Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 30
KYNNING − AUGLÝSINGGólfefni & hitakerfi FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 20132 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 | Umsjónarmenn auglýsinga: Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is s. 512 5411 | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Gólfefnaútsalan í Álfaborg hófst í vikunni og þar er nú hægt að gera rífandi góð kaup. „Álfaborg er alhliða gólf- efnaverslun en kjörorð okkar í dag er allt á gólfið á einum stað. Við sérhæfðum okkur upphaf- lega í flísum en bjóðum nú upp á flísar, parket, teppi og dúka í úr- vali og erum eina gólfefnaverslun- in sem býður upp á öll þessi gólf- efni á einum stað,“ segir Kolbeinn Smári Össurarson, einn eigenda verslunarinnar. Á útsölunni eru þúsundir fer- metra af flísum á niðursettu verði og afslætti allt að 70 prósentum. „Við eigum stóran lager af f lís- um svo hér er eitthvað fyrir alla. Þá erum við með fasta afslætti af teppum og dúkum og í parketinu erum við að selja afganga fyrir lítið auk þess sem við erum með tilboð á nær öllum gerðum.“ En hvaða gólfefni eru vinsæl- ust í dag og eru einhverjir tísku- straumar ríkjandi? „Varðandi flís- arnar þá hefur viðarútlitið verið að sækja á. Spraututækni, líkt og í prent- og tölvuiðnaðinum er nú notuð við flísaframleiðslu og eykur margbreytileika og gerir þær ferskari í útliti. Framboð á málteknum f lísum hefur auk- ist og verðmunur minnkað, þar af leiðandi hærra hlutfall af sölu. Hnífjafnar í stærð, fúgur grann- ar og þráðbeinar. Þá er plastpar- ketið alltaf að líkjast meir náttúru- efnum og um leið vinsælla. Það er sömuleiðis slitsterkur, ódýr kostur og markaðurinn kallar eftir því.“ Þrátt fyrir að Álfaborg bjóði mikið af vörum á góðu verði legg- ur Kolbeinn áherslu á að um sér- verslun sé að ræða og eru gæðin í fyrirrúmi. „Fólk getur treyst því að það sé að fá góða vöru hjá okkur og við höfum langa reynslu af því að fullnægja kröfuhörðum íslenskum neytendum.“ Í versluninni starfar fólk með áratuga reynslu sem veitir ráð við val og niðurlögn á gólfefnum. „Við seljum ekki vinnu við niður- lögn en bendum á fagmenn sem við höfum góða reynslu af. Þegar kemur að stærri verkefnum eins og teppa- og dúkalögn í fjölbýlis- húsum eða hjá fyrirtækjum erum við þó að veita heildarlausnir þar sem niðurlögn fylgir,“ upplýsir Kolbeinn. Hann hvetur fólk til að líta við í versluninni að Skútuvogi 6 á meðan útsalan stendur yfir en hún verður út næstu viku. Auk gólfefna er þar að finna allt fyrir baðher- bergið; bæði flísar og hreinlætis- tæki sem og þakrennur og verk- færi. Sjá nánar á www.alfaborg.is. Rífandi gólfefnaútsala í Álfaborg Í Álfaborg fást öll gólfefni á einum stað. Þar er nú hægt að gera verulega góð kaup með afslætti allt að 70 prósentum. Gæðin eru í fyrirrúmi hjá Álfaborg. Á útsölunni eru þúsundir fermetra af flísum á niðursettu verði og afslætti allt að 70 prósentum. MYND/ANTON „Fólk getur treyst því að það sé að fá góða vöru hjá okkur og við höfum langa reynslu af því að fullnægja kröfuhörðum íslenskum neytendum,” segir Kolbeinn Smári Össurarson, einn eigenda Álfaborgar. Við eigum stóran lager af flísum svo hér er eitthvað fyrir alla. Þá erum við með fasta afslætti af teppum og dúkum og í parketinu erum við að selja afganga fyrir lítið. T.FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKE PPI.DÚK SAR.PAR TEP ÍSAR TEPP RKET ÍSARDÚKA ÍSAR TEPPI PARKETPPI PARKET DÚKAR FLÍSAR TETEPPI PARKET DÚKAR FL DÚKAR... ARAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PÍSFL ÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR..DKET.. ÚKAR.ÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FLTEPPI...PARKET...D Þúsundir fermetra af flísum með 20 -70% afslætti Plastparket frá kr. 1.390 m2 Baðherbergisvörur 20 -70% afsláttur L LAL SAR...TEÍAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FL ÚKAR...FLÍ..DKET...DÚKAR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET. PI...PARKET...DÚKAR...FLÍSAR... PET PI...PARKET...DÚKAR...F T...DÚKAR...ÍSAR...TEPPI...PARKEI...PARKET...DÚKAR...FL FLÍSAR...TEPPI...P ..FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR...FR...FLÍSAR...TEPPI...PARKET...DÚKAR.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.