Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 29
Kynningarblað Gólfhiti, parket, dúkur, flísar, flotuð gólf, steinteppi, gæði, fagmennska, útsölur GÓLFEFNI FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 2013 &HITAKERFI Sveinn Árnason, eigandi og stofnandi Epoxy Flex, svarar í símann. Í umhverfinu heyrist ómur radda starfsmanna sem vinna við að endurnýja epoxýgólf Rækju- vinnslunnar Dögunar á Sauðár- króki. „Við erum að endurnýja gólf hérna sem ég lagði fyrir tuttugu árum. Það er ágætis ending,“ segir Sveinn. Ætlaði að minnka við sig Árið 2005 ætlaði Sveinn að minnka við sig, seldi þáverandi rekstur og stofnaði fyrirtækið Epoxy Flex. „Það gekk illa að minnka við sig. Síminn hætti ekki að hringja og ég var beð- inn um að koma að leggja gólf út um allt land. Áður en ég vissi var ég því kominn á fullt aftur,“ segir Sveinn um tilurð Epoxy Flex sem staðsett er í Brekkutröð 3 í Hafnarfirði. Áratuga reynsla Sveinn hefur unnið við lagningu epoxýgólfa í 35 ár og veit því sitt- hvað um þau málefni. „Ég hef verið lengi í þessu og er með fjóra fasta starfsmenn sem allir eru með um og yfir tíu ára reynslu.“ Í fyrirtækinu er því hátt í hundr- að ára samanlögð reynsla starfs- manna við að leggja epoxýgólf. „Ef um stærri verkefni er að ræða þá er ég með fleiri reynslumikla starfsmenn sem geta stokkið til.“ Sérhæfing í matvælavinnslum Víða um land má f inna hús- næði með gólf i sem Sveinn hefur komið nálægt. „Á þessum árum hef ég nánast komið við í hverju einasta plássi landsins og líklega margir sem vita hver ég er.“ Meðal viðskiptavina mætti helst nefna Marel, Vinnslustöð- ina í Vestmannaeyjum, Ísfélag- ið, KG Fiskverkun, Hraðfrystihús Hellissands, Valafell, Bylgjuna, Fiskmarkað Íslands ásamt f leir- um. „Mín sérstaða hefur ávallt verið í kringum matvælaiðn- að; fiskverkanir, kjötvinnslur og þess háttar. Ég er með sérstaka grunna sem þola mikinn raka og henta slíkum aðstæðum einstak- lega vel.“ Gæðaefni frá Hollandi Efnin sem Epoxy Flex notar eru gæðaefni frá Hollandi. „Ég f lyt allt inn sjálfur frá fyrirtæki í Hol- landi sem var stofnað 1932 og hefur sérhæft sig í epoxýefnum. Ég er búinn að prófa mörg mis- munandi efni í gegnum árin og þetta er það albesta. Hef aldrei lent í neinu veseni; litur aldrei gulnað, engar loftbólur eða neitt þess háttar. Þau eru aðeins dýrari en það margborgar sig því betri gæði fást ekki. Út í epoxýefnin er vanalega blandað kvarsi sem eykur slitþol yfirborðsins gríðar- lega og þar með endinguna.“ Umhverfisvæn efni „Efnin sem ég nota eru lyktarlaus og án leysiefna. Ef ég hendi eld- spýtu ofan í epoxyefni þá slokkn- ar bara á henni.“ Þannig þarf ekki að stöðva vinnslu í matvinnslufyr- irtækjum út af hættu á að matvæli mengist eða starfsfólk veikist. Steinteppi sem endast út ævina Undanfarin ár hafa svokölluð steinteppi notið mikilla vinsælda og lætur Sveinn vel af þeim. „Við höfum lagt mörg slík gólf. Þau hafa verið vinsæl í skrifstofurýmum, verslunarhúsnæði, stigagöngum og líka bara í heimahúsum. Þegar steinteppi eru lögð er epoxý efnum hrært saman við steinsalla úr kvarsi í stórri hrærivél. Sallanum er svo dreift á gólf þar sem hann svo harðnar. Ég lakka oftast yfir hann daginn eftir en það eykur gljáann og auðveldar þrif.“ Stein- teppi eru úr kvarsi og því nánast ómögulegt að slíta þeim út, þar að auki eru þau hljóðdempandi. „Yfirborð steinteppa er gljúpt og dregur því úr endurkasti hljóðs sem kemur sér vel á mörgum stöð- um.“ Þau fást í átta mismunandi grófleikum og mörgum litum. Fagmennska er lykilatriði Epoxy Flex er mjög vel tækjum búið og allar vélar eru nýlegar. „Við byrjum á að demantsslípa gólf og veggi. Gólfin hreinsum við alltaf alveg niður í stein til að tryggja bestu gæði. Öll tækin eru búin ryksugu svo ekkert ryk fer út í andrúmsloftið. Þetta er því afar snyrtilegt hjá okkur og við leggj- um mikið upp úr því að undirbún- ingur jafnt sem öll vinna sé fram- úrskarandi.“ A llar nánari upplýsingar, myndir af verkefnum og fleira er að finna á heimasíðunni www. epoxyflex.is. Epoxy Flex – betri gæði fást ekki Epoxy Flex var stofnað af Sveini Árnasyni árið 2005. Þá ætlaði hann að minnka við sig og taka því aðeins rólegar. Fljótlega urðu símtölin þó ansi mörg þar sem óskað var eftir starfskröftum hans. Fyrr en varði var orðið jafn mikið að gera og áður og hann kominn á fullt við að leggja epoxýgólf um allt land. Stigi í Fiskverkun Sófaníasar Cesilssonar. Epoxy Flex er með sérstaka grunna sem þola mikinn raka og henta vel fyrir fiskverkanir og matvælavinnslur. Hér má sjá húsnæði KG fiskverkunar á Rifi þar sem Epoxy Flex lagði gólfefnin. Hér eru starfsmenn Epoxy Flex að vinna við gólf Fiskverkunar Sófaníasar Cesilssonar. Meðal verkefna sem Epoxy Flex hefur unnið að eru verkstæðisgólfin í húsnæði Marels í Garðabæ.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.