Fréttatíminn - 30.09.2011, Page 8
VEIDIMADURINN.IS
SÍÐUMÚLI 8 - SÍMI 568 8410
SKOTVEIÐIMENN
NORÐURLANDI!
VEIÐIHORNIÐ KEMUR NORÐUR
Haglabyssur frá Beretta, Stoeger og
Escort. Haglaskot frá Rio. Gervigæsir,
gallar og byssuskápar á sölusýningu.
Veiðibúð allra landsmanna á netinu
Veidimadurinn.is og Veiðihornið.
Hólabraut 13 - Akureyri
Laugardagurinn 1. október
10:00 til 17:00
NF
Jd
es
ig
n.
co
m
Ryð-
vörn
allt
önnur
og betri
en áður
var.
Aukin bjartsýni
almennings
Öfugt við íbúa flestra annarra iðnríkja
hefur bjartsýni almennings á Íslandi á
efnahags- og atvinnuhorfur aukist nú á
haustdögum. Gallup birti á þriðjudaginn
væntingavísitölu sína fyrir september-
mánuð. Vísitalan hækkar um tæp 20 stig á
milli mánaða, úr 50,1 stigi í 69,4 stig. Þetta
er hæsta gildi vísitölunnar frá ágúst í fyrra,
og skýrist að mestu leyti af hækkun á vænt-
ingum til ástandsins eftir sex mánuði. Er
sú undirvísitala nú 99,8 stig, sem þýðir að
nánast jafn margir svarendur eru bjartsýnir
og svartsýnir á ástandið í efnahags- og at-
vinnumálum þjóðarinnar að hálfu ári liðnu.
Mat á núverandi ástandi er hins vegar
áfram lágt, 23,7 stig, og stendur nánast í
stað milli mánaða. Greining Íslandsbanka
segir það koma nokkuð á óvart hversu
bjartsýni á ástandið að hálfu ári liðnu hefur
aukist á sama tíma og efnahagshorfur á
alþjóðavísu hafa hríðversnað. - jh
Við erum ný í umferðinni
Ný umferðarskilti sem hvetja til minni
umferðrahraða verða á næstu dögum sett
upp í nágrenni við leik- og grunnskóla í
Laugardal, Háaleiti og Bústaðahverfi, að
því er fram kemur í tilkynningu fram-
kvæmda- og eignasviðs Reykjavíkurborgar.
Á skiltunum eru ökumenn hvattir til að
sýna nýjum þátttakendum í umferðinni
nærgætni og aka af varkárni. Skiltin eru
ólík hefðbundnum umferðarskiltum því
myndir eftir skólabörn í hverfinu prýða
þau. Biðlað er til ökumanna að sýna
aðgát í grennd við skólalóðir. Sami texti
verður á öllum skiltum, Varúð – Við erum
ný í umferðinni, ef frá eru talin skiltin við
Laugalækjarskóla og Réttarholtsskóla en
þar stendur: Ungmenni á leið til skóla. - jh
Afmælisgjöf IKEA til
barna á Íslandi
Í tilefni 30 ára afmælisviku IKEA á Íslandi
dagana 15.-21. september lét verslunin 30
krónur af hverri greiðslufærslu í verslun og
á veitingastað renna til innlendra verkefna
Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.
Einnig seldu þrjú pör, sem kepptu í leiknum
Helgarferð til IKEA, vinabönd í eina
klukkustund og rann allur ágóði af sölunni
til samtakanna, að því er fram kemur í
tilkynningu þeirra. Alls safnaðist 758.801
króna. - jh
Bílar Undirvagn og yfirBygging
Bílaumboðin halda sig við staðla framleiðenda sem vilja ekki viðbótarryðvörn við verksmiðjuryðvörn nýrra bíla, enda séu bílar
miklu betur ryðvarðir en á árum áður. FÍB bendir hins vegar á danska rannsókn um að góðrar viðbótarryðvarnar sé enn þörf,
m.a. vegna saltburðar á vegi. Ljósmynd/Hari
Viðbótarryðvörn,
bót eða bölvun?
