Fréttablaðið - 01.02.2013, Page 11
FÖSTUDAGUR 1. febrúar 2013 | FRÉTTIR | 11
Beint leiguflug með Icelandair
Golfsettið ferðast frítt
VITA er í eigu Icelandair Group.
VITA er lífiðVITA
Suðurlandsbraut 2
Sími 570 4444
Allar nánari upplýsingar
á www.vita.is/golflif
Nýr og spennandi áfangastaður í Algarve
14. - 24. apríl – 10 nætur
24. apríl - 4. maí – 10 nætur
Golf í Portúgal
Golf Resort í lúxusflokki á yndislegum stað, valið besta Golf Resort
í Portúgal árið 2012!
18 holu Sir Henry Cotton keppnisvöllur og mjög skemmtilegur
alvöru 9 holu Resort völlur og að auki 9 holu stuttur æfingavöllur.
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, akstur milli flugvallar og hótels, gisting í 7 nætur,
morgun- og kvöldverðarhlaðborð, 1/2 flaska af húsvíni, bjór, vatn og kaffi með
kvöldverðI. Golf með golfkerru alla daga (háð brottfarar- og komutíma) á
aðalvellinum og síðdegisgolf á 9 holu völlunum (ef rástími er laus), ein karfa af
æfingaboltum á dag. Íslensk fararstjórn.
* Verð án Vildarpunkta 209.500 kr.
PENINA
GOLF RESORT
Verð frá 199.500 kr.*
og 15.000 Vildarpunktar
á mann í tvíbýli í 7 nætur.
UPPSELT
UPPSELT
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
6
28
65
0
1/
13
Ný vikuferð 7 - 14 apríl
„Voted Europe´s best golf destination
by Today´s golfer“
HAPPDRÆTTI Íslendingar verða í
fyrsta skipti með í Eurojackpot
lottóinu þegar dregið verður í
dag. Vinningar í Eurojackpot geta
numið milljörðum króna. Lág-
marksvinningsupphæð í hverri
viku er tíu milljón evrur, eða
jafnvirði 1,7 milljarða íslenskra
króna, og getur hæst orðið 90
milljón evrur, eða 15 milljarðar
króna. Ein röð kostar 320 krónur.
Íslensk getspá hefur umsjón
með Eurojackpot á Íslandi
„Það er von mín að ávinningur
af leiknum skili sér til spilaranna
í spennandi vinningum á sama
tíma og hann styrki mikilvægt
starf íþrótta- og ungmennafélags-
hreyfingarinnar og öryrkja í land-
inu,“ segir Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri Íslenskrar
getspár.
Eurojackpot hóf göngu sína í
mars á síðasta ári og er leikurinn
nú spilaður í fjórtán löndum. Auk
Íslands eru það Danmörk, Noreg-
ur, Svíþjóð, Finnland, Eistland,
Lettland, Litháen, Þýskaland, Hol-
land, Króatía, Slóvenía, Ítalía og
Spánn.
Líkt og í öllum happdrættum eru
vinningsmöguleikar ekki sérlega
miklir. Líkurnar á þeim stóra eru
einn á móti 59,3 milljónum. Leik-
urinn gengur út á að finna fimm
réttar tölur af fimmtíu, og tvær
stjörnutölur af átta á leikspjald-
inu. Nálgast má miða á sölustöð-
um Íslenskrar getspár og á lotto.is.
Fyrsti útdráttur er í dag eins
og áður sagði og loka sölustaðir
klukkan 18. - áá
Ísland verður í dag í fyrsta sinn með þegar dregið er í milljarðahappdrætti Eurojackpot:
Mest hægt að vinna 15 milljarða króna
VONGÓÐUR Stefán Konráðsson er
framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár.
UMHVERFISMÁL Umhverfisstofn-
un hefur gefið út leyfi til Háskóla
Íslands fyrir afmarkaðri starf-
semi með erfðabreyttar örverur
á Tilraunastöð Háskóla Íslands í
meinafræði að Keldum. Um er að
ræða rannsóknir á mæði-visnu-
veiru og herpes-hestaveiru.
Tilgangur rannsóknanna er ann-
ars vegar að rannsaka eðli og
eiginleika mæði-visnuveirunnar
og hins vegar að þróa bóluefni
við sumarexemi í hrossum og til
rannsókna á sýkiferli. Umsagn-
araðilar voru Ráðgjafanefnd um
erfðabreyttar lífverur og Vinnu-
eftirlitið. Starfsleyfið er veitt til
tíu ára. - shá
Veitt leyfi til tíu ára:
Erfðabreyttar
örverur nýttar
HROSS KLJÁST Herpes-hestaveira
verður rannsökuð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVEITARSTJÓRNIR „Ég mótmæli
harðlega samlíkingu formanns
bæjarráðs um að líkja mér við
áróðursmála-
ráðherra nas-
ista í seinni
heimsstyrj-
öldinni, hún
er honum til
skammar,“
bókaði áheyrn-
arfulltrúi
Íbúahreyfing-
arinnar, Jón
Jósef Bjarna-
son, á bæjarráðsfundi í Mos-
fellsbæ. Verið var að ræða bygg-
ingu hjúkrunarheimilis.
Hafsteinn Pálsson, formaður
bæjarráðs úr Sjálfstæðisflokki,
sagði ekki rétt að hann hafi líkt
Jóni við umræddan ráðherra;
Jósef Göbbels. „Hins vegar var
um margítrekaðar fullyrðingar
að ræða sem hann hefur ávallt
fengið skýringar á að ekki eigi
við rök að styðjast. Í ljósi þess að
hann hafði þennan skilning á því
sem ég hafði sagt bauð ég fram
afsökunarbeiðni á orðum mínum
sem hann ekki þáði,“ bókaði Haf-
steinn. - gar
Áheyrnarfulltrúi í bæjarráði:
Þótti sér líkt
við Göbbels
HAFSTEINN
PÁLSSON
FJÖLMIÐLAR Finnland, Holland og
Noregur skipa efstu sæti lista sem
samtökin, Fréttamenn án landa-
mæra, hafa gefið út um aðstæður
og réttindi fréttamanna. Einræð-
isríkin Túrkmenistan, Norður-
Kórea og Erítrea vermdu neðstu
sætin. Ísland er í níunda sæti. Af
löndunum í Evrópu stóð Hvíta-
Rússland verst að vígi en það var í
157. sæti.
Við matið var tekið tillit til
ofbeldis, löggjafar og viðhorfa til
tjáningarfrelsis. - ah
Skýrsla um frelsi fjölmiðla:
Finnar standa
best að vígi
BJÖRGUN
Sóttu vélsleðamann
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í gær
slasaðan vélsleðamann í Veiðivötn.
Maðurinn var handleggsbrotinn og
með aðra áverka, þó ekki lífshættulega.
Þar sem um langa leið hefði verið að
fara fyrir björgunarsveitir var afráðið
að senda þyrluna. Hún lenti í Reykjavík
skömmu eftir kvöldmat í gærkvöld og
var hinn slasaði fluttur á Landspítalann
til aðhlynningar.