Fréttablaðið - 01.02.2013, Side 22

Fréttablaðið - 01.02.2013, Side 22
1. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| SKOÐUN | 22 Icesave-dómurinn er gleðilegur og sýnir að réttlæti dómstólsins er ekki í hlutfalli við stærð þjóðanna, þó að ýmsir hafi gert því skóna áður en hann féll. Allir sann- gjarnir menn hljóta að fallast á að æskilegt sé að málið verði skoðað ítarlega frá upphafi og hvernig aðkoma og skoð- anir manna hafa þróast og hvers vegna. Síðla árs 2008 samþykktu allir þingmenn Sjálfstæðisflokks þingsályktun sem byggði á yfirlýs- ingu Davíðs Oddssonar og Árna M. Mathiesens. Þar sagði meðal annars: „Ísland hefur heitið því að virða skuldbindingar á grund- velli innstæðutryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum innláns- höfum. Þetta byggist á þeim skiln- ingi að unnt verði að forfjármagna þessar kröfur fyrir tilstyrk við- komandi erlendra ríkja og að jafnt Ísland sem þessi ríki séu stað ráðin í að efna til viðræðna á næstu dögum með það að markmiði að ná samkomulagi um nánari skil- mála vegna þessarar forfjármögn- unar.“ Þingmenn Sjálfstæðis- flokks samþykktu líka nær allir í desember 2008 að ganga til samn- inga um ábyrgð ríkissjóðs vegna innstæðna í útibúum íslenskra viðskiptabanka á EES-svæðinu á grundvelli þeirra sameiginlegu viðmiða sem aðilar höfðu komið sér saman um. Björn Bjarnason, sem þá sat á þingi og var ráðherra, sagði frá því á vefsíðu sinni í nóvember 2008 að ákveðið hefði verið að semja um málið: „Þegar samið er, hafa báðir nokkuð til síns máls. Ég hef aldrei hallast að þeirri skoðun, að samn- ingar séu svik, þegar deilur milli ríkja eru leystar. Mér heyrist örla á því sjónarmiði í gagnrýni stjórnarandstöðu á samn- inginn um IceSave. Það er siðaðra þjóða háttur að ljúka deilum með sam- komulagi – hins vegar má ekki greiða samninga of dýru verði eða afsala sér rétti til að halda lagaskil- yrðum til haga og nýta lögfræði- lega túlkun til hins ýtrasta.“ Þetta er auðvitað hárrétt hjá Birni. Á árinu 2009 skrifuðu fræði- mennirnir Stefán Már Stefánsson og Lárus Blöndal margar greinar um að Ísland bæri ekki ábyrgð á kröfunum. Undirritaður var í hópi þeirra sem las þær greinar af athygli og fannst þær sannfær- andi. Þess vegna vó það þungt í mínum huga þegar Lárus kom að lokasamningnum um Icesave og mælti með því að hann yrði sam- þykktur. Allir vildu gera rétt Árið 2011 var sá samningur bor- inn undir þjóðaratkvæði. Þá var sýnt að staða þrotabús Lands- bankans hafði batnað svo mikið að það myndi geta greitt nær allar kröfurnar. Skilanefnd taldi að um 10 milljarðar króna stæðu út af en síðan hafa heimtur búsins batnað langt umfram Ice- save-kröfuna. Áhættan við að segja já fólst því fyrst og fremst í því að heimtur búsins yrðu lakari, sem auðvitað var hugsan- legt en ekki líklegt. Félli samningurinn var óvissa um meðferð dómstóla á kröfunni og einkum hvernig vextir yrðu reiknaðir. Matsfyrirtæki sögðust líka myndu fella Ísland í ruslflokk ef samningurinn félli. Slíkt hefði orðið þjóðarbúinu dýrt, en gerðist ekki, sem bendir til þess að fyrirtækin hafi talið mat á styrk Landsbankans á þeim tíma raunsætt. Stuðningsmenn og andstæð- ingar samningsins misstu margir dómgreindina í bar- áttunni. Já-sinnar birtu mynd af hákarli sem virtist ætla að éta syndandi barn ef samning- arnir féllu. Ekki virtist barninu vegna betur ef samningarnir yrðu samþykktir. Egill Ólafs- son sagði þjóðinni með seiðandi röddu í útvarpsauglýsingum: „Samkvæmt annálaskrifum voru íslensk börn seld í ánauð til námuvinnu á Bretlandseyjum á fimmtándu öld. Það er engin ástæða til að endurtaka áþekka framkomu gagnvart börnum framtíðar. Þess vegna segi ég nei við Icesave.