Fréttablaðið - 22.01.2013, Side 42

Fréttablaðið - 22.01.2013, Side 42
22. janúar 2013 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 30 – Lifið heil www.lyfja.is ÍS LE N S K A /S IA .I S /L Y F 6 2 4 1 9 1 2 /1 2 Gildir út janúar. Lægra verð í Lyfju 20% afsláttur af Nicorette QuickMist munnholsúða 15% afsláttur af ölluNicorette fruitmint Aðalfundur Skotveiðifélags Íslands - SKOTVÍS - árið 2013, verður haldinn mánudaginn 4. febrúar n.k. 20:00 í húsnæði Verkís Ármúla 4 í Reykjavík. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Fyrir fund, kl 19:30 verður dr. Arnór Þórir Sigfússon með stutt erindi um stöðu gæsastofna á Íslandi. Félagsmenn SKOTVÍS hvattir til að mæta. Stjórn Skotvís FRÁBÆRIR Vignir Svavarsson 11 mörk (73 prós. skotnýting) Fékk miklu meiri ábyrgð í vörninni og blómstr- aði við hlið Sverre. Kappsamur, baráttuglaður og einnig fremstur í flokki í hraðaupphlaupum liðsins. MJÖG GÓÐIR Aron Pálmarsson 24 mörk (46 prósent) Sverre Jakobsson 0 skot, 9 stolnir, 3 varin skot Sverre stjórnaði íslensku vörninni af myndarskap og Aron var aðalógnun liðsins í sóknarleiknum. Aron var of æstur í byrjun en fann svo taktinn og átti margar gullfallegar stoðsendingar í viðbót við frábær heimsklassamörk. TRAUSTIR Guðjón Valur Sigurðsson 41 mark (59 prósent) Snorri Steinn Guðjónsson 17 mörk (50 prósent) Kári Kristjánsson 15 mörk (71 prósent) Snorri Steinn og Guðjón Valur fengu enn meiri ábyrgð og stóðust hana með glæsibrag. Guðjón hefur oft nýtt dauðafærin betur en skilaði sínu og Snorri spilaði betur með hverjum leik. Kári átti flotta innkomu á línuna í fjarveru Róberts. STÓÐU SIG VEL Arnór Þór Gunnarsson 13 mörk (77 prósent) Þórir Ólafsson 27 mörk (73 prósent) Björgvin Páll Gústavsson 62/3 varin (35 prósent) Þórir og Arnór skiluðu sínu vel í hægra horninu og Arnór stimplaði sig virkilega inn. Björgvin Páll átti nokkra mjög góða leiki í markinu en datt niður inn á milli. KOMNIR Á LANDSLIÐSKORTIÐ Ólafur Gústafsson 12 mörk (50 prósent) Aron Rafn Eðvarðsson 31/2 varin (37 prósent) Ólafur og Aron Rafn sýndu að þeir eru komnir til að vera í íslenska landsliðshópnum á næstu árum. Ólafur gerði sig reyndar sekan um nokkur dýrkeypt mistök en sýndi flott tilþrif inn á milli. FENGU OF LÍTIL HLUTVERK Á MÓTINU Ernir Hrafn Arnarson 2 mörk (50 prósent) Fannar Þór Friðgeirsson 3 mörk (100 prósent) Stefán Rafn Sigurmannsson 5 mörk (72 prósent) Róbert Gunnarsson (meiddur) 1 mark (33 pró.) NÁÐU EKKI PRÓFINU Ásgeir Örn Hallgrímsson 10 mörk (40 prósent) Ólafur Guðmundsson 0 mörk (0 prósent) Ásgeir Örn var skilinn eftir í djúpu lauginni og átti að fylla í skarð tveggja heimsklassa manna (Ólafur Stefánsson og Alexander Petersson). Ásgeir skilaði sínu varnarlega en var skelfilegur sóknarlega. Hann nýtti meðal annars aðeins 2 af 13 langskotum sínum í alvöru leikjunum (Rússland, Makedónía, Danmörk og Frakkland) og var þá með fleiri tapaða bolta (12) en mörk (5) + stoðsend- ingar (5). Ólafur Guðmunds- son var tekinn út úr hópnum eftir tvo leiki. Frammistaðan á HM 2013 ARON PÁLMARS SNORRI STEINN KÁRI KRISTJÁNSGUÐJÓN VALUR ÁSGEIR ÖRN ARNÓR ÞÓR ÓLAFUR GÚSTAFS FIMLEIKAR Fimleikasamband Íslands tilkynnti í gær að Evrópu- meistaramótið í hópfimleikum verður haldið hér á landi í október á næsta ári. Fimleikasambandið sendi inn boð um að fá mótið og staðfesti Fimleikasamband Evrópu í gær að það hafi verið samþykkt. Ísland hefur fagnað sigri í kvennaflokki á síðustu tveim- ur Evrópumeistaramótum og þá vann unglingasveit kvenna einnig sigur í sínum flokki þegar mótið fór fram í Árósum í Danmörku í haust. Samkvæmt tilkynningu Fim- leikasambands Íslands er von á 700-1000 keppendum frá 15-20 löndum og að tekjur af mótinu, beinar og óbeinar, verði mögulega um hálfur milljarður króna. Hópfimleikar nefnast á ensku TeamGym og eru ein af sjö grein- um Fimleikasambands Evrópu. Íþróttin á þó ekki aðild að Alþjóða- fimleikasambandinu en vonast er til að það breytist með ört vax- andi uppgangi hópfimleika víða um heim. Fyrsta Evrópumeistara- mótið var haldið árið 1996. - esá EM haldið á Íslandi Ísland ver titla sína í hópfi mleikum hér á landi. 