Fréttablaðið - 01.02.2013, Page 28
2 • LÍFIÐ 1. FEBRÚAR 2013
Útgáfufélag 365 miðlar ehf.
Forsíðumynd Arnold Björnsson
Auglýsingar Atli Bergmann
atlib@365.is
Lífið Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík, sími 512 5000
www.visir.is/lifid
UMSJÓN
Ellý Ármanns elly@365.is
Kolbrún Pálína Helgadóttir
kolbrunp@365.is
HVERJIR
VORU
HVAR?
Kvenorkan lá svo sannar-
lega yfir Ráðhúsi Reykja-
víkur fyrr í vikunni þegar
FKA, Félag kvenna í
atvinnulífinu, afhenti
sínar árlegu viður-
kenningar að viðstödd-
um fjölda manns sem
bera af í viðskipta
og atvinnulífinu.
Hafdís Jóns-
dóttir, eigandi
World Class og
formaður félags-
ins, var glæsileg að
vanda en hún bauð
gesti velkomna.
Á meðal þeirra
mátti meðal ann-
ars sjá Rannveigu
Rist, forstjóra Alcan,
Margréti Oddsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Já, og hina
geislandi og skemmtilegu
Marentzu Poulsen, smur-
brauðsjómfrú og eiganda
Café Flóru.
8.30 Vaknaði, borðaði Kellogg’s Special K í morgunmat á meðan ég tók smá email-
og Facebook/Twitter-hring.
9.00 Settist við tölvuna og fylgdist með tíma í skólanum úti í Englandi í gegn-
um Skype svo ég missi ekki af of miklu á meðan
ég er hérna heima að syngja í Söngvakeppn-
inni.
13.00 Hoppaði gleðihopp þegar ég fékk staðfestingu á miðakaupum á
kántrítónlistarhátíð í London í mars senda frá
vinkonu minni. Carrie Underwood, LeAnn Rimes
og fleiri, hér kem ég!
13.30 Kíkti í heimsókn og hádegismat til ömmu og afa sem búa rétt hjá mér
hérna í Mosfellsdalnum. Alltaf yndislegt að sitja
og spjalla við þau.
16.30 Fór út að labba með hundana Ólíver og Ronju sem var ákveðið áhættu-
atriði vegna hálkunnar hér í Dalnum en þau voru
göngutúrnum mjög fegin.
17.30 Settist aftur við tölvuna og vann smá rannsóknarvinnu fyrir næsta verkefni
í skólanum, leikrit byggt á sönnum atburðum
sem heitir The Colour of Justice.
19.00 Skellti í pitsu í kvöldmatinn handa fjölskyldunni.
21.15 Æfing með hópnum fyrir söngva-keppnina á laugardaginn. Ótrúlega
skemmtilegur hópur og manni leiðist sko ekki á
æfingum.
23.15 Skreið upp í rúm og lét persónur og leikendur í Once Upon a Time-þátt-
unum fylgja mér í draumalandið.
Dagur í lífi
Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm
söngkona og leiklistarnemi
„Munurinn á Bollywood-dansi og
magadansi er álíka og munurinn
á íslensku og þýsku. Dansarnir
byggja á svipuðum grunni og nota
svipaða vöðvahópa en áherslurn-
ar eru ólíkar. Magadans er mjög
tæknilegur, erfiður og smávöðva-
hreyfingarnar eru agaðri, en í Bolly-
wood ríkir meiri ærslagangur og
frelsi,“ útskýrir Margrét Erla Maack,
fjölmiðlakona og danskennari. Hún
hefur kennt magadans í Kramhús-
inu um árabil og fyrir fjórum árum
hóf hún að kenna Bollywood-dans
á sama stað.
Margrét Erla nam dansana meðal
annars hér á landi og í New York.
Að auki hefur hún sótt tíma á hinni
árlegu danshátíð Stockholm Belly
Dance Festival. „Ég hef farið fimm
eða sex sinnum á hátíðina og gisti
þá hjá frænda mínum sem er ball-
ettdansari í Stokkhólmi. Ég reikna
þó ekki með því að fara í ár.“
Spurð hvort nota megi sömu
búninga í báðum dönsum segir
Margrét Erla það harðbannað. „Þú
getur notað neðri hlutann í báðum
dönsum en ekki þá efri. Fólk sem
kemur í tímana til mín þarf þó ekki
að eiga rétta fatnaðinn, ekki nema
það ætli sér á svið. Ég tek þó fram
að kókómjólkurbolir eru harðbann-
aðir.“
Danstímar Margrétar Erlu eru
stjörnum prýddir og í hópi nem-
enda hennar eru söngkonan Þór-
unn Antonía Magnúsdóttir, hönn-
uðurinn Sara María Júlíudóttir, fjöl-
miðlakonan Helga Arnardóttir auk
varaborgarfulltrúans Diljár Ámunda-
dóttur. „Það ríkir svakaleg stemn-
ing í tímunum og sumar fara meira
að segja í sturtu fyrir tímann, blása
á sér hárið, farða sig og hlaða á sig
skarti.“
Margrét Erla kennir þrisvar í viku
í Kramhúsinu en tekur einnig að sér
kennslu á vinnustöðum, fyrir gæsa-
veislur og aðrar uppákomur. Hún
hyggst halda dansinum áfram eins
lengi og hún hefur heilsu til. „Ég
verð að gera það. Þessir dansar
hafa gefið mér svo mikið og eru stór
hluti af því hver ég er, þetta er mín
líkams- og geðrækt. Verði ég ófrísk
verð ég með magadans fyrir ólétt-
ar konur, þegar ég fer á breytinga-
skeiðið ætla ég að vera með maga-
dans fyrir konur á breytingaskeið-
inu og einn góðan veðurdag verð
ég vonandi með danskennslu fyrir
eldri borgara. Meðan ég hef heilsu
til, þá dansa ég.“ - sm
DANS
FYRIR SÁLINA
Margrét Erla Maack kennir bæði
Bollywood- og magadans í Kramhúsinu.
GÓÐ GEÐRÆKT
Margrét Erla Maack, fjöl-
miðlakona og danskenn-
ari, kennir Bollywood-
og magadans. Hún segir
dansinn sína líkams- og
geðrækt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Styrking • Jafnvægi • Fegurð
CC Flax
Frábært gegn fyrirtíðarspennu fyrir konur á öllum
aldri og einkennum breytingaskeiðs
Heilbrigðari og grennri konur
Rannsókn sýna að konur sem hafa mikið
lignans i blóðinu eru að meðaltali með 8,5 kg
minni fitumassa en þær konur sem skortir
eða hafa lítið af Lignans.**
* Howel AB Journal of the American Medical Associaton june 2002 287:3082
** British Journal of Nutrition(2009), 102: 195-200 Cambridge University.
1 kúfuð teskeið á dag - 40 daga skammtur
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup og Víði.
www.celsus.is
Mulin hörfræ – Lignans
Trönuberjafræ
Kalk úr hafþörungum
Slegið í gegn í vinsældum,
frábær árangur!
Stuðlar að hormónajafnvægi og vellíðan.
Talið gott við bjúg og vökvasöfnun, styrkir
þvagfærakerfið. Fjölbreyttar trefjar, hreinsa
og tryggja góða starfsemi ristilsins.
Lækkar kólestrólfitu, ríkt af Omega-3
Hár: Hairdoo Kópavogi Makeup: Sigur-
laug Dröfn Bjarnadóttir Fatnaður: Júnik
Smáralind Ljósmyndastúdíó: Elite