Bílaframleiðendur vilja ekki viðbótarryðvörn og umboðin fylgja stöðlum þeirra til að viðhalda
ábyrgð. FÍB birtir hins vegar úttekt dansks systurfélags þar sem hvatt er til viðbótarryðvarnar
nýrra bíla, m.a. vegna saltburðar á vegi.
n ýir bílar koma með verksmiðjuryð-vörn og að mestu er liðin sú tíð að farið sé með þá í viðbótarryðvörn
hérlendis. Eigi ryðvarnarábyrgð framleið-
anda að halda þarf að fylgja stöðlum hans
og þjónustuferli umboðs. Þar er ekki gert
ráð fyrir viðbótarryðvörn. Á vef Félags ís-
lenskra bifreiðaeigenda er hins vegar sagt
að ennþá sé nauðsyn góðrar ryðvarnar og
þar er vísað til úttektar FDM, hins danska
systurfélags FÍB, og tæknistofnunarinnar
Teknologisk Institut.
Þar kemur fram að engir bílar séu byggð-
ir til að standast danska (og íslenska) lofts-
lagið og saltburð á vegi að vetrarlagi. Því
eigi að ryðverja alla nýja bíla fyrir notkun.
Fyrsta ryðvörnin sé sú mikilvægasta. „Því
hefur verið haldið mjög á lofti undanfarin
mörg ár af bílaumboðum og ýmsum sem vit
þykjast hafa á bílum, að sérstök nýryðvörn
sé óþörf og jafnvel til bölvunar,“ segir þar en
jafnframt að þessari kenningu hafni FDM
og Teknologisk Institut. Góð ryðvörn í upp-
hafi lengi líf bæði yfirbyggingar og undir-
vagns, hemlaröra og slíks.
Í frétt FÍB um málið segir að Teknologisk
Institut og FDM leggi áherslu á að ryðverja
þurfi alla bíla, líka þá sem séu með sinkhúð-
un (galvaniseringu). Sérstaklega sé nauð-
synlegt að ryðverja strax ódýrustu bílana
því að minnst sé lagt í ryðvarnir í þeim af
hálfu framleiðenda.
Magnús Eysteinn Halldórsson, verk-
stæðisformaður þjónustusviðs Heklu, segir
að þar á bæ, líkt og hjá umboðum annarra
bílategunda, sé stöðlum framleiðenda fylgt.
Bílaframleiðendur vilji ekki að bætt sé við-
bótarryðvörn við þá ryðvörn sem komi frá
verksmiðju. Nú séu undirvagnar bíla gal-
vaniseraðir og ryðvörn allt önnur og betri
en áður var. Mikil breyting hafi orðið hvað
ryðvörn varðar síðustu ár. Nú séu tíu ára
gamlir bílar að koma inn lítt ryðgaðir. Breyti
þar engu þótt sífellt sé notað meira salt á
vegi hér til hálkueyðingar.
Framleiðendur veiti allt að tólf ára ryð-
varnarábyrgð á bílum, gagnvart gegnum-
ryði, þ.e. að ryðið komi innan frá. Eigandi
bílsins verði hins vegar að sinna þjónustu-
skoðunum til þess að viðhalda þessari
ábyrgð. „Það verður að fara varlega í það að
segja bíleigendum að ryðverja umfram verk-
smiðjuryðvörnina,“ segir Magnús Eysteinn,
„það getur verið verra að gera það en ekki.“
Leó M. Jónsson vélatæknifræðingur, sem
um árabil hefur skrifað um viðhald bíla,
sagði í grein fyrir nokkrum árum að íslensk
ryðvörn bíla væri óþörf og jafnvel líkleg til
að flýta tæringu fremur en tefja hana.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
8 fréttir Helgin 30. september-2. október 2011