sem Séral-
ini notaði hafði áður verið
leyft af Matvælaöryggis-
stofnun Evrópu (EFSA) og
þar með verið talið öruggt í mann-
eldi og fóðrun á grundvelli skamm-
tíma (90 daga) tilrauna með rottur.
Rannsókn Séralini sem stóð í tvö
ár (ævilengd rottu) komst að því
að rottur sem fengu erfðabreytta
maís yrkið mynduðu æxli, lifðu
skemur og eitrun kom fram í lifur
og nýrum.
EFSA hefur aldrei rökstutt hvers
vegna stofnunin fer aðeins fram á
að líftæknifyrirtæki leggi fram 90
daga dýratilraunir þegar ljóst má
vera að langtímarannsóknir gefi
réttari mynd af heilsufarsáhrif-
um. Enn fremur sætir EFSA harðri
gagnrýni fyrir að veita leyfi fyrir
erfðabreyttum afurðum (plöntum/
plöntuafurðum) á grundvelli rann-
sókna sem umsækjendur sjálf-
ir gera, í stað rannsókna vísinda-
manna sem eru óháðir viðkomandi
fyrirtækjum. Ekki veldur síðri
áhyggjum að nefnd „sérfræðinga“
EFSA, sem ákveður hvaða erfða-
breyttar afurðir skuli samþykktar,
er að meirihluta skipuð mönnum
sem ýmist störfuðu í líftæknifyrir-
tækjum eða vinna fyrir þrýstihópa
í þeirra þágu. Vegna hagsmuna-
árekstra innan EFSA hafa stjórn-
völd nokkurra Evrópulanda kvartað
við Evrópuþingið sem frestaði fjár-
veitingum til EFSA uns stofnunin
samþykkti að taka á vandanum.
Æsileg viðbrögð
Þegar niðurstöður rannsóknar Sér-
alini voru birtar ollu þær æsileg-
um viðbrögðum vísindamanna sem
vinna í þágu líftæknifyrirtækja.
EFSA fór í varnarstöðu og afneit-
aði rannsókninni. Hún hefði með
réttu átt að auka áhuga innan vís-
indasamfélagsins á langtímarann-
sóknum heilsufarsáhrifa erfða-
breyttra afurða. Gagnrýnendur
sem hagsmuna eiga að gæta skipu-
lögðu hins vegar harkalega árás á
rannsóknina og aðalhöfund hennar.
Mótbárur þeirra afhjúpa tvöfalt sið-
gæði, með fullyrðingum um galla á
rannsókn Séralini, sem ýmist var
horft framhjá eða réttlættir voru í
umfjöllun um rannsóknir líftækni-
fyrirtækja. Séralini var krafinn um
birtingu grunngagna rannsóknar
sinnar, þótt EFSA láti fyrirtæki
sem sækja um leyfi komast upp með
að halda sínum gögnum leyndum.
Þess var jafnvel krafist að tíma-
ritið sem birti ritrýnda rannsókn
Séralini (Food & Chemical Tox-
icology) drægi greinina til baka.
Áköfustu gagnrýnendur voru þó
ekki með sérþekkingu á eiturefna-
fræði eða dýratilraunum, heldur á
plöntuerfðafræði og erfðatækni,
vísindamenn sem eiga stofnana- og
persónulegra hagsmuna að gæta.
Meðal þeirra eru jafnvel „vísinda-
menn“ tengdir öfgafullum þrýsti-
hópum sem afneita t.d. loftslags-
breytingum.
Tímabær endurskoðun
Rannsókn Séralini hratt af stað
deilum sem leitt hafa til tímabærr-
ar endurskoðunar á þeim grunni
sem lagareglur ESB um erfða-
breyttar afurðir byggja á. Fram-
vegis má gera ráð fyrir að fyrirtæki
sem sækja um leyfi til ræktunar á
erfðabreyttum plöntum í Evrópu
verði krafin um betri vísindarann-
sóknir til að færa sönnur
á öryggi þeirra. EFSA og
framkvæmdastjórn ESB
hafa nú samþykkt að hanna
og fjármagna nýja lang-
tíma (2ja ára) rannsókn á
heilsufarsáhrifum erfða-
breyttra afurða. Hér er
komið til móts við góð vís-
indi. Þegar vísindamaður
á borð við Séralini (sem er
tvímælalaust í hópi fremstu
sameindalíffræðinga okkar
daga) leggur fram rann-
sóknir, sem setja spurningamerki
við ríkjandi starfshætti, er fráleitt
að skella skollaeyrum við þeim,
heldur ber að fylgja þeim fast eftir.
Nú hvílir sú skylda á yfirvöldum
ESB að hanna nýjar tilraunir með
aðkomu sjálfstæðra vísindamanna
eins og Séralini, en ekki aðeins
þeirra sem starfa í líftæknifyrir-
tækjum.
Við væntum þess að íslensk
yfirvöld fari að fordæmi EFSA.
Umhverfisstofnun hefur allt frá
árinu 2003 leyft útiræktun á erfða-
breyttum plöntum sem áhættusam-
astar eru – erfðabreyttu lyfjabyggi
– á allt að tugum hektara lands í
Gunnarsholti. Þeir sem þróa þetta
erfðabreytta bygg, svo og yfirvöld,
hafa fullyrt að sýnt hafi verið vís-
indalega fram á öryggi þess þrátt
fyrir að engar dýratilraunir hafi
verið gerðar og áhættumat hafi
ekki falið í sér greiningar á grunn-
vatni og jarðvegi. Svo virðist sem
veiting þessara leyfa hafi verið af
pólitískum toga – en ekki vísinda-
legum. Slæmar pólitískar ákvarð-
anir er stundum hægt að draga til
baka og vonandi verður það gert í
þessu tilviki. En tjón á trúverðug-
leika vísindasamfélagsins er ekki
jafn auðvelt að bæta. Íslenska
vísindasamfélagið þarf að viður-
kenna, líkt og EFSA neyddist til,
að ekki er nóg að lýsa eitthvað
öruggt, heldur þarf að sýna fram
á að svo sé.
Evrópa endurmetur öryggi erfðabreyttra afurða
ERFÐABREYTT
MATVÆLI
Sandra B.
Jónsdóttir
sjálfstæður ráðgjafi
Save the Children á Íslandi
➜ EFSA og framkvæmda-
stjórn ESB hafa nú samþykkt
að hanna og fjármagna nýja
langtíma (2ja ára) rann-
sókn á heilsufarsáhrifum
erfðabreyttra afurða. Hér
er komið til móts við góð
vísindi.