Fréttablaðið - 01.02.2013, Page 17
FÖSTUDAGUR 1. febrúar 2013 | SKOÐUN | 17
Myndin með þessari grein sýnir
lagalega stöðu kláms víða um
heim. Ísland er þar í flokki með
löndum á borð við Kúbu, Kína,
Norður-Kóreu og harðstjórnar-
ríki Mið-Austurlanda. Það er
vandamál.
Vandamálið er því ekki, eins og
sumir nú halda fram, að það sé
„ekki farið eftir lögunum“. Vanda-
málið er lögin sjálf. Látum rit-
skoðunarvinkilinn bíða að sinni.
Sú umræða sem Ögmundur Jónas-
son og félagar reyna nú að starta
byggir meðal annars á eftir-
farandi röksemdafærslu: „Fullt af
fólki horfir á klám. Klám hvetur
til kynferðisofbeldis. Ef klám
yrði minna aðgengilegt myndi
kynferðisglæpum fækka. Þess
vegna á klám að vera bannað.“
Svo vill til að fjölmörg ríki
bönnuðu eitt sinn klám en gera
það ekki lengur. Danir afnámu
bannið til dæmis árið 1967. Slíkar
lagabreytingar gera mönnum
kleift að rannsaka hvaða áhrif
frjálslyndari klámlöggjöf hefur
haft á tíðni kynferðisafbrota.
Enda hefur það verið gert.
Niðurstaðan sú sama
Rannsóknir danska vísinda-
mannsins Berls Kutchinsky frá
1991 á tengslum kláms og kyn-
ferðisofbeldis í Danmörku,
Svíþjóð, Vestur-Þýskalandi og
Bandaríkjunum sýndu að í engum
umræddra ríkja jókst tíðni kyn-
ferðisafbrota þrátt fyrir mikla
aukningu kláms í umferð. Þessar
rannsóknir hafa verið endur-
teknar í fleiri löndum, til dæmis
Japan, Suður-Kóreu, Sjanghæ-
héraði í Kína, Finnlandi og
Króatíu (sjá Diamond o.fl.) Alls
staðar var niðurstaða rannsókna
sú sama: Samhliða sprengingu í
aðgengi fólks að klámi fækkaði
nauðgunum og öðrum kynferðis-
afbrotum.
Tökum Tékkland sem dæmi.
Á tímum kommúnismans ráku
tékkóslóvakísk stjórnvöld afar
púritanska stefnu í þessum
málum. Eftir hrun járn tjaldsins
var klám leyft. Tilkynntum
nauðgunum fjölgaði árið 1989, en
raunar ekki nærri jafnmikið og
öðrum glæpum það ár. Síðan þá
hefur talan legið niður á við ár
frá ári og tilkynntar nauðganir
voru mun færri árið 2007 en árið
1974. Þetta kemur fram í grein-
inni „Pornography and Sex Cri-
mes in the Czech Republic“ eftir
Diamond, Jozifkova og Weiss
sem birt var í Archives of Sexual
Behaviour árið 2011.
Auðvitað þarf þetta ekki að
segja allt. Einn vandi í rann-
sóknum á kynferðisafbrotum er
samanburður sem getur verið
erfiður. Til dæmis, þótt sexfalt
fleiri nauðganir séu tilkynntar til
lögreglu á Íslandi en í Tékklandi
(sem er staðreynd) gæti skýr-
ingin verið sú að tékkneskir þol-
endur nauðgana kæri síður.
Það mætti því alveg eins reyna
að setja fram þá tilgátu að klám
HEFÐI fjölgað nauðgunum í
Tékklandi, og öðrum löndum í
þessum rannsóknum, en konur
kærðu þær síður. En augljóst
er að það stenst ekki. Í flestum
löndum Mið- og Austur- Evrópu
ríkti margfalt meiri þöggun í
þessum málaflokki á meðan
löndin bjuggu við einræði en nú.
Allt bendir því til að lögleyfing
kláms hafi hvergi, hvorki í Tékk-
landi, í Danmörku né annars
staðar, fjölgað kynferðisglæpum.
Kúgun og þöggun
Flestar vísbendingar benda
raunar til hins gagnstæða. Og
miðað við heimskortið sýnist
mér frekar að klámbönn séu
birtingarmynd kúgunar kvenna
og þöggunar í kynferðismálum
en hitt.
Það eru vitanlega aðrir
vinklar á klámumræðuna en
þeir hvaða áhrif (jákvæð eða
neikvæð) klám kunni að hafa
á þá sem á það horfa og sam-
félagið í heild sinni. Einn snýr
auðvitað að þeim sem koma
fram í klámmyndum. Jafnvel
argasti talsmaður málfrelsis
myndi ekki telja það falla undir
málfrelsi að brjóta á fólki og
sýna það á netinu. Umræðan má
líka alveg snúast um það. En
málið nú snýst ekki um að loka á
þær ákveðnu síður sem sannar-
lega sýna efni þar sem brotið er
á fólki.
Málið snýst um að banna allt
efni af ákveðinni gerð. Í raun
bara vegna þess að það ofbýður
velsæmi sumra.
Miðað við þær rann sóknir
sem fyrir liggja er raunar
aðeins eitt rökrétt skref í
stöðunni: Að afnema þá grein
hegningarlaganna frá 1941 sem
kveður á um að birting, sala eða
dreifing á klámefni skuli varða
sektum eða fangelsi allt að
sex mánuðum. Það ætti að lita
Ísland með réttum lit. En ætli
það komi ekki í hlutverk næsta
innanríkisráðherra að leggja
það til.
Í DAG
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Alls staðar var niður-
staða rannsókna sú
sama: Samhliða sprengingu
í aðgengi fólks að klámi
fækkaði nauðgunum og
öðrum kynferðisafbrotum.
Klám fjölgar ekki nauðgunum
LAGALEG STAÐA KLÁMS Í HEIMINUM
■ Klám löglegt
■ Klám löglegt með
takmörkunum
■ Klám ólöglegt
■ Gögn ekki tiltæk
1.390ALLUR FISKUR ÚR FISKBORÐI kr.kg.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Eigum til fullt af Lúðu, Laxaflökum,
marineruðum Laxasteikum, Þorskhnökkum,
Löngu og Keilusteikum, Saltfiskhnökkum
og að sjálfsögðu Bláskel fyrir skemmtilega
og „ódýra heilsuhelgi“
Styðjið okkur í að lækka vöruverð
til ykkar með því að láta sjá
ykkur og versla ódýran fisk
í heilsuvikunni okkar.
SÍÐASTI DAGURINN!
OPIÐ
LAUGARDAG
10-15