Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 2
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2 SKIPULAGSMÁL Samþykkt var í skipulagsráði í gær að kynna til- lögu um breytta landnotkun í Sogamýri svo að þar geti verið þrjá nýjar byggingarlóðir. Ein lóðin er ætluð Félagi múslima á Íslandi. Í drögum að breytingum kemur fram að tilgangurinn sé meðal annars að koma til móts við óskir um lóð fyrir trúar- stofnun. Það sé í samræmi við markmið mannréttindastefnu og menningarstefnu borgarinnar. „Það er á skjön við vinnubrögð skipulagsráðs að taka einstakar lóðir út fyrir sviga með þessum hætti og láta heildarhugsun í skipulagi víkja,“ sögðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks sem sátu hjá í málinu. - gar Samþykkt í skipulagsráði: Félag múslima fær lóðina sína SAMFÉLAGMÁL „Tækniútfærslan bak við netsíur sem þessar er illframkvæman- leg,“ segir Þröstur Jónasson hjá Félagi um stafrænt frelsi á Íslandi, spurður út í hugmyndir Ögmundar Jónassonar innan- ríkisráðherra um aðgerðir og lagasetn- ingu til höfuðs klámvæðingu. Þær fela meðal annars í sér möguleg úrræði til að knýja netþjónustufyrirtæki til að loka á dreifingu á klámefni. Þröstur segir að til þess að stöðva dreifingu kláms þurfi allt efni að fara í gegnum síu. „Þá er maður kominn með hóp af fólki sem hefur það að starfi að fylgjast með netumferð annarra og ákveða hvað sé leyfilegt og hvað ekki. Það eykur hættuna á að öðru en klámi verði bætt á listann og lokað verði á löglegt og þarft efni.“ Slíkar aðgerðir eru auk þess gagns- litlar, að sögn Þrastar, því að þeir sem á annað borð vilji nálgast klámefni finni alltaf sínar leiðir. „Þetta kemur á endanum niður á frjálsu flæði upplýsinga, án þess að skila tilætluðum árangri, og hagsmunirnir sem eru í húfi eru meiri en að svo megi fara.“ - þj Áhugafólk um stafrænt frelsi efins um tillögur innanríkisráðherra til að stöðva klám á netinu: Netsíur ólíklegar til árangurs gegn klámi Á NETINU Þröstur Jónasson hjá Félagi um stafrænt frelsi segir netsíur gegn klámi líklegri til að verða til ógagns en árangurs. FÓLK Þegar Suðurskautsfarinn Vilborg Anna Gissurardóttir kom á miðvikudgskvöld til Punta Arenas, syðst í Síle, hitti hún þar fyrir áhöfnina á íslenska rannsóknarskipinu Poseidon. Áhöfnin sýndi henni skipið og svo snæddu þau saman, en áhöfnin safnaði 65 þúsund krónum sem rann í styrktarsöfnun handa kvenna- deild Landspítalans. Þá hefur áhöfnin skorað á útgerðina að leggja fram upphæð á móti. „Annars var kvöldið frábært í alla staði og dásamlegt að hitta Vil- borgu og skemmtum við okkur konunglega með henni,“ segir Ómar Orri Daníelsson, einn úr áhöfninni, á Facebook-síðu sinni. - gb Áhöfnin á Poseidon hitti Vilborgu Önnu Gissurardóttur: Buðu pólfaranum í mat í Síle VILBORG ÁSAMT ÁHÖFNINNI Á POSEIDON Þorsteinn Skjóldal, Guðmundur Sigur- bergsson, Arnar Már Sigurðsson, Róbert Stefán Róbertsson, Ómar Orri Daníelsson, Jónas Rafn Jónsson, Vilborg Anna Gissurardóttir, Karl Þór Baldvinsson og Þórhallur Óskarsson. MYND/GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON SPURNING DAGSINS Haukur, ætlið þið að taka Father and Son með Cat Stevens? „Hver veit, og kannski tökum við Doctor Doctor með Thompson Twins líka.