Fréttablaðið - 01.02.2013, Blaðsíða 4
1. febrúar 2013 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur sýknaði í gær Styrmi Þór
Bragason, fyrrverandi forstjóra
MP banka, af ákæru um hlutdeild
í umboðssvikum í Exeter-málinu.
Ekki var heldur talið að hann hefði
gerst sekur um umboðssvik.
Exeter-málið snýst um lánveit-
ingar Byrs til félagsins Exeter
Holding til kaupa á stofnfjárbréf-
um í Byr, meðal annars af MP
banka og þáverandi stjórnendum
Byrs, Jóni Þorsteini Jónssyni og
Ragnar Z. Guðjónssyni.
Jón Þorsteinn og Ragn-
ar afplána nú fjögurra og
hálfs árs fangelsisdóma
sem þeir hlutu fyrir
umboðssvik í Hæstarétti
í fyrrasumar. Þá
var þætti Styrmis
vísað aftur heim
í hérað, enda
hafði héraðs-
dómur aldrei
tekið efnislega
afstöðu til þátt-
ar hans.
Styrmir hefur haldið því fram
að honum hafi ekki verið kunn-
ugt um það hvernig staðið var að
málum hjá Byr varðandi lánveit-
inguna, og segir dómurinn þann
framburð hans trúverðugan.
Ekki hafi verið óeðlilegt að
hann gætti hagsmuna MP
banka með því að leggja
til sölugengi stofnfjár-
bréfanna. - sh
Forstjóri MP banka vissi ekki að stjórnendur Byrs væru að brjóta lög, segir héraðsdómur:
Styrmir Þór sýknaður í Exeter-málinu
„Þetta er bara héraðsdómur og
hefur sem slíkur lítið fordæmis-
gildi,“ segir saksóknarinn Björn
Þorvaldsson spurður hvaða áhrif
þessi dómur hafi á önnur mál
þar sem menn eru ákærðir fyrir
hlutdeild í umboðssvikum.
Hann segir það vera ákvörðun
ríkissaksóknara hvort málinu
verði áfrýjað, en að vissulega
væri það betra.
Lítið fordæmisgildi
FRAKKLAND, AP Þegar François
Hollande gaf frönskum kjósend-
um það loforð að lögleiða hjóna-
bönd samkynhneigðra vakti það
engin hörð viðbrögð í Frakklandi.
Eftir að hann var kosinn forseti og
kom þessu kosningaloforði sínu til
afgreiðslu á þingi kom hins vegar
annað hljóð í strokkinn.
Fjölmennar mótmælagöng-
ur hafa verið haldnar á síðustu
vikum, sumar með þeim fjölmenn-
ustu sem þekkst hafa í Frakklandi
síðustu áratugina. Frakkar hafa
reynst íhaldssamari en þeir sjálf-
ir reiknuðu með.
Harðasta andstaðan hefur þó
ekki beinst að hjónaböndum sam-
kynhneigðra sem slíkum, heldur
að hugmyndum um að samkyn-
hneigð hjón geti ættleitt börn,
fengið leyfi til að gangast undir
frjósemisaðgerðir eða notað stað-
göngumæður til að eignast börn.
Harðar deilur hafa vaknað um
það hvort samfélagið og vísindin
séu farin að ætla sér of stórt hlut-
verk við að skipuleggja barneignir
og þjóðfélagið hefur nánast logað
í umræðum um það hvort innan
skamms verði farið að bjóða lík-
ama kvenna til leigu.
Vegna andstöðunnar féllu Hol-
lande og Sósíalistaflokkur hans
reyndar nú í janúar frá öllum
áformum um að tengja lögleið-
ingu hjónabands samkynhneigðra
við áform um að auðvelda aðgang
að frjósemisaðgerðum.
Upp úr sauð hins vegar á þingi
í þessari viku, þegar frumvarp
stjórnarinnar kom þar til umræðu,
því þá kom í ljós að Christiane
Taubira dómsmálaráðherra hafði
nánast í kyrrþey gefið út heimild
til þess að börn, sem staðgöngu-
mæður hafa fætt erlendis, geti
fengið franskt fæðingarvottorð.
„Þú ert að ýta undir aðfarir sem
eru ólöglegar hér í landi, aðfarir
sem eru árásir á mannlega reisn,“
sagði Jean-François Cope, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, á þingfundi
á miðvikudag: „Börn verða hlutir
sem hægt er að kaupa og selja.“
Dómsmálaráðherrann hefur
hins vegar ítrekað fyrri yfirlýs-
ingar um að ekki standi til að lög-
leiða staðgöngumæðrun.
Olivier Dussopt, einn þing-
manna Sósíalistaflokksins, segist
reyndar telja að Frökkum muni
smám saman snúast hugur og fall-
ast á áform stjórnarinnar, rétt eins
og gerðist eftir að þingið ákvað að
lögleiða fóstureyðingar árið 1975.
gudsteinn@frettabladid.is
Frakkar deila um
foreldrahlutverkið
Áform um hjónabönd samkynhneigðra hafa vakið harðar deilur í Frakklandi, en
þær deilur snúast meira um frjósemisaðgerðir, ættleiðingar og staðgöngumæðrun
en um samkynhneigð. Frakkar hafa reynst íhaldssamari en þeir sjálfir höfðu talið.
