Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 24.01.2013, Blaðsíða 16
24. janúar 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 16 Samanlögð fjárhæð uppgreiddra fasteignalána hjá Íbúðalánasjóði á árinu 2012 var hærri en fjárhæð nýrra lána. Uppgreiðslur voru meiri en útlán í níu mánuðum á árinu og alls munaði tæpum þrem- ur milljörðum króna yfir árið. Fréttir af vanda Íbúðalánasjóðs hafa verið áberandi í fjölmiðlum síðustu mánuði. Sjóðurinn hefur glímt við há vanskilahlutföll lána og lítið eigið fé. Þar að auki hafa talsverðar uppgreiðslur lána vald- ið sjóðnum vandræðum. Þann- ig minnka nefnilega vaxtatekjur sjóðsins en vaxtagjöld minnka ekki á móti þar sem skuldir sjóðs- ins eru ekki innkallanlegar. Í skýrslu sem IFS-greining vann fyrir fjármálaráðuneytið og kom út í nóvember segir að sú opna vaxta- og uppgreiðsluáhætta sem þetta fyrirkomulagi valdi sé mesta áhætta sjóðsins. Þar segir jafnframt að við núverandi mark- aðsaðstæður og fyrirliggjandi vaxtamun sé sjálfbærni sjóðsins í uppnámi. Til að bregðast við eiginfjár- vanda Íbúðalánasjóðs lögðu stjórnvöld sjóðnum til þrettán milljarða króna í nóvember enda þótti ljóst að ella yrði eigið fé hans uppurið fyrir lok ársins 2012. Áður höfðu stjórnvöld lagt sjóðn- um til 33 milljarða árið 2011. Þessi innspýting eiginfjár leysir hins vegar ekki hinn djúpstæðari vanda opnu vaxta- og uppgreiðslu- áhætturnar. Bíður það verkefni stjórnvalda þegar starfshópur sem skipaður var til að fara yfir fram- tíðarhorfur og -hlutverk sjóðs- ins hefur skilað tillögum sínum en búist er við áfangaskýrslu frá hópnum í næsta mánuði. Ástæða þess að uppgreiðslur hafa aukist hjá Íbúðalánasjóði eru nokkrar. Í fyrsta lagi hafa vextir verið tiltölulega lágir hér á landi síðustu misseri sem ýtir undir það að lántakendur með dýr lán endur- fjármagni þau. Í öðru lagi hafa óverðtryggð fasteignalán viðskiptabankanna notið mikilla vinsælda síðustu misseri á meðan Íbúðalánasjóður hefur ekki boðið slík lán. Raunar hefur lagaheimild þess efnis legið fyrir síðan í fyrrahaust en meðal annars vegna óvissu um hvernig tekið verði á vanda sjóðsins hefur hann ekki séð sér fært að bjóða óverðtryggð lán enn sem komið er. Í þriðja lagi hefur verið eitthvað um að fólk hafi notað sparifé til að létta á skuldsetningu heimila sinna. magnusl@frettabladid.is Ný lán ÍLS voru minni en uppgreiðslur 2012 Heildaruppgreiðslur fasteignalána hjá Íbúðalánasjóði námu um 18 milljörðum króna á árinu 2012. Heildarfjárhæð nýrra lána hjá sjóðnum var aftur á móti ríflega 15 milljarðar á árinu. Von er á áfangaskýrslu um framtíðarhorfur sjóðsins. Vilmundur Jósefsson, formað- ur Samtaka atvinnulífsins (SA), hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs á aðalfundi SA sem fram fer 6. mars næst- komandi. Vilmundur hefur gegnt embættinu frá árinu 2009 en hann var áður formaður Samtaka iðnaðarins á árunum 2000 til 2006. Þá hefur Björgólfur Jóhanns- son, forstjóri Icelandair Group, tilkynnt að hann muni sækj- ast eftir embættinu. Björgólfur hefur verið forstjóri Icelandair Group frá árinu 2008 en starfaði þar á undan í áratugi í íslensk- um sjávarútvegi. Nýr formaður verður kjörinn með rafrænni kosningu í aðdraganda aðal- funds SA. - mþl Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, gefur kost á sér: Vilmundur hættir sem formaður SA VILMUNDUR JÓSEFSSON BJÖRGÓLFUR JÓHANNSSON Kletthálsi 11 og Breiðhöfða -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is TOYOTA LAND CRUISER 100 VX Nýskr. 