“ Haukur Heiðar Hauksson er söngvari hljóm- sveitarinnar Diktu. Í kvöld mun hann í fyrsta sinn stíga á svið með föður sínum, Hauki Heiðari Ingólfssyni, en þeir hyggjast spila saman á Rósenberg. Þeir eru báðir læknar. SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn Akraness samþykkti samhljóða á þriðjudag bókun þar sem hnykkt er á þeirri afstöðu að Jóni Pálma Pálssyni bæjarritara hafi ekki verið sætt lengur í embætti. Eins og komið hefur fram var samið um starfslok Jóns Pálma fyrr í þessum mánuði eftir að ljóst þótti að hann hefði rukk- að mismunandi aðila fyrir sama akstur og nefndarsetur. Meðal annars rukkaði bæjarritarinn Heilbrigðiseftirlit Vesturlands fyrir að sitja þrjá fundi með bæj- arráði Akraness. „Fyrrverandi bæjarritari var næstæðsti embættismaður á skrifstofu bæjarins. Hann bar sem slíkur ríka ábyrgð og trún- aðarskyldur í stjórnsýslu og innra eftirliti með rekstri sveitarfélags- ins og átti því að vera til fyrir- myndar í öllum störfum sínum fyrir bæjarfélagið,“ segir í bókun sem allir bæjarfulltrúarnir níu samþykktu á þriðjudag. Þá var jafnframt samþykktur starfsloka- samningur sem tryggir Jóni laun út árið 2013. Áður en bæjarstjórnin tók ákvörðun um framtíð Jóns Pálma í starfi fékk hann svigrúm til andmæla. Í skýringum lögmanns hans kemur fram að Jón Pálmi hafi áður fyrr haft fasta greiðslu hjá Akranesbæ fyrir akstur. Í júní 2010 hafi verið teknar upp akstursgreiðslur samkvæmt dag- bók. Þá hafi Jón Pálmi hætt að innheimta greiðslur fyrir innan- bæjarakstur. Því sé „fráleitt að ætla að hann hafi vísvitandi inn- heimt meira en honum bar vegna annars aksturs,“ segir lögmaður- inn. Í bókun bæjarstjórnarinn- ar er ítrekað að Jón Pálmi hafi brotið gegn starfsskyldum sínum. „Hann fór á svig við gild- andi reglur bæjarfélagsins um greiðslur fyrir bifreiðaafnot og starf í nefndum, krafði og lét fleiri en einn aðila greiða sér vegna sömu tilefna og braut þann- ig reglur sem hann sjálfur skyldi hafa forystu um að viðhalda og virða,“ segir bæjarstjórnin. Jón endurgreiddi bænum 229 þúsund krónur sem hann taldi reyndar sjálfur að hefðu verið ofreiknaðar „meðal annars fyrir hans mistök“. Bæjarstjórnin segir að það hafi hann gert „að eigin frumkvæði og án þess að sú upphæð væri borin undir bæjar- yfirvöld eða aðra sem áttu hlut að máli“. Þó að lögmaður Jóns Pálma segði meðferð bæjarins á mál- inu „fordæmalausa“ og „ekki í nokkru samhengi við alvarleika málsins“ vildi hann að málið yrði látið kyrrt liggja. „Telur Jón Pálmi rétt að hann gangi til starfa sinna sem bæjarritari og aðilar komi sér saman um að upplýsa opinberlega að skoðun á málinu hafi ekki leitt í ljós neitt sem gefi tilefni til frekari aðgerða.“ Bæjarstjórnin segir málið hins vegar alvarlegt brot á því trausti sem æðstu yfirmenn bæjarfélags- ins verði að njóta. „Slíkur trún- aðarbrestur hlaut því að hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir viðkomandi embættis- mann.