Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 31
KYNNING − AUGLÝSING Gólfefni & hitakerfi24. JANÚAR 2013 FIMMTUDAGUR 3 Verslunin Gallerý Gólf býður upp á gott úrval af gæðaflís-um og parketi í bland við persónulega og faglega þjónustu. Verslunin flutti starfsemi sína síð- asta haust í bjart og rúmgott versl- unarrými í Mörkinni 1 í Reykja- vík. Sigurður Vilhelmsson, eig- andi verslunarinnar, segir Gallerý Gólf selja gott úrval af parketi frá hollenska fyrirtækinu Timber Top og ítalskar gæðaflísar frá Serenis- sima. „Þegar kemur að parketi selj- um við mest af plankaparketi og antík plankaparketi. Það kemur í ólíkum stærðum og breiddum, ol- íuborið eða mattlakkað. Við bjóð- um einnig upp á þriggja stafa hefð- bundið parket. Ýmsir litir eru í boði enda óskir viðskiptavina okkar afar mismunandi. Allt parket frá Timber Top er með 25 ára ábyrgð.“ Sigurður segir vinsældir park- ettegunda sveiflast milli ára eins og margt annað. „Núna er hvíttað efni mjög vinsælt og antík plank- arnir líka enda virkilega fallegt efni. Svo má auðvitað nefna það nýjasta hjá okkur en það eru flísar með útlit plankaparkets. Flísarnar eru svo líkar parketi að erfitt er að sjá hvort þetta eru flísar eða park- et. Þessar skemmtilegu flísar koma frá Serenissima, eins og aðrar flís- ar frá okkur, allt gegnheilar flísar sem má bæði nota á gólf og veggi og raunar úti líka enda eru þær frost- þolnar. Þessar flísar eru sérstaklega vinsælar í t.d. verslunarrýmum þar sem álagið er mikið en reynt er að skapa hlýlegt umhverfi.“ Einungis gæðavörur í boði Sigurður segir bæði parket og flís- ar hafa leyst teppið að mestu leyti af hólmi undanfarna tvo áratugi þótt enn finnist þeir sem kjósa teppin. „Það eru sérstaklega flísarnar sem hafa náð mikilli útbreiðslu undan- farin ár. Fyrir nokkrum árum síðan var parketið miklu algengara, en í dag seljum við jafnmikið af f lís- um og parketi. Margir hafa auð- vitað bæði flísar og parket enda fer það vel saman. Svartar og ljósar flísar hafa verið á undanhaldi síð- ustu árin og jarðlitirnir hafa komið sterkari inn í staðinn.“ Það skiptir miklu máli að sögn Sigurðar að velja gólfefni frá góðum framleiðanda enda sé gólfefnum yfirleitt ætlað að endast í langan tíma. „Smekkur fólks er mismun- andi sem betur fer. Sumir eru hrifn- ari af parketi en flísar henta öðrum. Við hjá Gallerý Gólf seljum einung- is gæðavörur, hvort sem um er að ræða flísar eða parket.“ Reynslumikið starfsfólk Verslunin Gallerý Gólf verður þriggja ára í sumar en það eru þó engir nýgræðingar sem standa að henni. Sigurður hefur sjálf- ur selt gólfefni í 40 ár og eru aðrir starfsmenn verslunarinnar einnig reynslumiklir á því sviði. „Við ein- setjum okkur að veita faglega ráð- gjöf og persónulega þjónustu þar sem komið er til móts við þarfir hvers viðskiptavinar.“ Nú er útsala í versluninni og mun hún standa yfir fram í febrúar. „Það er búið að vera mikið að gera undanfarnar vikur enda góður af- sláttur í boði. Við erum með fjöl- breytt úrval af fallegu gólfefni svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.“ Nánari upplýsingar má finna á www.gallerygolf.is. Við hjá Gallerý gólf seljum einungis gæðavörur, hvort sem um er að ræða flísar eða parket. Ný verslun sem byggir á áratuga reynslu Gallerý Gólf býður upp á gott úrval af flísum og parketi. Verslunin leggur metnað í að veita persónulega og faglega þjónustu en starfsmenn verslunarinnar eru með áratuga reynslu á þessu sviði. Þessa dagana stendur yfir útsala í versluninni og því hægt að gera góð kaup, enda margar vörur á mjög góðu verði. Reynslumiklir starfsmenn verslunarinnar aðstoða viðskiptavini við val á flísum og parketi. MYNDIR/GVA Gallerý Gólf býður upp á gott úrval af gæðaflísum og parketi í bland við persónulega og faglega þjónustu að sögn Sigurðar Vilhelmssonar, eiganda verslunarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.