Fréttatíminn


Fréttatíminn - 30.09.2011, Blaðsíða 66

Fréttatíminn - 30.09.2011, Blaðsíða 66
C M Y CM MY CY CMY K 2x10 World Class 29.sept.pdf 1 9/29/11 11:52 AM „Þetta er hugmynd sem kom frá Evu Maríu. Hún er búin að grúska í gömlum skræðum í Árnastofnun og lesa þessar vísur. Stelpurnar okkar höfðu gaman af þessu og þetta virð- ist höfða vel til krakka. Hún hafði rekið augun í að ég hafði gaman af að teikna myndir fyrir stelpurnar okkar – svona myndir eins og í lita- bókum – og þannig varð þetta sam- starf okkar til,“ segir kvikmynda- leikstjórinn Óskar Jónasson um tilurð bókarinnar Dans vil ég heyra sem hann vann með fyrrverandi eiginkonu sinni, Evu Maríu Jóns- dóttur. Óskar segir það lítið mál að vinna með Evu Maríu þrátt fyrir að þau séu ekki lengur hjón. „Eins og annað fráskilið fólk þurfum við að eiga í samskiptum frá degi til dags og þetta var ekkert vandamál. Það var kærkomin tilbreyting frá kvik- myndastússinu að setjast niður með tebolla og lita með vatnslitum,“ seg- ir Óskar. Og Eva María tekur í sama streng: „Hugmyndin kom upp fyrir mörgum árum en einhvern veginn fór orkan í eitthvað annað, eins og til dæmis að skilja. Núna var þetta mjög gaman og stelpurnar okkar eru rosalega ánægðar með þessa samvinnu. Þær voru líka með á öll- um stigum bókarinnar,“ segir Eva María. Hún segir að henni hafi alltaf gengið vel að svæfa börn – vopnuð fornkvæðum og rímum. „Þetta eru gamlir textar með drama, örlög- um, lífsháska og ógnum. Eitthvað sem höfðar til barna,“ segir Eva María. Með bókinni fylgir geisla- diskur með gömlum upptökum. „Í bókinni er aðeins hálf sagan sögð – restin er í flutningnum. Þetta eru dásamlegar gamlar raddir sem eru flestar farnar frá okkur – fallegar og fornar raddir í samhengi við stemn- inguna,“ segir Eva María. Bókin kemur út á næstu vikum og það er Mál og menning sem gefur hana út. oskar@frettatiminn.is  Bækur Ný BarNaBók Eva María og Óskar búa til bók saman Kápa bókarinnar Dans vil ég heyra. Hjónin fyrrverandi, Eva María Jónsdóttir og Óskar Jónasson, hafa nýlega lokið við barnabókina Dans vil ég heyra. Bókin hefur að geyma sagnadansa og lausavísur fyrir börn sem Eva María tók saman og Óskar myndskreytti. Núna var þetta mjög gaman og stelpurnar okkar eru rosa- lega ánægðar með þessa samvinnu. Óskar Jónasson teiknaði myndirnar í rólegheitum heima hjá sér. Ljósmynd/Hari Faðernið er ráðgáta M ad Man-stjarnan January Jones hefur í nógu að snúast þessa dagana því hún eignaðist sitt fyrsta barn á dög- unum. Strákurinn fékk nafnið Xan- der Dane Jones og hefur leikkon- an ekki enn sagt umheiminum hver faðirinn er. Tímaritið People, sem komst yfir fæðingarvottorð Xanders á dögunum, sagði frá því að leikkon- an hefði skilað auðu þegar kom að því að gera grein fyrir pabbanum. Sá orðrómur hefur þó verið á kreiki síðustu vikur að eiginmaður Clau- diu Schiffer, Matthew Vaughn, hafi barnað January en þau kynnt- ust við tökur á myndinni X Man á síðasta ári. Matthew neitar þessum ásökunum og segist vera hamingju- samlega giftur Claudiu. Getur þú styrkt barn? www.soleyogfelagar.is 62 dægurmál Helgin 30. september-2. október 2011
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.