“ gar@frettabladid.is Brást sem fyrirmynd Framferði brottrekins bæjarritara á Akranesi hlaut að hafa alvarlegar afleiðingar ítrekar einróma bæjarstjórn í nýrri bókun. Jón Pálmi Pálsson vildi halda starfinu og fá yfirlýsingu um að skoðun hafi sýnt að ekki væri tilefni til frekari aðgerða. FRÉTTABLAÐIÐ 15. JANÚAR Starfslok bæjarritar- ans á Akranesi áttu sér aðdraganda allt frá því fyrir jól að hann var leystur tímabundið frá störfum á meðan málið var rann- sakað nánar. SVEITARSTJÓRNIR „Þau vinnubrögð sem bæjarstjórn hefur viðhaft í þessu máli eru fordæmalaus,“ segir Jón Pálmi Pálsson, sem er hættur sem bæjarritari á Akranesi með starfslokasamkomulagi við bæjar- stjórnina.Jón hefur verið bæjarritari á Akranesi í 25 ár. Hann hafði um nokkurra vikna skeið verið settur bæjarstjóri þegar honum var veitt tímabundin lausn frá starfs- skyldum 16. desember síðastliðinn. „Kveikjan að því að málið var upphaflega tekið til skoðunar á vettvangi Akraneskaup- staðar var ábending frá Sam- tökum sveitarfélaga á Vestur- landi um að bæjar ritarinn, fulltrúi Akraneskaup staðar í stjórnum Heilbrigðiseftirlits Vestur lands og Menningarráðs Vesturlands, krefði fleiri en einn aðila um akstur og þóknun fyrir setu á sömu fundum,“ segir í fréttatilkynningu frá Sveini Kristinssyni, forseta bæjar stjórnar, fyrir hönd bæjarins. Fram kemur að Jón hafi í nokkrum tilvikum krafið um greiðslu og fengið greitt í tvígang fyrir sama aksturinn á árunum 2011 og 2012.„Í áliti lögmanna og endurskoð- enda Akraneskaupstaðar kemur einnig fram að bæjarritarinn hafi í nokkrum tilvikum krafið um og fengið greitt fyrir sömu fundina hjá fleiri en einum aðila en setið fundina í nafni Akraneskaup staðar,“ segir í tilkynningu bæjarins. „Í ljósi þess trúnaðarbrests sem orðið hefur telur bæjarstjórn Akraneskaup- staðar starfslok óumflýjanleg.“ Jón segir vinnubrögð bæjar- stjórnarinnar í andstöðu við almennar reglur stjórnsýslulaga. „Ofgreiðsla þessi er vegna mistaka minna við skráningu aksturs og hef ég endurgreitt bæjarfé laginu þessa fjármuni að fullu. Auðvelt hefði verið að leiðrétta þessi mistök án þess að grípa til fyrrgreindra aðgerða sem hafa skaðað mig og sveitarfélagið,“ segir Jón í yfir- lýsingu. Hann endurgreiddi 230 þúsund krónur vegna ofgreidds aksturskostnaðar.Þá segir Jón að greiðslur þóknana til hans vegna setu í tveimur nefndum sem sveitarfélagið sé aðili að hafi verið í samræmi við reglur hvorrar nefndar um sig. Hann hafi gert ráð fyrir að snúa aftur til starfa sem bæjarritari.„Mistök mín voru óveruleg eins og fjárhæð endurgreiðslunnar ber með sér og enginn vafi uppi um önnur störf mín sem bæjarritari, sem spanna aldarfjórðung. Bæjar- stjórn hafnaði því að ég kæmi aftur til starfa, enda reiddi hún hátt til höggs áður en upplýsingar lágu fyrir,“ segir Jón, sem kveðst því hafa samþykkt „ágætt tilboð“ um starfslokasamning. „Mér finnst afskaplega miður að ljúka 25 ára starfi mínu hjá bæjarfélaginu með þessum hætti.“ gar@frettabladid.is Bæjarritarinn rekinn eftir 25 ár á Akranesi Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari á Akranesi til 25 ára og settur bæjarstjóri um tíma, var rekinn úr starfi fyrir helgi. Bæjarstjórnin segir Jón hafa brugðist trúnaði með því að tvírukka fyrir akstur og fundarsetur. Fordæmalaus vinnubrögð, segir Jón. AKRANES Ábending frá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi leiddi til úttektar á greiðslum til bæjarritarans á Akranesi tvö og hálft ár aftur í tímann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA gi það hafi bjargað í grunnþjón- lbrigðiskerfisins. „Á sama tíma er verið að læða þessum niður- skurði inn hér.