03/03, ekinn 225 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr.3.420.000 TILBOÐ kr. 2.690 þús. MERCEDES BENZ C230 COMPR. Nýskr. 05/06, ekinn 39 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr.2.490.000 TILBOÐ kr. 1.890 þús. CHEVROLET TAHOE K1500 Nýskr. 05/07, ekinn 138 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr.4.990.000 TILBOÐ kr. 4.480 þús. NISSAN PATROL LUXURY Nýskr. 10/06 ekinn 123 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr.3.880.000 TILBOÐ kr. 3.280 þús. RANGE ROVER VOGUE Nýskr. 07/02, ekinn 202 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr.2.290.000 TILBOÐ kr. 1.690 þús. NISSAN X-TRAIL LE Nýskr. 08/08, ekinn 68 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr.3.890.000 TILBOÐ kr. 3.390 þús. HONDA ACCORD ELEGANCE Nýskr. 03/10, ekinn 48 þús. km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.680.000 TILBOÐSVERÐ! 2.990 þús. Frábært úrval af nýlegum, lítið eknum bílum á frábæru verði! TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ KOMDU STRAX Í DAG! GERÐU FRÁBÆR KAUP! Dust 514 er fjölspilunarskotleikur sem er spilaður í gegnum netið á Playstation 3 tölvur. Leikurinn gerist á plánetum í sama sýndarheimi og EVE online, fyrri leikur CCP, og er beintengdur EVE. Þannig geta leik- menn í EVE fengið Dust 514 spilara til þess að taka yfir plánetur og landsvæði fyrir sig með bardögum og herkænsku. Þykir leikurinn sérstakur að þessu leyti en ólíkir leikir hafa ekki verið tengdir saman með þessum hætti áður. Ný fasteignalán og uppgreiðslur lána 2011-2012 ■ Ný fasteignalán Íbúðalánasjóðs ■ Uppgreiðslur lána 2011 2012 3.000 2.500 2.000 1.500 1.000 500 0 m ill jó ni r k ró na Fyrstu viðbrögð við opinni útgáfu af Dust 514, öðrum tölvuleiknum sem íslenska hugbúnaðarfyrirtækið CCP býr til, hafa verið jákvæð. Leikurinn var opnaður almenningi í gær þegar svoköll- uð opin beta-prófun leiksins hófst sem er síðasta þróunarstig leiksins. „Þetta hefur gengið virkilega vel. Bæði tæknilega og hvað varðar viðbrögð spilara. Enda er þessi opnun búin að eiga sér langan aðdraganda hjá okkur í CCP,“ segir Eldar Ástþórsson, fjölmiðlafulltrúi CCP. Eigendur Playstation 3 leikjatölva geta nú halað niður Dust 514 sér að kostnað- arlausu. Hyggst CCP gefa leikinn en afla tekna í gegnum sölu á ýmsum viðbótum og varningi sem getur komið að gagni í leiknum. Frá því að leikurinn var gerður aðgengilegur hafa fjölmargir gagnrýn- endur fjallað um hann. Eldar segir að umsagnirnar hafi í flestum tilvikum verið jákvæðar. „Við gerum okkur þó grein fyrir að leikurinn er ekki fullbúinn. Við erum enn að vinna í ýmsum viðbótum,“ segir Eldar og bætir við: „Við fáum mikið af viðbrögðum frá þeim sem spila leikinn, sem hjálpa okkur við að styrkja hann og sníða af þá vankanta sem hann kann enn að hafa.“ - mþl CCP hefur opnað fyrir aðgang almennings að nýja tölvuleiknum sínum: Fyrstu viðbrögð við Dust jákvæð DUST 514 Leikmenn í Dust 514 berjast um landsvæði og heilu pláneturnar með herkænsku og ýmis tæki og tól að vopni. Um Dust-514
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.