16 LIÐA ÚRSLIT ÚRSLIT Slóvenía - Egyptaland 31-26 (19-11) Serbía - Spánn 20-31 (12-20) Króatía - Hv. Rússland 33-24 (21-9) Ungverjaland - Pólland 27-19 (10-9) FJÓRÐUNGSÚRSLITIN Danmörk - Ungverjaland Frakkland - Króatía Þýskaland - Spánn Rússland - Slóvenía Leikirnir fara fram á morgun. ENSKA ÚRVALSDEILDIN SOUTHAMPTON - EVERTON 0-0 Everton er í fimmta sæti deildarinnar með 38 stig en Southampton í fimmtánda sæti með 23 stig. Þetta var lokaleikur 23. umferðar. MARKAHRÓKUR Aron Jóhannsson í leik með AGF. MYND/BADENFOTO.DK FÓTBOLTI Pólska blaðið Glos Wielkopolski hefur heimildir fyrir því að pólska félagið Lech Poznan ætli að kaupa íslenska framherjann Aron Jóhannsson frá danska félaginu AGF. Aron hefur spilað vel með danska félaginu og er annar af marka- hæstu leikmönnum deildarinnar. Aron Jóhannsson hefur skorað 14 mörk í 18 deildarleikjum með AGF á þessu tímabili en danska deildin er nú í vetrarfríi. Glos Wielkopolski segir að Aron sé metinn á 450 þúsund evrur en það gera rúmlega 77 milljónir íslenskra króna. Blaðið segir að það séu talsverðar líkur á því að Aron verði tilkynntur sem nýr leikmaður Lech Poznan í þessari viku. - óój Lech Poznan vill fá Aron SPORT HANDBOLTI Fyrsta stórmóti íslenska landsliðsins í handbolta undir stjórn Arons Kristjánssonar lauk fyrr en flestir höfðu vonað. Liðið getur vissulega kennt ein- hverjum um að hafa verið fórn- arlamb aðstæðna í A-riðlinum sem þýddi að Frakkar urðu mót- herjar liðsins í sextán liða úrslit- unum í stað Þýskalands, Brasilíu eða Túnis. Frakkarnir voru einfaldlega númeri of stórir fyrir íslensku strákana sem stóðu sig samt mjög vel og stríddu frönsku vélinni sem landaði að lokum naumum sigri eftir spennuleik. Það reyndi svo sannarlega mikið á Aron þjálfara á fyrsta móti. Það er ekki auðvelt að taka við af Guðmundi Guðmundssyni, sigursælasta þjálfara Íslands frá upphafi, en að auki missti liðið lykilmenn eins og Alexander Pet- ersson og Arnór Atlason auk þess sem Ólafur Stefánsson gaf ekki kost á sér. Vignir besti maður liðsins HJARTA ÍSLENSKU VARNARINNAR Vignir Svavarsson og Sverre Jakobsson voru flottir á HM á Spáni. Vignir var besti maðurinn að mati Fréttablaðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Miklar breytingar urðu á vörn- inni og hægri skyttustaðan var nánast skilin eftir bitlaus. Endur- skipulagning varnarinnar tókst vel og sóknarleikurinn batnaði með hverjum leik þrátt fyrir afar lítið framlag úr hægri skyttustöð- unni, einni af bestu stöðum lands- liðsins í mörg ár. Ásgeir Örn Hallgrímsson fékk það stóra próf að taka við af Ólafi og Alexander. Hann stóð sig vel varnarlega og á mikið í velgengni liðsins þar en kolféll hins vegar sóknarlega og fyrir vikið var ójafnvægið mikið í uppstilltum sóknarleik íslenska liðsins. Blaðamenn Fréttablaðsins hafa valið Vigni Svavarsson besta leik- mann íslenska liðsins á mótinu en hann kom mjög sterkur inn í íslensku vörnina í forföllum Ingi- mundar Ingimundarson og Alex- anders Peterssonar. Það var einkum innkoma Vign- is sem gerði það að verkum að glæný vörn íslenska liðsins varð svona árangursrík. Vignir fékk að margra mati alltof fá tækifæri í liðinu undir stjórn Guðmundar Guðmundssonar en sýndi mátt sinn og megin í þessum sex leikj- um á Spáni. Þá má ekki gleyma framlagi Vignis í hraðaupphlaupunum en hann var með 11 mörk og 7 stoð- sendingar án þess að spila sóknar- leikinn. Fleiri leikmenn stóðu sig mjög vel, aðrir skiluðu sínu en nokkr- ir þurfa að spila betur ætli lands- liðið sér að komast lengra. Hér á síðunni má sjá dóma Fréttablaðs- ins yfir frammistöðu strákanna okkar á Spáni. ooj@frettabladid.is Fréttablaðið fer í dag yfi r frammistöðu leikmanna íslenska landsliðsins í handbolta á HM í handbolta á Spáni. Heims- og Ólympíumeistarar Frakka slógu íslenska liðið út úr 16-liða úrslitunum í fyrrakvöld.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.