Fréttablaðið - 01.02.2013, Blaðsíða 42
1. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| MENNING | 26
BAKÞANKAR
Stígs Helgasonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
KROSSGÁTA
MYNDASÖGUR
PONDUS Eftir Frode Øverli
GELGJAN Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
HANDAN VIÐ HORNIÐ Eftir Tony Lopes
BARNALÁN Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
LÁRÉTT
2. nægilega, 6. í röð, 8. blóðhlaup, 9.
ósigur, 11. tveir eins, 12. ávöxtur, 14.
miklu, 16. sjó, 17. eyja í írlandshafi,
18. borða, 20. kvað, 21. glufa.
LÓÐRÉTT
1. getraun, 3. hljóm, 4. mótrök, 5. sarg,
7. aftursæti, 10. fálm, 13. borg, 15.
yndi, 16. sérstaklega, 19. frá.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. nógu, 6. áb, 8. mar, 9. tap,
11. gg, 12. akarn, 14. stóru, 16. sæ, 17.
mön, 18. éta, 20. ku, 21. rifa.
LÓÐRÉTT: 1. gáta, 3. óm, 4. gagnrök,
5. urg, 7. baksæti, 10. pat, 13. róm, 15.
unun, 16. sér, 19. af.
Óo!
Vá! Þetta var
alveg svona
Marilyn Monroe
augnablik!
Hjálpi
mér!
Er samt ekki viss
um að hún hafi
verið undirfata-
laus líka!
Halló.
Hæ, pabbi.
Ég er
kominn
heim.
Þú ert ekki kominn
heim þótt þú stígir
inn á lóðina.
Jú, víst. Má
ég fara út
aftur?
Segðu mér
aftur hvað
það er sem
er að kló-
settinu þínu.
Allir fylg jandi
segi já. Já!
Allir andvígir
segi nei. Nei!
Hvernig er hægt að vera
fylg jandi einhverju og
andvígur á sama tíma? Það
er ómögulegt!
Súkkulaði-
heimalær-
dómur.
Allt í lagi,
það er
næstum því
ómögulegt.
Póstdreifing býður upp á fjölbreytta og örugga dreifingu á blöðum og
tímaritum. Við komum sendingunni í réttar hendur. Örugglega til þín.
365 miðlar treysta okkur fyrir öruggri
dreifingu á Fréttablaðinu
Póstdreifing | Suðurhraun 1 | 210 Garðabær | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
B
ra
nd
en
bu
rg
Við flytjum þér
góðar fréttir
Erfiðleikarnir við að halda veglega verð-launahátíð fyrir íslenska kvikmynda- og
sjónvarpsgeirann á hverju ári afhjúpuðust á
vandræðalegasta mögulega máta í vikunni.
Í ljós kom að íslenskir handritshöfundar og
leikstjórar gera fyrst og fremst bíómyndir
og sjónvarpsþætti um karla. Konur eru svo
fámennar í leiknu efni að það er ekki einu
sinni hægt að tilnefna þær til verðlauna til
jafns á við karlana. Um það gilda strangar
reglur og akademían er mjög selektíf á til-
nefningar, eins og dæmin sanna.
ÁHUGAFÓLK um feminísk fræði er
eflaust þegar búið að komast að því að
konur hafi einfaldlega ekki nægan
áhuga á að vera í sviðsljósinu. Nú, eða
að þær hafi ekki nógu mikinn áhuga
á að skrifa handrit (því að augljóslega
þarf konur til að skrifa um konur). Og
þær hafa auðvitað engan áhuga á leik-
stjórn heldur, frekar en annarri
stjórn. Konur hafa víst bara ekk-
ert sérstaklega mikinn áhuga
á þátttöku í samfélaginu –
svona almennt.
ÞETTA dregur svo athygl-
ina að öðru áhugaverðu við
listann yfir Eddutilnefning-
ar í ár. Á honum kennir fjöl-
margra grasa. Reyndar man ég
ekki í fljótu bragði eftir neinu
efni sem var framleitt á Íslandi í
fyrra og er ekki tilnefnt.
ÞRJÁR kvikmyndir etja kappi um nafn-
bótina „besta mynd“ síðasta árs. Tvær eiga
það skilið – og eru enda tilnefndar í svo gott
sem öllum flokkum – en sú þriðja hlaut svo
dræmar viðtökur að þótt öllum stjörnunum
sem hún fékk hjá íslenskum gagnrýnend-
um hefði verið raðað hlið við hlið hefðu þær
samt ekki litið vel út á auglýsingaplakati.
AF hverju er Mið-Ísland „leikið efni“ en
Steindinn okkar „skemmtiþáttur“? Héldu
menn að barngóði, perralegi gamlinginn
hans Steinda væri raunverulegur húsvörður
í reykvískum grunnskóla? Eða þótti Mið-
Ísland bara ekki nógu skemmtilegt? Eða
getur hugsast að svona hafi verið heppileg-
ast að fylla flokkana og koma öllum að?
AUÐVITAÐ finnst bransanum gaman að
halda sína uppskeruhátíð árlega, detta í það,
fara í hæfilega hipp spariföt, taka við verð-
launum og lenda svo kannski – ef vel tekst
til – í handalögmálum á Næsta bar. En væri
kannski ráð að gera það með öðrum hætti
en þessum, að minnsta kosti annað hvert
ár? Yrði þessi verðlaunahátíð jafnvel ekki
algjört dúndur ef hún færi bara fram sömu
ár og Sumarólympíuleikar?
ÞAÐ eftirminnilegasta – og jafnframt tákn-
rænasta – sem hefur gerst á hátíðinni fram
til þessa er nefnilega þegar Ómari Ragnars-
syni voru afhent Edduverðlaun fyrir fram-
úrskarandi sjónvarpsfréttamennsku árið
2001 og þau brotnuðu í höndunum á honum.
Eddinn