Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 33
KYNNING − AUGLÝSING Gólfefni & hitakerfi24. JANÚAR 2013 FIMMTUDAGUR 5 Gólfhitalausnirnar frá okkur hafa verið mjög vinsælar undanfarin ár og bjóð-um við upp á þrjár tegundir lausna,“ segir Halldór F. Halldórsson, sölustjóri lagna- deildar Tengis. „Í fyrsta lagi erum við með kerfi sem hefur 30 mm einangrun sem sett er sem undirlag. Rörin eru síðan heftuð þar ofan á. Í öðru lagi bjóðum við upp á varmaleiðni- dúk sem er einungis 4 mm og hefur minna ein- angrunargildi en 30 mm lausn okkar. Rörin fara einnig ofan á hann og þau eru boruð niður með spennum. Í þriðja lagi bjóðum við upp á lausn frá Uponor sem er þunnlagnakerfi sem hefur 15 mm heildarþykkt, en þau kerfi eru gríðarlega vinsæl hjá okkur,“ upplýsir Hall- dór. Hann segir síðasttöldu lausnina vera sér- staklega vinsæla þegar kemur að endurnýjun eldri húsa. „Í slíkum húsum er oft vandi með gólfhæðina og ekki hægt að koma fyrir neinni einangrun. Því er notaður takkadúkur sem er límdur við grunnað gólf. Ofan í hann koma svo rörin sem eru 9,9 mm í þvermál og að lokum er flotað yfir. Þessi lausn hefur gefist sérstak- lega vel.“ Ólíkar stýringar Gólfhitalausnir Tengis innihalda ýmist þráð- lausar eða víraðar stýringar. Þráðlausa stýr- ingin er dýrari lausn að sögn Halldórs en býður á móti upp á mun fleiri möguleika en sú víraða. „Stjórnbúnaðurinn er með þráðlausa hitanema og einnig með upplýsingaskjá sem er tengdur við móðurstöð. Af skjánum má fá upplýsingar um hvern og einn hitastilli sem gefur notandanum tækifæri til að stilla há- marks- og lágmarkshita. Þetta er til dæmis sér- staklega hentugt í herbergjum þar sem hætta er á að fiktað sé í stillinum. Þá er hægt að læsa honum á ákveðnu hitastigi,“ segir Halldór. Hann bendir á hægt sé að breyta stillingum til dæmis ef íbúðareigandi fer í frí. Þannig sé hægt að stilla inn hvenær farið er út úr húsi og hver hitinn eigi að vera á meðan enginn er heima. „Þannig stýrir kerfið hitastiginu á meðan íbúar eru fjarverandi og keyrir sig upp áður en þeir koma heim til sín aftur.“ Undirlagið skiptir miklu máli Það sem helst þarf að hafa í huga þegar gólf- hitalausnir eru keyptar að sögn Halldórs er að gólfhitinn sé í yfirborði gólfflatarins og með tilheyrandi undirlagi, sem sé einangr- un og varmaleiðandi dúk. „Það er dýrara að gera þetta svona og þess vegna velja menn stundum að binda rörin beint í járnagrindina áður en steypt er. Sú lausn er þó slæmur kost- ur, að okkar mati, því svörunin verður mjög hæg, auk þess sem það stangast á við ákvæði 189.4 í byggingarreglugerð nr. 441/1998,“ segir hann. „Það slæma við þennan kost er að ef húseigandi hækkar hitastigið á hitanema um nokkrar gráður getur hann þurft að bíða í margar klukkustundir eftir svörun. Auk þess sem varmatap verður talsvert mikið og þar af leiðandi dýrara að kynda. Því er mikilvægt að velja lausn sem hentar best hverju sinni og þar skiptir undirlagið mjög miklu máli,“ segir hann og bendir á að fólk þurfi að hafa í huga að viðbótarkostnaðurinn sé í raun ekki mikill á móti þeim þægindum sem það fái í staðinn. Þjónusta í fyrirrúmi Starfsmenn Tengis hafa áralanga reynslu við ráðgjöf og sölu gólfhitalausna. Þeir leggja sig fram um að veita viðskiptavinum frábæra þjónustu enda er aðalsmerki Tengis gæði, þjónusta og ábyrgð. „Við bjóðum einnig upp á sérþjónustu fyrir fagmenn sem felst meðal annars í því að faglærðir starfsmenn taka á móti þeim í sýningarsal lagnadeildar Tengis. Þá erum við einnig með sérstakan þjón- ustumann sem fer á staðinn til að leysa úr málum ef á þarf að halda og leggjum mikla áherslu á varahluta- og viðgerðarþjónustu,“ segir Halldór. Allar nánari upplýsingar um gólfhitalausnir Tengis veita starfsmenn lagnadeildar. Mikið úrval gólfhitalausna hjá Tengi Tengi hefur í rúman áratug selt hágæða gólfhitalausnir, til dæmis frá þýska framleiðandanum Uponor. Gólfhitalausnirnar eru sérstaklega hentugar fyrir íslenskar aðstæður. Tengi rekur tvær verslanir, að Smiðjuvegi 76, Kópavogi og að Baldursnesi 6, Akureyri. Þráðlausar gólfhitastýringar frá UPONOR. Hefðbundin uppbygging á gólfhitakerfi. Minitec gólfhitakerfi, hentar vel þegar verið er að breyta húsum. Starfsmenn Tengis hafa áralanga reynslu við ráðgjöf og sölu gólfhitalausna. Gólfhitalausnir Tengis hafa verið afar vinsælar síðustu ár að sögn Halldórs Fannars Halldórssonar, sölustjóra lagnadeildar Tengis. MYND/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.