GAGNRÝND Á ÞINGI Christiane Taubira dómsmálaráðherra er sökuð um að vilja
gera börn að söluvöru. NORDICPHOTOS/AFP
STYRMIR ÞÓR
BRAGASON
Börn verða hlutir sem
hægt er að kaupa eða
selja.
Jean-FranÇois Cope
leiðtogi stjórnarandstöðunnar
Þorkell Sigur-
björnsson látinn
Þorkell Sigur-
björnsson tón-
skáld lést á
miðvikudag, 74
ára að aldri.
Þorkell
var eitt átta
barna bisk-
upshjónanna
Magneu Þor-
kelsdóttur og Sigurbjörns Ein-
arssonar. Hann stundaði nám
við Tónlistarskólann í Reykja-
vík en eftir stúdentspróf frá
MR nam hann tónsmíðar við
Hamline- og Illinois-háskóla,
en þaðan lauk hann meistara-
prófi. Hann kenndi svo við
Tónlistarskólann í Reykjavík
alla tíð, og að auki við Listahá-
skólann. Hann samdi rúmlega
300 tónverk á ferlinum.
Þorkell var giftur Barböru
Jane Powell og eignuðust þau
tvö börn, Mist Barböru, tón-
skáld og deildarforseta tónlist-
ardeildar LHÍ, og Sigurbjörn,
verkfræðing og stjórnanda
hjá Barclay´s-banka í London.
Barnabörn Þorkels og Barböru
eru átta og barnabarnabarnið
eitt.
DÓMSMÁL Alþýðusamband Íslands
hefur stefnt Samtökum atvinnu-
lífsins, fyrir hönd Landssambands
íslenskra útvegsmanna, fyrir
Félagsdóm vegna meintrar ólög-
mætrar vinnustöðvunar í júní á
síðasta ári.
Málið var þingfest á mánudag.
ASÍ krefst þess að viðurkennt
verði að sú aðgerð LÍÚ að beina
því til félagsmanna sinna að halda
skipum sínum ekki til veiða eftir
síðasta sjómannadag og beina
þeim þess í stað til Reykjavíkur-
hafnar í mótmælaskyni, hafi brot-
ið gegn lögum um stéttarfélög og
vinnudeilur. - þeb
Tekið fyrir í Félagsdómi:
ASÍ stefnir LÍÚ
vegna mótmæla
ATVINNULEYSI Meira en helmingur
Spánverja og Ítala hefur þurft að ganga
á sparifé sitt til að lifa af. NORDICPHOTOS/AFP
ÞÝSKALAND, AP Nærri þriðjungur
íbúa Evrópuríkja á ekki sparifé að
grípa til, samkvæmt þýskri könn-
un sem könnunarfyrirtækið TNS
gerði fyrir þýska bankann ING.
Verst standa Rúmenar, en nærri
helmingur þeirra á ekkert sparifé.
Best eru hins vegar íbúar í Lúx-
emborg staddir, því einungis ellefu
prósent þeirra eiga ekkert sparifé.
Könnunin var gerð í fjórtán Evr-
ópuríkjum.
Að meðaltali segjast 49 prósent
Evrópubúa eiga sparifé sem myndi
duga þeim í þrjá mánuði yrðu þeir
fyrir skyndilegu tekjutapi. - gb
50% á fé fyrir þrjá mánuði:
Þriðjungur á
ekkert sparifé
KJARAMÁL Laun hækka í dag um
3,25 prósent, eða ellefu þúsund
krónur að lágmarki, samkvæmt
almennum kjarasamningum.
Misjafnt er þó eftir því hvort
fólk er á fyrirfram- eða eftir-
ágreiddum launum hvort hækk-
unin kemur fram á launaseðlum
um þessi mánaðamót eða þau
næstu.
Þá hækka lágmarkslaun fyrir
fullt starf upp í 204 þúsund krón-
ur á mánuði. - þeb
Lágmarkslaun 204 þúsund:
Laun hækka
um 3,25 prósent
232,4241
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,45 127,05
199,93 200,91
171,36 172,32
22,963 23,097
23,020 23,156
19,875 19,991
1,3888 1,3970
194,87 196,03
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
GENGIÐ
31.01.2013
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is,
Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is, Elsa Jensdóttir elsaj@365.is, Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@365.is
og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Veðurspá
Sunnudagur
8-15 m/s
GRÍPTU DAGINN Víða hægviðri í dag en hvessir í kvöld. Búast má við strekkingi eða
allhvössum vindi með hléum um helgina. Úrkoma einkum S- og V- lands á morgun og
sunnudag. Hlýnar um tíma á morgun en kólnar aftur annað kvöld.
-1°
5
m/s
0°
6
m/s
0°
6
m/s
3°
10
m/s
Á morgun
10-18 m/s
Gildistími korta er um hádegi
3°
0°
1°
-3°
-2°
Alicante
Basel
Berlín
22°
11°
6°
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
3°
7°
8°
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
1°
1°
22°
London
Mallorca
New York
9°
13°
2°
Orlando
Ósló
París
18°
-9°
11°
San Francisco
Stokkhólmur
16°
-4°
0°
3
m/s
0°
3
m/s
-5°
2
m/s
-4°
3
m/s
-4°
2
m/s
-4°
2
m/s
-8°
3
m/s
6°
3°
4°
3°
2°
Snjólaug Ólafsdóttir
veðurfréttamaður