Fréttablaðið - 01.02.2013, Blaðsíða 38
Anna Eiríksdóttir, líkams-
ræktarþjálfari með meiru,
vinnur langa daga í líkams-
ræktarstöðinni Hreyfingu.
Hún leggur að sjálfsögðu
mikið upp úr góðum og
hollum mat og hér má sjá
einn af hennar uppáhalds-
réttum.
Japanskur kjúklingaréttur
4 bringur, skinnlausar, skornar í
ræmur og snöggsteiktar í olíu.
Sweet hot chili-sósu hellt yfir
og látið malla í smá stund.
½ bolli olía
¼ bolli balsamikedik
2 msk. sykur
2 msk. sojasósa
Þetta er soðið saman í u.þ.b. 1
mínútu, kælt og hrært í annað
slagið á meðan kólnar, annars
skilur sósan sig.
1 poki núðlur (instant súpu-
núðlur) – ekki krydd.
Möndluflögur (3-4 matskeiðar)
eða eftir smekk.
Sesamfræ (1-2 matskeiðar) eða
eftir smekk.
Þetta er ristað á þurri pönnu,
núðlurnar brotnar í smáa bita
og þær ristaðar fyrst því þær
taka lengstan tíma, síðan
möndlurnar og fræin. Kælt (ath.
núðlurnar eiga að vera stökk-
ar).
Salatpoki (þinn uppáhalds)
Tómatar (helst kirsuberja-
tómatar)
1 mangó
1 lítill rauðlaukur
Allt sett í fat eða stóra skál.
Fyrst sa la t ið , tómatarn-
ir, mangóið og rauðlaukurinn,
núðlublandan ofan á og því-
næst balsamikblandan yfir. Að
síðustu er heitum kjúklinga-
ræmunum dreift yfir.
Mér finnst þessi réttur jafn
góður heitur og kaldur.
LEIKKONA Á LAUSU
Leikkonan Lilja Katrín Gunnarsdóttir breytti hjúskap-
arstöðu sinni á dögunum á Facebook úr því að vera í
sambandi í að vera ein síns liðs. Lilja Katrín starfar sem
kynningarstjóri Saga film ásamt því að vera aðstoðar-
kona framkvæmdastjórans Kjartans Þórs Þórðarsonar.
Hún ritstýrði einnig tímaritinu Séð og heyrt um tíma og
fór með aðalhlutverkið í þáttunum Makalaus.
SILKIMJÚK OG LJÓMANDI
SÝNILEGUR ÁRANGUR*
NÝTT 24 stunda krem, ávöxtur nær 20 ára rannsókna, sem byggt er á einstökum þörunga-
tegundum í vistkerfi Bláa Lónsins. Efni úr þessum þörungum vinna gegn öldrun húðarinnar og
örva og styðja við náttúru lega virkni kollagens. Blue Lagoon Rich Nourishing Cream nærir,
mýkir og örvar húðina og hentar vel til daglegrar notkunar. Blue Lagoon Rich Nourishing
Cream er náttúruleg vara og án parabena.
*in vitro og in vivo prófanir: Grether-Beck S. Neytendapróf: 45 konur.
ENDURNÆRÐ HÚÐ 95% FALLEGRI ÁFERÐ 91%
AUKINN LJÓMI 87% SILKIMJÚK ÁFERÐ 86%