“ Bjarni Benediktsson, for maður Sjálfstæðisflokksins, studdi samninginn. Hann rökstuddi þá skoðun sína vel í Kastljósþætti að hans kalda mat væri það að Ísland ætti að slá striki undir málið og landsmenn að snúa sér að öðru. Sama sinnis voru sam- flokksmenn hans Árni Johnsen, Ásbjörn Óttarsson, Einar K. Guð- finnsson, Jón Gunnarsson, Krist- ján Þór Júlíusson, Ólöf Nordal, Ragnheiður E. Árnadóttir, Ragn- heiður Ríkharðsdóttir, Tryggvi Þór Herbertsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir. Einhverjir félagar mínir hafa verið svo vinsamlegir að rifja upp að ég var einn þeirra sem studdu formanninn. Mér er heiður að því, en vil þó minna á að þau Friðrik Sophusson, Geir H. Haarde, Halldór Blöndal, Matthías Bjarnason, Ólafur G. Einarsson, Ragnhildur Helga- dóttir, Sólveig Pétursdóttir, Sturla Böðvarsson, Sverrir Her- mannsson og Þorsteinn Pálsson studdu Bjarna og málstað hans líka drengilega, svo nefnd séu nöfn sem ekki hafa orðið öllum jafnminnisstæð og mitt. Ég er ánægður að vera í þessum hópi. Það er mikið gleðiefni að Icesave-málinu sé lokið. Lík- legast er það rétt, sem margir þeir sem ekki vildu semja sögðu áður en dómur féll, að það hefði litlu breytt fjárhagslega fyrir ríkissjóð þótt hann hefði fallið Íslandi í óhag. Aðalatriðið er að óvissu er eytt og þjóðin þarf ekki lengur að hafa þessa tæru snilld liggjandi á sér eins og möru. Yfir því geta allir Íslend- ingar glaðst sameiginlega. Óðurinn til gleðinnar ICESAVE Benedikt Jóhannesson framkvæmdastjóri ➜ Á árinu 2009 skrifuðu fræðimennirnir Stefán Már Stefánsson og Lárus Blöndal margar greinar um að Ísland bæri ekki ábyrgð á kröfunum. Undirritaður var í hópi þeirra sem las þær greinar af athygli og fannst þær sannfærandi. Þess vegna vó það þungt í mínum huga þegar Lárus kom að lokasamningnum um Icesave og mælti með því að hann yrði samþykktur. Þrjátíu árum eftir að augu Birkis Rúnars Gunnarssonar voru fjarlægð fékk hann æxli í höfuðið sem kostaði átta tíma skurðaðgerð. Fréttablaðið kafar í sölutölur og samsetningu bílaflota Íslendinga undanfarin ár. Skynsemin ræður á ný Þriðja glíman við krabbamein Pólfarinn Vilborg Arna Gissurardóttir ræðir hvernig hún vann þetta gríðarlega þrekvirki. Á pólinn! Agnes Dís Brynjarsdóttir er ein af skautadrottningum þjóðarinnar. Vetrarólympíuleikar langtímamarkmiðið 2013 er ár endurgerðanna í Hollywood. Rótað í safnhaugum Helgarblað Fréttablaðsins Meðal efnis núna um helgina Helgarblað Fréttablaðsins, ómissandi hluti af góðri helgi Greiðið út í krónum Kröfuhafarnir sem eiga bankana eiga að geta fengið sig leysta út í krónum eins og innlendu kröfuhafarnir 2008. Ef greitt væri út í gjaldeyri fengju vogunarsjóðirnir betri meðferð en innlendu kröfuhafarnir. Mis- munun gengur auðvitað ekki í þessu frekar en öðru. Sama gildir um þá sem fá greitt út úr Icesave. Fái þeir greitt í gjaldeyri er verið að setja þá skör hærra en inn- lenda sparifjáreigendur. Því er stjórnvöldum skylt að sjá um að allar bætur vegna hrunsins verði greiddar í sömu matador-mynt og hér er notuð. Því þarf nú þegar að stöðva greiðslur í gjaldeyri úr þrotabúum gömlu bankanna. http://www.jonas.is/ Jónas Kristjánsson Niðurstaðan Hjartanlega til hamingju með Icesave-niðurstöðuna. Ég var í hópi þeirra sem vildu reyna að ná samningum um málið– taldi dóm- stólaleiðina áhættusama og for- senda endurreisnar. Ábyrgt stjórn- vald þurfti að leita samninga– tel ég. En ég vil taka hatt minn ofan fyrir þeim sem voru á öndverðum meiði og óska þeim til hamingju. Grasrótarsamtökum, forsetanum, málsvarnarteyminu og öðrum. Þetta var frábær niðurstaða og margir geta verið stoltir af sínu framlagi. Vonandi lærum við af þessu ferli og virkjum niður- stöðuna í gær til að auka samráð og samvinnu við ákvarðanatöku. Þannig getur eitthvað gott komið úr þessu herfilega máli. http://blog.pressan.is Magnús Orri Schram AF NETINU

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.