“ - gar GRUNDARFJÖRÐUR Íbúar vilja ekki vera læknislausir um helgar í Grundar- firði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ÖGREGLUMÁ Sex kærur hafa borist lögreglunni í kynferðisbrotamáli Karls Vigni Fleiri ábendingar f dlandi í a trúarsam- daga m fljótin m og veita sem hafði - þeb dir sínar: átíð una og Ganges NORDICPHOTOS/AFP Ofgreiðsla þessi er vegna mistaka minna við skráningu aksturs og hef ég endurgreitt bæjarfélaginu þessa fjármuni að fullu. Jón Pálmi Pálsson, fyrrverandi bæjarstjóri Akraness. ur að róna. u na Aðilar komi sér saman um að upplýsa opinber- lega að skoðun á málinu hafi ekki leitt í ljós neitt sem gefi tilef i til freka i aðgerða. Lögmaður fyrir hönd fyrrverandi bæjar- ritara á Akranesi ALÞINGI Jón Bjarnason, sem sagði sig úr þingflokki Vinstri hreyfing- arinnar – græns framboðs (VG) í gær, útilokar ekki að bjóða sig fram undir merkjum nýs flokks í komandi kosningum. „Það er ekki mál sem er í kort- unum og algjörlega ótengt því sem er að gerast núna,“ sagði Jón aðspurður í samtali við Fréttablað- ið. Inntur frekar eftir því hvort eitthvað sé hæft í því að hann sé að vinna að nýju framboði með Atla Gíslasyni, sem hafði áður sagt sig úr þingflokki VG, segir Jón: „Við skulum láta einn dag nægja í þessum efnum og ég mun áfram berjast fyrir mínum hugsjónum og fólk veit fyrir hvað ég stend.“ Jón er fjórði þingmaður VG sem yfirgefur þingflokkinn á kjörtíma- bilinu, en áður höfðu Atli, Lilja Mósesdóttir og Ásmundur Einar Daðason farið þá leið. Jón mun sitja utan flokka þær vikur sem eftir eru af yfirstandandi þingi. Stjórnarflokkarnir hafa nú aðeins 30 þingmenn og þurfa að reiða sig á stuðning annarra flokka. Jón segist aðspurður munu styðja „góð mál“ hjá ríkisstjórninni, „en ekk- ert umfram það“. Varðandi ástæður þess að hann segi sig nú úr þingflokknum segir hann að margt spili inn í, meðal annars forgangsröðun í málefnum landsbyggðarinnar, en þróun mála í Evrópumálum hafi ráðið bagga- muninn. „Þingflokkurinn krafðist þess að ég færi úr utanríkismálanefnd vegna afstöðu minnar til umsókn- ar að Evrópusambandinu. Ég hef barist gegn aðild og talið að við ættum að stöðva þessa umsókn. Þingflokkurinn er á annarri skoð- un og því eigum við ekki samleið,“ segir Jón. - kh, þj Jón Bjarnason fjórði þingmaðurinn til að segja sig úr þingflokki VG: Segir nýtt framboð ekki útilokað UTANFLOKKA Jón Bjarnason mun sitja utan flokka það sem eftir lifir kjörtíma- bils eftir að hann sagði sig úr þingflokki VG í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Kristjón Þorkels- son, sendifulltrúi Rauða krossins á Íslandi, varð bráðkvaddur í Síerra Leóne sunnudaginn 20. janúar. Kristjón hafði starfað að neyðaraðgerð- um fyrir Rauða krossinn vegna kólerufaraldurs í Síerra Leóne síðan í ágúst. Kristjón var fæddur 20. desember árið 1955 og bjó í Reykjavík. Hann var pípulagn- ingameistari og starfaði sem sérfræðingur í vatns- og hrein- lætismálum fyrir Rauða kross- inn á Íslandi og Alþjóða Rauða krossinn. Kristjón var kvæntur Ásdísi Leifsdóttur. Dóttir þeirra er Halldóra fædd 1979. Kristjón Þor- kelsson látinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.