Fréttablaðið - 02.02.2013, Qupperneq 94
2. febrúar 2013 LAUGARDAGUR| MENNING | 66
Halla Bára Gestsdóttir
Gunnar Sverrisson
homeanddelicious.com
1. Bláberjasúkkulaðikaka
200 g smjör
200 g súkkulaði
3 egg
½ tsk. vanilludropar
2 dl flórsykur
5 dl hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 dl möndlur, maukaðar í mél
2-3 dl frosin bláber
Rjómaostakrem
4 dl rjómaostur
4 msk. flórsykur
1 eggjarauða
2 msk. bláberjasíróp, má sleppa
Bræðið saman smjör og súkkulaði.
Kælið aðeins. Hrærið saman egg,
vanilludropa og sykur þar til létt og
ljóst. Bætið við hveiti og lyftidufti.
Malið möndlur í mél í matvinnsluvél.
Hrærið möndlumjölið saman við
deigið. Hellið bráðnu súkkulaðinu
út í deigið í mjórri bunu og setjið
loks helminginn af berjunum varlega
saman við það. Blandið vel en
varlega svo berin haldi lögun sinni en
merjist ekki út í deigið.
Hrærið saman allt hráefnið í rjóma-
ostakremið. Uppskrift af bláberja-
sírópinu er gefin hér í þættinum en
því má sleppa. Kremið er líka gott
án þess.
Klæðið 20 cm form með bökunar-
pappír. Hellið deiginu í. Hellið
rjómaostakreminu í mjórri bunu
hring eftir hring yfir deigið í forminu.
Notið gaffal til að hræra kremið
örlítið saman við deigið.*
Sáldrið afganginum af berjunum
yfir og bakið kökuna við 180 gráður
í 40-50 mínútur eða þar til efsta lag
kökunnar er orðið stinnt þegar ýtt er
á það. Alls ekki baka kökuna mikið.
Hafið hana vel mjúka í miðjunni.
Kælið kökuna aðeins áður en hún er
borin fram með rjóma eða ís.
Notið litlar hringhreyfingar þegar þið
hrærið rjómaostakremið saman við
deigið með gafflinum svo úr verði
marmaramunstur.
2. Bláberjabrauð
250 ml mjólk, velgd
2 tsk. þurrger
2 msk. sykur
2 msk. hunang
1 tsk. salt
250 g hveiti
80 g rjómaostur
40 g brætt smjör
160 g frosin bláber
70 g valhnetur, gróft saxaðar
1 eggjarauða
Smurt með bláberjasírópi eða
sultu og vatni, þá er 1 msk. sulta á
móti 1 msk. af vatni, sem er hitað
saman svo komi gljái og smá sæta á
skorpuna, má sleppa.
Hitið ofn í 180 gráður. Velgið
mjólkina og stráið gerinu yfir ásamt
sykrinum. Látið gerið leysast upp,
í um 5 mínútur. Hrærið saman og
setjið hunang, salt, hveiti, rjómaost
og smjör saman við, hnoðið þannig
að deigið nái festu. Frosin berin og
hneturnar fara þá saman við. Hnoðið
varlega þegar berin eru komin í
deigið, best að hafa þau vel frosin,
þau smita svo miklum lit út frá sér
um leið og þau þiðna og brauðið
verður þá fjólublátt. Setjið deigið í
smurt brauðform og látið hefast í
forminu í klukkustund. Penslið með
eggjarauðunni og bakið í 40 mínútur
eða þar til gullið.
Hitið saman sultu og vatn eða notið
bláberjasíróp sem gefin er uppskrift
af hér í þættinum. Smyrjið brauðið
með því svo það fái á sig fallegan
gljáa. Kælið aðeins og berið fram
með bláberjasultu og góðum ostum.
3. Bláberjaostakaka í bolla
Ostakrem
250 g rjómaostur við stofuhita
55 g flórsykur
1 tsk. vanilludropar
60 ml rjómi, þeyttur
5-8 msk. bláberjasíróp, magn eftir
smekk
bláber til skrauts
Botn
100 g hafrakex, hafrakex með súkkulaði
eða t.d. Oreo-kex
50 g suðusúkkulaði
25 g salthnetur eða aðrar hnetur, má
sleppa
30 g smjör
Bláberjasíróp
250 g bláber
150 ml vatn
50 ml ferskur limesafi
3 msk. fersk basilíka eða mynta
100 g hrásykur
Hitið allt hráefnið í sírópið saman í
potti í 10 mínútur. Sigtið og kremjið
berin í gegnum sigtið. Hitið sírópið
aftur að suðu. Kælið. Ef vilji er til
að hafa sírópið þynnra skal bæta
örlitlu af vatni saman við blönduna í
pottinum. Kælið.
Hrærið rjómaost, flórsykur og
vanilludropa saman í hræri- eða mat-
vinnsluvél þar til mjúkt og kekkja-
laust. Blandið þeytta rjómann og
sírópið varlega saman við og hrærið.
Setjið allt hráefnið í botninn í mat-
vinnsluvél og kurlið þar til úr verður
fín blanda. Veljið fallega bolla eða
glös til að bera fram fyrir hvern og
einn. Þrýstið blöndunni vel niður í
hvern bolla, um 1 cm þykkt lag.
Ostablandan fer ofan á botninn og
er smurð vel til. Skreytt að vild. Látið
í ísskáp í klukkustund áður en borið
fram.
BÆTUM OG BÖKUM
MEÐ BLÁBERJUM
1
2
3
Enginn efast um hollustu bláberja en notkunarmöguleikar þeirra eru líka margir.
Hér eru þau notuð í ábætisrétt, í brauðbakstur og súkkulaðiköku. Frosin berin
henta hér vel og að sjálfsögðu einnig þau sem má kaupa í matvörubúðum. Þá
má skipta bláberjum út fyrir hindber í öllum þessum uppskrift um.
NAOMI WATTS
TILNEFND TIL GOLDEN GLOBE VERÐLAUNA
BESTA LEIKKONA Í AÐALHLUTVERKI
100/100
„Ógnvænlega vel gerð.“
100/100
„Fer beint í efsta sæti yfir þær myndir
sem fólk verður að sjá á árinu.“
100/100
„Einstaklega raunveruleg stórslysamynd,
sem lætur engan ósnortinn“
„Ein af betri myndum ársins 2012.“
Mbl.
Komin í bíó